Frjáls verslun - 01.06.1973, Side 9
Mikil þensla er nú á
vinnumarkaðinum og
mjög víða vantar iðn-
aðarmenn. Af þessum sök-
um hefur kaup þessara
manna rokið upp úr öllu
valdi og svimandi háar
upphæðir eru í boði.
Þannig var trésmið boðið
170 þús. króna mánaðar-
kaup við framkvæmdir
utan Reykjavíkur fyrir
nokkru og átti hann að
auki að fá fríar ferðir um
helgar í bæinn. Þessu
hafnaði liann vegna þess
að allt átti að gefa upp
til skatts.
Þá höfum við heyrt, að
iðnaðarmenn, sem vinna
við að reisa hús á vegum
Viðlagasjóðs fái 60 þús.
krónur í vikulaun.
— • —
Vínveitingar í ráðherra-
veizlum hafa sætt nokk-
urri gagnrýni sem kunn-
ugt er og góðtemplarar
hafa heimtað kaffi og
kökur. Nú er Halldór E.
búinn að finna ráð við
vanda, því að í veizlum
hans ku það tíðkast nú
orðið, að fyrst sé boðið
upp á kokkteil, síðan séu
menn látnir drekka kaffi
og borða stóra og feita
rjómatertusneið. Svo er
hellt í glösin aftur. Þann-
ig getur Halldór sagt, að
hann veiti kaffi í sínum
móttökum.
Ríkisstjórnin og ein-
stakir stuðningsflokkar
eru í miklum vanda með
málsskotið til öryggis-
ráðsins vegna landhelgis-
deilunnar. Kannanir ís-
lenzkra diplómata vestan
hafs hafa nefnilega leitt
í Ijós, að tilgangslaust
muni vera að vísa mál-
inu þangað eftir það sem
á undan er gengið. Þann-
ig hafa t. d. ambassa-
dorar Júgóslavíu og Sov-
étríkjanna lijá Sameinuðu
þjóðunum sagt íslenzkum
sendimönnum, að von-
laust sé að reka málið í
öryggisráðinu úr því að
lialdið var framhjá AI-
þjóðadómstólnum.
Mótmæli vissra opin-
berra starfsmanna gegn
nýju fyrirkomulagi á
greiðslum fyrir gistingu
og mat á ferðalögum
vegna starfsins eiga sér
athyglisverða forsögu.
Það hefur nefnilega tíðk-
azt hjá sumum stofnun-
um, að menn hafa getað
ráðið því, hvort þeir
tækju dagpeninga eða
greitt væri fyrir þá sam-
kvæmt reikningi hjá hó-
telum og veitingastöðum.
Reglan mun hafa verið
sú hjá þessum starfs-
mönnum að taka dagpen-
inga, ef þeir sáu fram á
að geta fengið fría gist-
ingu í þeim starfsstöðv-
um, sem þeir heimsóttu
úti á landi og kannski frí-
an mat líka hjá vinum
og kunningjum, en ella
var skrifað upp á reikn-
inga hótela og veitinga-
staða og þá ekkert spar-
að við sig.
— • —
Nú mun nokkurn veg-
inn ákveðið, að stofnað
verður embætti frétta-
manns Ríkisútvarpsins í
Kaupmannahöfn. Á þetta
að verða fullt starf til að'
stuðla að betri fréttamiðl-
un frá ölluin Norðurlönd-
unum. Er gert ráð fyrir
að fréttamenn héðan,
hæði frá sjónvarpi og út-
varpi, skiptist á um að
gegna þcssu starfi í eitt
ár í senn. Ekki mun full-
ráðið, hver ríður á vaðið,
en sennilega verður það
einliver af fréttamönnum
sjónvarpsins.
— • —
Forstöðumenn Lands-
virkjunar eru nú á ferð
og flugi um allar álfur til
að ræða við þá aðila, sem
gerðu tilboð í fram-
kvæmdir við Sigöldu-
virkjun. Munu samningar
vera á næsta leiti og eru
það fyrirtæki í Júgóslavíu
og Frakklandi, sem helzt
koma til greina. Hefur
það júgóslavneska þó
gert hagstæðara tilboð og
athygli beinist mjög að
því. Alþjóðabankinn hef-
ur mælt með fyrirtækinu
eftir fyrri reynslu að
dæma, en helzta vanda-
málið í sambandi við
samninga við það eru at-
riði, sem snerta innflutn-
ing á vinnuafli til að taka
þátt í framkvæmdum.
— • —
Helztu úrlausnarefni,
sem bíða samstjórnar
flugfélaganna, eru á-
kvarðanir um flugvéla-
kaup. Loftleiðum hefur
staðið til hoða að kaupa
breiðþotu af gerðinni
Boeing 747 og veröur að
svara tilboði innan fárra
vikna. Flugfélag Islands
liefur átt í miklum erfið-
leikuin vegna verulegrar
aukningar á flutningum
og nægja tæpast þær tvær
Boeing 727 þotur, sem fé-
lagið á. Seinkanir í milli-
landafluginu hafa því
verið tíðar að undan-
förnu. Með því að Loft-
leiðir draga sig í hlé
á Norðurlandaflugleið-
inni, eins og búizt er við,
þarf Flugfélag íslands að
bæta við sig einni, ef ekki
tveim, Boeing 727 þotum
fyrir næsta sumar.
FV 6 1973