Frjáls verslun - 01.05.1972, Qupperneq 49
Nýtt fyrirtæki tekur
við Olivettiumboðinu
Skrifstofutækni h.f., ný-
stofnað fyrirtæki, hefur ný-
lega tekið við söluumboði á
Oiivetti-skrifstofuvélum hér á
landi, af G. Helgason & Mel-
sted, sem haft hefur umboðið
frá árinu 1939.
Tildrög að þessum eigenda-
skiptum voru þau, að fyrir
nokkru fékk G. Helgason &
Melsted til sín erlenda hag-
ræðinga til þess að sjá um hag-
ræðingaatriði miðað við fram-
tíðarrekstur. Sérfræðingarnir
bentu sérstaklega á, að vöru-
tegundir fyrirtækisins væru of
óskildar til þess að það gæti
beitt sér nægilega á ákveðnu
sviði.
Þeir mæltu því með því, að
einhver hluti af rekstrinum
yrði seldur, en fyrirtækið hafði
rekið umfangsmikla starfsemi
með hjólbarða, tízkufatnað,
Pan Am-umboðið, vínumboð,
ritvélar o. fl. Að vel yfirveg-
uðu máli ákváðu forráðamenn
G. Helgason & Melsted að
selja Olivetti-umboðið, og
keypti Skrifstofutækni h.f.
umboðið, sem fyrr segir.
Stofnendur þessa nýja fyrir-
tækis eru fjórir fyrrverandi
starfsmenn G. Helgason & Mel-
sted, og Penninn h.f. Olivetti
verksmiðjurnar framleiða yfir
200 tegundir véla, allt frá litl-
um ferðaritvélum til fullkom-
inna rafmagnsritvéla, og hand-
snúnar samlagningarvélar til
flóknustu reiknivéla og raf-
reikna.
Allir starfsmenn Skrifstofu-
tækni h.f. hafa lært til verka
sinna erlendis, og hefur um-
boðið sérstaka tæknideild, þar
sem viðgerðarþjónusta fyrir
allar gerðir Olivetti-véla fer
fram.
Framkvæmdastjóri Skrif-
stofutækni er Gunnar Dungal,
sem jafnframt rekur Pennann,
og er fyrirtækið til húsa að
Laugavegi 178.
Skrifstoíutœkni h.f. opnaði fyrir skömmu verzlun
og viðgerðaþjónustu að Laugavegi 178.
FV 5 1972
40