Frjáls verslun - 01.06.1973, Blaðsíða 45
Reykjavík:
Framkvæmdir komnar í fullan
gang í Stóragerðishverfinu
I vetur var úthlutað lóðum fyrir einbýlis- og fjölbýlishús í svonefndu Stóragerðisbverfi
í Reykjavík. Umsóknir voru margfalt fleiri en Ióðirnar, sem til ráðstöfunar voru. Þóttu þeir
hafa dottið í lukkupottinn, sem fengu úthlutun, enda er staðurinn hinn ákjósanlegasti, út-
sýni gott og fjarlægð frá miðbæjarkjarnanum mun minni en gerist í öðrum nýjum hverfum.
Nú er verið að byggja af krafti í þessu nýja borgarhverfi og FV leitaði fregna hjá þremur
aðilum af framkvæmdum á þeirra vegum.
IMíu hæða
hús Oskars
og Braga
Verktakafyrirtækið Óskar og
Bragi sf. er annað tveggja verk-
takafyrirtækja, sem fengu út-
hlutað lóð undir háhýsi, eitt af
þremur, í Stóragerðishveríinu.
Þetta verður 9 hæða hús með
43 íbúðum, sem allar eru frek-
ar stórar, eða milli 120 og 130
fermetrar auk geymslu og sam-
eignar, sem er töluverð. Þetta
er stærsta verkefnið, sem þeir
félagar hafa fengizt við til
þessa að sögn Óskars Jónsson-
ar.
Sameignarfélagið var stofnað
fyrir um 11 árum og hefur
byggt á annað hundrað íbúðir
í fjölbýlishúsum víða í Reykja-
vík. íbúðirnar selja þeir sjálf-
ir og sagði Óskar, að eftirspurn
væri mikil eftir íbúðum í há-
hýsinu, sem þeir eru langt
komnir með að selja. Þetta er
í fyrsta skipti, sem þeir félagar
vísitölutryggja kaupverð íbúða
og er það gert þannig, að þeir
fá greiddan helming hækkunar
byggingarvísitölu á byggingar-
tímanum að undanskilinni
fyrstu útborgun.
Sagði Óskar það slæmt að
þurfa að selja íbúðimar svona
snemma, en þeir neyddust til
þess, þar sem þeir hefðu ekki
Félagarnir Óskar og Bragi í byggingu sinni, sem nú er að rísa í
Stóragerðishverfinu. Hún verður 9 hæðir og eru íbúðirnar seldar
einstaklingum. Útsýni er hið fegursta yfir Fossvoginn og verður
ekki amalegt um að litast úr íbúðunum á efstu hæðum.
FV 6 1973
45