Frjáls verslun - 01.01.1972, Blaðsíða 51
Marsellíus Bern-
-*
harðsson, Isafirði
„Vantar lán
til langs
tíma“
Ég er gamall maður og það
hafa oft á minni ævi blossað
upp iðngreinar á íslandi, líkt
og skipasmíðarnar hafa gert að
undanförnu. Það hefur átt að
byggja og byggja innanlands,
en síðan hefur innflutningsald-
an skollið á skyndilega og kaf-
fært hinn innlenda iðnað. Þetta
hefur gerzt hvað eftir annað og
er enn að gerast, — nú í sam-
bandi við skipasmíðarnar. Mér
sýnist ástandið hafa stórversn-
að síðasta hálfa árið.
Stöðin mín hefur til þessa
smíðað 40 tréskip og 7 stál-
skip. Núna starfa hjá okkur
40-50 manns, að meðtöldu skrif-
stofufólki. Til þess að vel ætti
að vera, þyrfti ég um 75 manns,
og þá helzt vana smiði. Annað
hvort þarf að gera sérstakar
ráðstafanir til að þjálfa upp
vinnukraft fyrir stöðvarnar eða
flytja hann inn. Okkur hefur
tekizt að þjálfa lærlinga, sem
hafa orðið ágætis fagmenn, en
þeir hafa flutt til Reykjavík-
ur strax að loknu námi. Hús-
næðisvandamálin hér á ísa-
firði eiga líka sinn þátt í mann-
eklunni, því að illmögulegt er
að koma mönnum fyrir, þó að
þeir vildu flytjast hingað vest-
ur.
Skipasmíðastöðvarnar á ís-
landi mega alls ekki verða
fleiri. Það væri hæfilegt að
reka hér 3-4 stöðvar með full-
komnum tækjum og hæfasta
fólki. Þá þyrftu stöðvarnar að
fá að byggja mörg skip af sörnu
stærð til þess að einhver hagn-
aður gæti orðið af rekstrinum.
Ég er sannfærður um, að skipa-
smíðar eru alls staðar reknar
með tapi á íslandi um þessar
mundir. Stöðvarnar þrífast á
öðrum verkefnum, sem til
falla.
Það ríkir líka alltaf mikil
óvissa um, hvenær, við fáum
okkar peninga greidda. Það fer
allt eftir því, hvenær Fisk-
veiðasjóður getur borgað skip-
„Skipctsmíðctr eru alls staSar reknar með tapi á Islandi um
þessar mundir."
„Annað hvort þarf að gera sérstakar rdðstafanir til að þjálfa
vinnukraft eða flytja hann inn."
FV 1 1972
47