Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.02.1973, Side 79

Frjáls verslun - 01.02.1973, Side 79
sem nauðsynlegar hafa talizt endurbótum og breytingum að fenginni fjölþættri reynslu á þeim vélagerðum, sem Alpha- Diesel A/S hefur framleitt allt frá árinu 1934. B&W Alpha fjórgengisvélar 1000—2250 hestafla: Þessi vélargerð er auðkennd: V 23 HU og er sterkbyggð, með- al-hraðgeng diselvél, niðurgír- uð, og þannig tengd skipti skrúfu,skrúfu, sem framleidd er af Alpha-Disel A/S. Þetta er mikils virði í sam- bandi við lausn síaukinnar kröfu um mikið vélarafl jafn- hliða sparnaði á plássi; þetta gildir jafnt innan fiskiflotans sem verzlunarflotans. Strokkunum er þannig kom- ið fyrir að þeir myndi V-lögun með 45° horni til hvorrar hlið- ar á vélinni. Vélin er framleidd með 8-, 10-, 14-, 16- og 18 strokkum. Hver strokkur framleiðir 125 hestöfl á stöðugri keyrslu með 800 snún/mín. Við hámarks snúningshraða, 825 snún/mín. framleiðir hver strokkur 135 hestöfl. Alpha skiptiskrúfan er að jafnaði framleidd með 3 skrúfu- blöðum úr nikkelálbronsi. Að jafnaði eru vélarnar af- greiddar með loftþrýstri fjar- stýringu frá stýrishúsi, og hægt er að afgreiða þær einnig með sjálfráða fyrir mannlaust vélar- rúm. Þessi gerð véla var sett á markaðinn árið 1969 eftir margra ára endurbætur. DEIJTZ vélar frá Hamri hf. Við smíði á vissum gerðum skipa er sú tilhneiging ríkjandi, að gera vélbúnaðinn sem allra fyrirferðarminnstan. Einkum á þetta við um vatnaskip, ferjur alls konar, farþegaskip, gáma- skip og fiskiskip. Þessi þróun mótast af hag- rænum óskum um að ná sem mestu lestarrými í hverju skipi undir arðbæran flutning. Þannig hafa hinar viðamiklu hæggengu díesel-vélar með beintengdum skrúfuás orðið að láta í minni pokann fyrir fjór- gengisdíselvélum með hraða- niðurfærslu á skrúfuás. Tvær aðferðir eru notaðar til að minnka fyrirferð véla sem mest, að fá sem mest afl úr sem minnstu rými: 1. Hækka meðalþrýstinginn. 2. Auka snúningshraðann. Yfirleitt er mikil forþjöpppun brennslulofts, sem hækkar með- alþrýstinginn, sú aðferð sem í dag er notuð til aflaukningar díeselhreyfla. Auk þess hefur með ýmsum aðferðum samfara tækniþróun- inni, svo sem með sérstökum efnablöndum, endurbótum á smur- og kælikerfum, styrkingu nobkurra vélarhluta o. s. frv., ekki aðeins tekizt að hækka meðalþrýstinginn, heldur hefur einnig reynzt unnt að auka snúningshraða díeselvélanna án þess að draga úr endingargæð- um þeirra. Almennt er í dag gerður greinarmunur á þremur snún- ingshraðasviðum: Snúningshraði frá 350- 600 snún/mín Snúningshraði frá 720-1000 snún/mín og Snúningshraði frá 1200-2000 snún/mín, sem hraðgengar há-orkuvélar hafa. I þessari grein munum við takmarka okkur við hraðasviðið 720-1000 snún/mín og ræða sér- staklega um BAM 528 vélagerð- ina frá DEUTZ. Þetta hraðasvið er hinn ör- uggi og gullni meðalvegur milli hæg- og hraðgangs, með fram- leiðslumöguleikum á mjög fyr- irferðarlitlum vélum með allt að 2500 hestafla orku. Meira en 10 ára frábær reynsla er komin á BAM 528- vélarnar sem aðalvélar í skip- um. Þær hafa 220 mm strokk- vídd, 280 mm slaglengd og því 10.65 lítra slagrými í hverjum strokki. Samfara tækniþróuninni hef- ur upphaflegi hámarkssnúnings- hraðinn verið aukinn úr 750 snún/mín upp í 1000 snún/mín, meðalþrýstingurinn hefur verið hækkaður og vélarorkan þann- ig aukin um 60%. Til viðbótar orku-aukning- unni bættist fyrir fáum árum tólf strokka vél í BAM 528-vél- arflokkinn. 12-strokka vélin hefur 48° horn milli strokka. Sveifarhúsið er steypt í heilu lagi með hangandi legustólum með hliðaropningu fyrir sveif- arásinn. Með þessu byggingar- lagi fær sveifarásinn þann bezta stuðning og styrk í sveif- arhúsinu sem hugsazt getur. Olíupannan er skrúfuð neðan á sveifarhúsið og er af ,,þurru“ gerðinni, þ. e. hún er safnpanna fyrir há- eða lággeyma. Á grundvelli þeirrar ágætu reynslu sem fengizt hefur af 12-strokka vélinni er um þess- ar mundir að hefjast framleiðsla á 16-strokka V-vél með sama byggingarlagi. Við 14,1 kp/cm2 hámarks- meðalþrýsting fæst 145 hestafla stöðug orka úr hverjum strokk allra BAM 528-vélanna miðað við 870 snún/mín. Við meiri snúningshraða, allt upp í 1000 snún/mín, er sömu strokkorku haldið, en meðalþrýstingurinn lækkaður tilsvarandi. Sam- kvæmt þessu hefur 16-strokka vélin 2320 hestafla orku við 900 eða 1000 snún/mín með 10%leyfilegri álagsviðbót. („A“ DIN 6270). Sem raf- stöðvarmótor er hann fáanleg- ur í eftirfarandi orkustærðum: 2560 hestöfl við 1000 og 900 snún/mín, 2200 hestöfl við 750 snún/mín og 2100 hestöfl við 720 snún/mín. Aflrými hverrar vélar er auð- velt að finna með því að deila uppgefinni stöðugri orku vél- ar í rúmtak hennar (lengd x breidd x hæð). Aflrými 16- strökka BA16M 528-vélarinnar reynist þannig vera 144 hö/m3 sem nálgast tilsvarandi rýmis- hlutfall fyrir hraðgengar há- orkuvélar, sem telst vera milli 160—290 hö/m3. Aflrýmishlut- fall nýtízku meðalhraðgengra FV 2 1973 75

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.