Frjáls verslun - 01.02.1973, Page 77
Cummins díselvélar
frá Birni og Halldóri
Cummins-dieselvélaverksmið j -
urnar hafa yfir 50 ára reynslu
í smíði dieselvéla og eru nú
meðal stærstu og þekktustu
dieselvéla-framleiðenda í
heiminum. Hér á landi hafa
Cummins dieselvélar verið í
notkun í f jölda ára bæði á landi
og á sjó og er samróma álit
allra eigenda þeirra að þær séu
sérstaklega öruggar og ending-
argóðar. Nú á seinni árum hafa
þær mjög rutt sér til rúms í
íslenzkum fiskiskipum og eru
stöðut að auka á. Kemur þar
fyrst og fremst til reynsla sú
sem fengizt hefur á undanförn-
um árum, sem felst í hagkvæm-
ari rekstri og minna viðhaldi en
almennt er á öðrum tegundum
diselvéla. En auk þessa er rétt
að geta þess að Cummins disel-
vélarnar eru seldar með 2 ára
ábyrgð og felur sú ábyrgð í
sér allan kostnað og vinnu í
sambandi við hugsanlegar bil-
anir eða umskipti á vélahlutum
sem teljast kunna gallar í fram-
leiðslu vélanna. Eykur þetta að
sjálfsögðu mjög á öryggi þeirra
sem eiga og nota Cummins
dieselvélar, samfara því að um-
boðið hér á landi leggur sér-
staka áherzlu á viðhald og þjón-
ustu fyrir vélarnar og er vel
birgt af viðhalds- og varahlut-
um. Cummins diselvélar í fiski-
báta, sem henta hér á landi, eru
í 7 mismunandi stærðarflokk-
um: 188 — 249 — 282 — 376
— 458 — 509 og 580 hestöfl, og
er þá miðað við öxul-hestöfl,
sem er það eina rétta þegar
talað er um aflvélar í fiski-
báta. Cummins vélar af ofan-
greindum stærðum eru í all-
mörgum fiskibátum hér á landi
frá 30 til 105 smálesta af stærð.
Verið er að ljúka niðursetningu
tveggja véla og um leið að hefj-
ast niðursetning annarra
tveggja í 60—70 smálesta báta
og verksmiðjurnar eru nú að
senda frá sér tvær 580 hest-
afla vélar sem eiga að fara í
170 lesta fiskiskip. Að lokinni
vetrarvertíð verða svo settar
nokkrar vélar í viðbót í báta
af stærðunum 40 til 70 smá-
lesta. Fjöldi Cummins véla í ís-
lenzkum fiskibátum eykst jafnt
og þétt með hverjum mánuðin-
um.
Cummins eru ekki síður
þekktar sem rafstöðvar bæði
til lands og sjávar og eru all-
margar slíkar rafstöðvar í notk-
un í íslenzkum síldveiðiskipum.
Einkaumboðsmenn fyrir
Cummins vélar hér á landi eru
Björn & Halldór h. f. en það
fyrirtæki hefir innt af hendi
viðgerðir og tæknilega þjónustu
fyrir fiskiflotann í meira en 20
ár og hefur þar af leiðandi langa
og góða reynslu á því sviði. Fyr-
irtækið hefir einnig einkaum-
boð á íslandi fyrir hinar heims-
þekktu TWIN DISC verksmiðj-
ur, sem framleiða girkassa, afl-
úttök og kúplingar, sem nú er
næreingöngu notað við hrað-
gengar dieselvélar. Fyrirtækið
býður einnig upp á allan út-
búnað fyrir aflvélar í skipum,
s. s. skrúfuútbúnað, stjórntæki,
dælur o. fl. o. fl. og annast nið-
ursetningar Cummins vélanna í
skip og báta. Aðaláherzlan er
lögð á að bjóða aðeins það bezta
sem völ er á og að veita við-
skiptavinunum fyrsta flokks
þjónustu á sviði véla og búnað-
ar fyrir fiskiflotann.
Björn & Halldór h. f. eru til
húsa að Síðumúla 19 í Reykja-
vík og reka þar fullkomið véla-
verkstæði með sérþjálfuðum
starfsmönnum. Framkvæmda-
stjóri er Björn Guðmundsson.
IVI.A.N. vélar
frá Ólafi Gíslasyni & Co. hf.
Segja má að dieselvélarnar
séu enn mjög framarlega í
flokki þeirra aflgjafa sem
þekktir eru í dag. I meira en
70 ár hafa M.A.N. verksmiðj-
urnar í Vestur—Þýzkalandi
verið brautryðjendur í smíði
dieselvéla, og hefur þessi langa
reynsla gert þeim kleift að þróa
þessa framleiðslu upp í það sem
hún er í dag og skapa þeim þann
virðingarsess sem vélar frá
M.A.N. verksmiðjunum njóta.
Aðalvélar og ljósavélar í skip
og báta þurfa jafnan að upp-
fylla ströngustu kröfur, jafn-
framt því að þurfa að vera
sparneytnar, ódýrar í rekstri og
einfaldar í notkun. Það hreyfi-
afl sem uppfyllir þessar kröfur
er diselvélin. M.A.N. verksmiðj-
urnar urðu fyrstar vélaframleið-
enda í heiminum til að smíða
dieselvélar og framleiða nú vél-
ar >í allt að 48.000 h.p. að stærð.
Flestar þessara véla eru gerðar
fyrir skip. Hér á landi eru all-
mörg skip búin vélum frá
M.A.N. og má þar á meðal
nefna fiskiskip, hafrannsóknar-
skip og varðskip. Auk skuttog-
arans m.s. „Bjarna Benedikts-
sonar“ RE 210, sem nýkominn
er frá Spáni, má nefna 3 aðra
skuttogara af sömu stærð, sem
eru í smíðum á Spáni, ásamt 5
öðrum skuttogurum af minni
gerð, og eru öll þessi skip búin
aðalvélum og ljósavélum af
M.A.N. gerð.
Auk véla framleiða M.A.N.
verksmiðjui’nar bíla, krana,
brýr, lyftur, prentvélar o. fl.
FV 2 1973
73