Frjáls verslun - 01.06.1973, Page 15
Fasteignamarkaður:
Sföðugt verðlag um
þessar mundir
Frá því á síðastliðnu hausti
og fram að því að gengis- og
vaxtahækkanir urðu hækkuðu
fasteignir verulega í verði, en
skömmu eftir náttúruhamfar-
irnar í Vestmannaeyjum varð
meiri eftirspurn eftir íbúðar-
húsnæði en verið hefur í nokk-
ur ár.
Að sögn Sverris Kristinsson-
ar, hjá fasteignasölunni Eigna-
miðluninni, hefur sannast sagna
orðið gífurleg hækkun á verði
íbúða og t. d. hefur góð þriggja
herbergja íbúð hækkað úr
tveim milljónum í þrjár millj-
ónir á einu ári. Þá mánuði, sem
hækkanir urðu mestar, hækk-
uðu góðar 3-4 herbergja íbúðir
um meira en 100 þús. krónur
á hverjum mánuði. Samsvar-
andi hækkun hefur orðið á
tveggja og fjögurra herbergja
íbúðum.
Aðspurður um verðlag á
stærra íbúðarhúsnæði sagði
Sverrir, að tiltölulega lítið
framboð hefði verið á því, —
fullbúin einbýlishús væru alls
ekki á markaði, en fokheld hús
væru fáanleg í Mosfellssveit, á
Flötunum í Garðahreppi og á
Álftanesinu. Þau kosta um 3
milljónir króna með bílskúr, en
það er bara „kassinn ófrágeng-
inn“ eins og Sverrir orðaði það,
ekki einu sinni gler í glugg-
um.
Sérhæðir af stærðargráðunni
140-150 fermetrar með bílskúr
leika á 5-6 milljónum í dag.
Menn hafa að sjálfsögðu leitt
ýmsum getgátum að því, hvers
vegna svo óvenjumiklar hækk-
anir hafi orðið. Við þeim vanga-
veltum er skýrt svar, sem sagt,
að auk hins óvenjulega ástands,
sem skapaðist hér innanlands
með tilliti til eftirspurnar eftir
húsnæði, eru það erlendar
hækkanir á byggingarvörum og
innlend verðbólga, sem hafa
ráðið.
Sverrir sagði, að í Reykjavík
væri brýnt nauðsynjamál að
fleiri lóðum væri úthlutað en
nú er gert. Aukið framboð á
þeim myndi örugglega stuðla
að meira jafnvægi á fasteigna-
markaðinum. Þá lét hann í ljós
skoðun á úthlutun einbýlis-
húsalóða, og taldi, að þær ætti
að selja á uppboði.
Fólk hefur greinilega nóg af
peningum milli handa, að sögn
Sverris. Algengast er, að út-
Sverrir Kx-istinsson.
borgun sé ekki minni en 60%
af verði í góðum eignum. Yfir-
leitt er nú miðað við að útborg
un skiptist á 4-6 mánuði há-
mark.
Að lokum spui-ðum við
Sverri, hvað hann myndi ráð-
leggja fólki varðandi sölu á
íbúðum eins og sakir standa.
Hann svaraði því til, að fram-
boð á íbúðum hefði aukizt
núna alveg nýlega og héldist
verð á þeim nokkuð stöðugt.
Þó ráðlagði hann fólki að selja
strax, ef það á annað borð væri
í slíkum hugleiðingum. Ekki
væri eftir neinu að bíða, enda
keypti fólk yfirleitt annað hús-
næði eða byggði, þegar það los-
aði sig við eldra húsnæði sitt.
islenzk fyrirfæki ’73 komin út
Nýlega kom út hjá Frjálsu
framtaki hf. handbókin ís-
lenzk fyrirtæki ’73. Er þetta
fjórða árið í röð, sem bókin
kemur út, og er hún að þessu
sinni um 800 blaðsíður, sem
er helmingsstækkun á tveim
árum.
í fox-mála bókarinnar seg-
ir m. a.:
„Að þessu sinni hefur
upplýsingabókin íslcnzk fyr-
irtæki stækkað verulega frá
fyrri útgáfu og er nú um
800 blaðsíður. Er um að
ræða helmingsstækkun á
tveim árum. Þessi árangur
er vísbending þess, að þörf
sé fyrir slíkt uppsláttarrit,
enda eru fyrirtækjaskrár
með áþckkum upplýsingum
mikils metnar í viðskipta-
löndum okkar. Það er skoð-
un útgefanda, að heppilegt
sé að safna saman á einn
stað öllum þeim upplýsing-
um um íslenzk fyrirtæki, fé-
lög og stofnanir, sem kostur
er á, og hafa í liandhægu
formi til uppsláttar fyrir þá,
sem þurfa. Þetta var grund-
vallarhugmyndin að þessari
bók, sem nú er orðin veru-
leiki.“
Við undirbúning og útgáfu
bókarinnar ferðuðust starfs-
menn um landið og öfluðu
upplýsinga í hana í sam-
vinnu við stjórnendur fyrir-
tækjanna.
Helztu nýjungar í bókinni
að þessu sinni eru sérstak-
ur kafli um félög, samtök
og stofnanir, svo og þáttur
um stjórnarráðið, Reykja-
víkurborg og sveitarfélög.
Þá er í fyrsta sinn fyrir-
tækjasímaskrá. Helztu kafl-
ar bókarinnar eru: Fyrir-
tækjasímaskrá, Vörumerkja-
skrá, Umboða- og vöruskrá,
Fyrirtæki í Reykjavík, Fyr-
irtæki úti á landi, Stofnanir
og félög, Stjórnarráðið,,
Reykjavíkurborg. í bókinni
er að finna allar helztu upp-
lýsingar um starfsemi þess-
ara aðila, stjórnendur og
starfsmenn.
FV 6 1973
15