Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.06.1973, Side 51

Frjáls verslun - 01.06.1973, Side 51
Hið nýja Snælandshverfi í Kópavogi á skipulagsuppdrætti. Það mun rísa norðan Nýbýlavegar og verða þar hátt á sjötta hundrað nýjar íbúðir í húsum af ýmsum stærðum. öðrum áfanga menntaskólans, sem er heimavist og mötuneyti, og í sumar er fyrirhugað að dýpka innsiglinguna til hafnar- innar. Þá er verið að teikna og undirbúa að öðru leyti byggingu heilsugæzlustöðvar á ísafirði, sem auk kaupstaðarins mun þjóna Súðavíkurhreppi og Suð- ureyrarhreppi. Á ísafirði er al- mennur skortur á lærðum iðn- aðarmönnum. Sauðárkrókur: Sauðárkróksbúar eiga við húsnæðisskort að glíma þó að þar séu nú um 30 íbúðir í smíðum í ein- og tvíbýl- ishúsum og lokið hafi ver- ið smíði um 30 íbúða í fyrra. Sauðárkrókskaupstaður hefur til úthlutunar all mikið af lóð- um undir íbúðir á Sauðahæðum og er búið að leggja stofnlagnir í það hverfi. Sláturhús er í byggingu á Sauðárkróki. Á það að vera til- búið til notkunar nú í haust. Þetta er stórt hús, eða 2200 m- auk 450 m2 frystihúss, sem inn- angengt er í. í tengslum við þessi hús er svo 900 m2 vörugeymsla og fjárrétt, og er það stálgrind- arhús. Sláturhús þetta er byggt fyrir sömu afköst og sláturhúsið í Borgarnesi eða 3000 kindur á dag. Öll hönnun er miðuð við kröfur á Bandaríkjamarkaði. Verið er að leggja nýja vatns- veitu í kaupstaðinn. Er það dýja- veita úr landi Veðramóts og mun þjóna hinu nýja sláturhúsi og síðan kaupstaðnum öllum. í sumar verður byrjað að byggja nýjan flugvöll fyrir Sauðárkrók austur við Héraðs- vötn. Áframhald verður á stækkun gagnfræðaskólans og verið er að vinna við að koma upp gufubaði í sundhöllinni og er það lokaáfangi hennar í bili. Þá verður að vanda unnið að gatnaframlrvæmdum. Húsavík: Húsavík fer ekki varhluta af húsnæðisskortinum. Þar eru þó nú í smíðum alls milli 60 og 70 íbúðir, mismunandi langt komn- ar. Flestar eru þær í ein- og tvi- býlishúsum en verið er að byrja á 3 raðhúsum með alls 15 íbúð- um og 1 stigahúsi í fjölbýlishúsi þar sem verða 5 íbúðir. Mikill skortur er þar á vinnuafli jafnt til bygginga og annarrar vinnu. Þar er nú verið að ljúka smíði gistihúss með 34 herbergjum. Er það byggt við félagsheimilið og verður matsalur þess notaður fyrir gistihúsið. Áætlað er að opna þetta nýja gistihús í þess- um mánuði. Einnig er enn unnið við félagsheimilið en smíði þess er nú langt komin. Þá tók Landsbanki Islands nýtt hús í notkun á Húsavík fyrir skömmu og gagnfræðaskóli var tekinn í notkun um áramótin síðustu. Á Húsavík er nú verið að smíða safnahús, sem rúma mun bókasafn, væntanlega byggða- safn og fleiri söfn. Tvö trésmíða- verkstæði eru í byggingu á Húsavík, hjólbarðaverkstæði og smurstöð og verið er að byggja frystigeymslur fyrir fiskverkun- arhús Fiskiðjusambands Húsa- víkur. Þá er Kaupfélag Þingey- inga að endurbyggja að mestu tvær efstu hæðir kaupfélags- hússins á staðnum. Neskaupstaður: Verð á íbúðarhúsnæði í Nes- kaupstað, sem selt hefur verið nýlega, hefur hækkað mjög mik- ið að sögn bæjarstjórans þar, Bjarna Þórðarsonar. Húsnæðis- ekla er mikil í bænum og eitt mesta hagsmunamál bæjarins er að hraða byggingarframkvæmd- um. Þar eru nú í smíðum 19 íbúðir auk 16 íbúða í verka- mannabústöðum, sem verið er að ljúka við. Það sem af er árinu hefur verið veitt leyfi í Neskaupstað fyrir 26 einbýlishúsum, þar af 8 til Viðlagasjóðs og verða það fyrstu hús í nýjubyggðarhverfi, Bakkahverfi, sem er austan nú- verandi byggðar. Vinnuafls- skortur er tilfinnanlegur í Nes- kaupstað og stendur byggingar- framkvæmdum fyrir þrifum. Nokkrar lóðaumsóknir eru enn óafgreiddar og býst bæjarstjórn við mörgum viðbótarumsóknum í sumar, m. a. frá stjórn verka- mannafélagsins um byggingu nýs 6 íbúða húss. Auk byggingar íbúðarhúsnæð- FV 6 1973 51

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.