Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1973, Page 25

Frjáls verslun - 01.06.1973, Page 25
blöðin, bátablöð, bílablöð og öll önnur tímarit um athygli starfsfólksins okkar,“ segir Sundling. „Ef fyrirtækið telur hollt að halda uppi tengslum við starfsfólkið með þessum hætti verður að gera það af kunnáttu." HVATNING OG VIÐURKENNING Enn birta ekki öll sænsk starfsmannablöð greinar er valdið geta ágreiningi að sögn Sören Bendrick, ritstjóra tíma- rits sænskra vinnuveitenda. „Sum blaðanna eru enn þurr og leiðinleg og túlka aðeins hugmyndir forstjórans“, seg- ir hann. ,.En mörg þau stær- stu eru góð og verða betri.“ Til þess að hvetja menn til frekari dáða í útgáfustarfsem- inni veita tímarit vinnuveit- enda og samband starfsmanna- blaða árleg verðlaun fyrir at- hyglisverðasta blaðið. Að þessu sinni er samkeppn- isefnið: vinnudagurinn, vanda- mál, umræðuefni í vinnunni og afstaða starfsmanna til fyr- irtækisins. Fyrstu verðlaun, sem veitt voru 1971 fyrir umdeildasta tímaritsefnið, runnu til Flákt Nytt, sem Svenska Fláktfa- briken gefur út á tveggja mánaða fresti. Ritstjóri blaðs- ins, Peter Hannix telur, að allt sem áhuga vekur, gott eða slæmt fyrir fyrirtækið eigi að birtast í blaðinu því að „skapa verður tímarit, sem starfsmennirnir geta treyst.“ Ritstjórinn verður að þjóna báðum í senn — yfirmönnun- um og starfsfólki og til þess þarf hann sjálfstæði. ABYRGÐIN Þó að ritstjórinn sé sjálf- stæður, þýðir það ekki, að hann geti látið eins og honum sýnist. Harald Bildt, ritstjóri Skip-Malmaren, sem gefið er út af námafyrirtæki rikisins, Lkab, segir: „Ég er ábyrgur. Ég tek ákvarðanir varðandi út- gáfu blaðsins. Að sjálfsögðu veit ég, hvað ekki á að birta og gæti skaðað fyrirtækið í samkeppni. Stjórnin gæti sagt mér að hypja mig en ég þekki grundvallarsjónarmiðin.“ Mjög brýnt er að gæta fyll- stu varúðar í birtingu efnis, því að starfsmannablöðin eiga stóran lesendahóp utan fyrir- tækjanna. Ab Skánska Cement- gjuteriet, stærsti bygginga- verktakinn í Svíþjóð, hefur um 22.000 menn í þjónustu sinni en blað fyrirtækisins Vi Cementgjutare, er gefið út í 40.000 eintökum. Starfsmenn, hluthafar, dagblöð. embættis- menn ríkis og sveitarfélaga og allir aðrir sem þess óska fá blaðið. Þessi breiði lesenda- hópur sá fyrir nokkru við- tal við trésmið í blaðinu og sagðist sá kunna vel við sig í starfi nema hvað honum óaði við pví hve illa öryggisreglum væri íramfylgt á staðnum. Flest fyrirtækin líta á þessa miklu útbreiðslu blaðanna sem sjálfsagðan hlut, og þau birta oft mikilsverðar upplýsingar um starfsemi og almenn við- skipti í blöðunum. Eitt fyrir- tækið, Svenska Cellulosa, eitt hið stærsta í sænska timbur- iðnaðinum, fær jafnvel inn peninga upp í nokkurn hluta af kosnaði við útgáfuna með því að selja auglýsingar í starfsmannablaðið. KZ STÁLREKKAR EGGERT KRISTJÁNSSON & CO. HF. Sundagörðum 4 - Sími 85300 Hin fullkomna og hagkvæma lausn á geymsluvandamáli yðar. Hleðsluþungi eftir þörfum hvers og eins. Sjón er sögu ríkari. KZ stálrekkar i notkunn í vörugeymslu okkar að Sundagörðum 4, Rvik. FV 6 1973 25

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.