Frjáls verslun - 01.06.1973, Page 56
Nú getið þér leigt stóran, rúmgóðan og
traustan bíl í ferðalagið.
Bökum framsæta má Kalla aftur á bak, þannig
að sofa má í bifreiðinm.
Rúmgott farangursrými.
Bílaleigan TRAUSTI SF.
ÞVERHOLTI I5A — SÍMI 25780
Breiðholt h.f., Lágmúla 9.
Breiðholt h.f. er nú að hefja
framkvæmdir við 6. og síðasta
áfanga fyrir Framkvæmda-
nefnd byggingaráætlunar í
Breiðholti. í þessum áfanga eru
314 íbúðir, sem eiga að steypast
upp á einu ári, og er ætlunin,
að. þeim verði lokið í ársbyrjun
1975. Þeir eru nú að ljúka við
5. áfanga Framkvæmdanefnd-
ar, sem er 200 íbúðir og einnig
eru þeir að ljúka við 38 íbúðir
við Æsufell, sem þeir hafa
sjálfir reist og selt. Á vegum
Breiðholts h.f. er nú langt kom-
ið smíði tveggja háhýsa við
Kriuhóla. Eru þetta átta hæða
hús og eru 46 íbúðir í hvoru
húsi, sem búist er við að verði
afhentar í janúar og apríl á
næsta ári og verði þá alveg til-
búnar. Standa nú yfir samn-
ingsviðræður milli Breiðholts
h.f. annars vegar og Rauða
Kross íslands, Viðlagasjóðs,
Vestmannaeyjabæjar og Hjálp-
arstofnunar kirkjunnar hins
vegar um kaup á öðru húsinu
fyrir Vestmannaeyinga. Sagði
Sigurður Jónsson skrifstofu-
stjóri hjá Breiðholti okkur, að
allt miðaði í samkomulagsátt
og yrði kaupverð þá líklega ná-
lægt 100 milljónum króna.
Hann sagði, að Breiðholt h.f.
vildi ekki selja, nema gegn því
að þeim yrði útveguð lóð undir
hús sömu stærðar og standa
samningaviðræður yfir um það
og væri útlit fyrir að sú lóð
fengist. Breiðholt h.f. rekur eig-
in steypustöð og selur eitthvað
þaðan steypu til annarra.
Brún h.f., Suðurlandsbraut
10. Þar töluðum við við Tómas
Sveinsson skrifstofustjóra, sem
sagði okkur, að aðalverkefni
fyrirtækisins væru við hita-
veitulögn frá Reykjum í Mos-
fellssveit til Reykjavíkur. Væri
nú unnið við seinni hluta þess
verks og væri áætlað, að vatni
yrði hleypt á þessa nýju lögn
í haust, en endanlegum frá-
gangi við stokkinn lyki þó vart
fyrr en á næsta ári. Þá hefur
Brún h.f. unnið að jarðganga-
gerð fyrir fótgangandi undir
Digranesveg í Kópavogi. Er lok-
ið við göngin vestan vegarins,
en verið að byrja að austan-
verðu. Einnig er verið að ljúka
við gerð stoðmúrs í klöppina
við hinn nýja Hafnarfjarðar-
veg. Þá er unnið við að byggja
eina hæð ofan á Félagsheimilið
í Kópavogi og er gert ráð fyrir
56
FV 6 1973