Frjáls verslun - 01.01.1972, Blaðsíða 20
VÖRU-
FLUTNINGAR
MILLI LANDA
önnumst vöruflutninga milli hafna á Islandi og
eftirtalinna hafna erlendis: Kaupmannahöfn,
Gautaborg, Hamborg, Gdyma, Ipswich, Hull,
Rotterdam, Antwerpen.
Hafskip hf.,
HAFNARHOSINU, REYKJAVIK. SlMI 21160.
ferðaskrifstofa bankastræti 7 símar 16400 12070
Almenn
ferðaþjónusta
Ferðaþjónusta Sunnu um allan heim fyrir hÓRa, fyrirtæki og einstaklinga er
viðurkennd af þeim fjöl.mörgu er reyr.t hafa. Reynið Telex ferðaþjónustu
okkar. Aldrei dýrori en oft ódýrari en'annars staðar.
IE33E0I
ferðirnar sem fólkið velnr
BRAUÐBORG BYÐUR
• SMURT BRAUÐ OG SÍLDARRÉTTI.
• HEITAR SÚPUR OG TARTALETTUR
BRAUÐBORG
NJÁLSGÖTU 112, REYKJAVÍK. SÍMAR 18680 OG 16513.
Bandarísk yfirvöld telja þó
ekki horfur á sölu skipa til
Sovétríkjanna í bráð, en segja
ekki loku fyrir það skotið, að
Bandaríkjamenn miðli Sovét-
mönnum einhverju af tækni
sinni og þekkingu á sviði sigl-
inga og hafnamála.
Sovézki kaupskipaflotinn vex
ört. Árið 1970 fluttu 1400 skip,
sem 1 honum voru þá um 161
millj. lestir af farmi. En fyrir
þennan flota vantar betri að-
stöðu í sovézkum höfnum. Þá
hefur einn af æðstu yfirmönn-
um flotamála í Moskvu sagt, að
brýnasta verkefni sovézkra yf-
irvalda væri að koma upp tölvu-
útbúnaði til að samræma ferðir
skipa og flutninga.
FÁ HJÁLP.
Ólíklegt er talið. að Sovót-
menn geti sjálfir lagt til alla
nauðsynlega tölvutækni, sjálf-
virkni og gáma, sem eru nauð-
synlegur þáttur í áætlun þeirra.
Ekki er heldur sennilegt, að
önnur lönd en Bandaríkin geti
veitt þeim alla aðstoð, þó að
brezkt fyrirtæki hafi að vísu
sett upp tölvu í siglingaráðu-
neytinu í Moskvu nýlega og
Japanir lagt til hönnun, verk-
kunnáttu og tæki fyrir nýja
höfn á Kyrrahafsströnd Sovét-
ríkjanna.
Bandaríkjamenn ættu að hafa
ýmis tækifæri til að miðla Sov-
étmönnum af kunnáttu sinni á
sviði siglingatækni. Vonir
standa til, að árið 1975 verði 24
skip sovézka kaupskipaflotans
búin út til flutninga með gám-
um. Sovétmenn hafa ekki enn
tileinkað sér þessa nýju tækni
að neinu marki en Bandaríkja-
menn eru hins vegar komnir
lengst í henni allra þjóða.
Meginumræðurnar snúast nú
um flutningaskip. Aftur á móti
vilja Sovétmenn einnig fá heim-
ild til að sigla farþegaskipum
sinum eins og Alexander Push-
kin til New York og annarra
bandarískra hafna. Alexander
Pushkin, sem er 20 þús. tonn
á stærð, er nú í siglingum milli
Leningrad og Montreal. Sigl-
ingamálayfirvöld vestan hafs
telja þetta fremur auðvelt mál
að leysa, þar sem Sovétríkin
séu þegar aðilar að alþjóðasam-
komulagi um siglingar á At-
lantshafi.
16
FV 1 1972