Frjáls verslun - 01.05.1972, Page 43
Fyrirtæki vörur
þjónusta
Bylting í bókhaldi:
Hagskil bjóða upp á
tölvubókhald
Hjörtur Pétursson, framkvœmdastjóri Hagskila h.f., og Birgir
Rafn Jónsson, umboðsmaður ADDO á Islandi.
Hagskil nefnist ráðgjafa- og
þjónustufyrirtæki í Reykjavík,
sem stofnað var fyrir rúmu
ári, og hefur nú nýlega fengið
umboð fyrir sænska Ekonom-
iska Data Behandling bók-
haldskerfið, sem nú er að ná
mikilli útbreiðslu á Norður-
löndum, einkum í Svíþjóð.
Samkvæmt upplýsingum
Hjartar Péturssonar, fram-
kvæmdastjóra Hagskila, en
hann innleiddi vélahókhald
hér á landi fyrstur manna ár-
ið 1946, ætti þetta kerfi að
henta vel íslenzkum fyrirtækj-
um, því að samanburður með'-
alstórra fyrirtækja hér og á
hinum Norðurlöndunum, þar
sem kerfið er notað, leiðir í
Ijós, að rekstrar- og stærðar-
hlutfallið er mjög svipað.
Nú eru starfandi tvær nefnd-
ir hér, sem vinna að stöðlun
bókhalds, önnur á vegum
bankanna og hin á vegum fjár-
málaráðuneytisins. Bendir
starfsemi þeirra til þess, að sá
staðall, sem settur verður fyr-
ir bókhald íslenzkra fyrir-
tækja, verði í grundvallaratrið-
um sá sami og á hinum Norð-
urlöndunum, en það auðveldar
notkun EDAB-kerfisins.
Iijörtur sagði, að á síðustu
fimm til tíu árum, hefðu augu
manna opnazt fyrir gildi bók-
halds sem stjórnunartækis. Nú
væri ekki aðeins litið á bók-
hald sem einhverjar nauðsyn-
legar upplýsingar fyrir skatt-
inn, heldur miklu fremur sem
lífsnauðsynlegar upplýsingar
fyrir fyrirtækið sjálft varð-
andi stöðu þess og rekstur, því
FV 5 1972
43