Frjáls verslun - 01.06.1973, Qupperneq 59
Byggðahverfi í Garðahreppi,
en fyrirtækið íbúðaval h.f.
ætlar að reisa þar heilt hverfi
til endursölu. Hófst vinna við
þetta í fyrra og gerir áætlun
ráð fyrir, að hverfið verði að
fullu risið á árinu 1975. Hlað-
bær hefur einnig unnið nokkuð
við Hafnarfjarðarveginn fyrir
Kópavogsbæ og gerir einnig í
ár.
ístak h.f., Suðurlandsbraut 6.
— Fyrirtækið tók nú alveg ný-
lega að sér að leggja 2% kíló-
meters viðbót við Vesturlands-
veg, eða 5. áfanga, en sá kafli
liggur undir Esjunni, og er ætl-
unin að þessum áfanga verði
lokið í haust, að því er Páll
Sigurjónsson, verkfræðingur og
forstjóri, sagði okkur. Þá er
verið að hefjast handa við
byggingu nýs orkuvers við
Mjólkárvirkjun, sem búist er
við að verði fullbúið á árinu
1975. Þetta er verk upp á 150
milljónir króna. ístak h.f. mun
í sumar halda áfram gerð
gangna í Oddsskarði, sem byrj-
að var á í fyrra. Þá er verið að
ljúka við síðasta hluta Vatns-
fellsveitu við Þórisvatn og unn-
ið er að lokafrágangi vegarins
á Hellisheiði og við Urriðavatn.
í sumar verður einnig unn-
ið við gatnaframkvæmdir í
Grindavík og áframhald verð-
ur við smíði dósaverksmiðju í
Kópavogi.
Jarðvinnslan s.f., Síöumúla
25. Fyrirtækið stundar mest
vinnuvélaleigu og hefur til
þess flestar stærðir af vökva-
gröfum svo og jarðýtur. Verk-
efnin eru aðallega á Stór-
Reykjavíkursvæðinu. — Fram-
kvæmdastjóri Jarðvinnslunnar
s.f. er Pálmi Friðriksson.
Jarðýtan s.f., Árniúla 40. —
Framkvæmdastjóri Jarðýtunn-
ar, Óli Pálsson, gaf þær upp-
lýsingar, að helztu verkefni
fyrirtækisins væru við gatna-
gerð og fleira fyrir Reykjavík-
urborg, Garðahrepp og Sel-
tjarnarneshrepp. Einnig verk-
efni í tengslum við byggingar-
framkvæmdir, t. d. hjá Eim-
skipafélagi íslands, Breiðholti
h.f. og mörgum fleiri aðilum,
svo og lóðalagfæringar. Fyrir-
tækið rekur 9 jarðýtur, 12-26
lesta, 4 þungaflutningabifreiðir
með tengivögnum og vibrovalt-
ara, og getur því séð fyrir al-
hliða þjónustu við gatna- og
jarðvinnuframkvæmdir.
Loftorka s.f., Hólatorgi 2. —
Sigurður Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri tjáði okkur í
samtali, að fyrirtækið ynni nú
við gatna- og holræsagerð í nýj-
um byggðaráfanga í Norður-
bænum í Hafnarfirði fyrir
Hafnarfjarðarbæ og myndi
skila götunum tilbúnum undir
malbik. Þeir gera ráð fyrir að
ljúka verki þessu nú í sumar,
en það hófst í marz síðastliðn-
um. Um sama leyti gerir fyrir-
tækið ráð fyrir að ljúka lagn-
ingu aðalræsis fyrir Norðurbæ-
inn, sem byrjað var að vinna
við í febrúar. Loftorka s.f. sér
einnig um að sprengja klöpp,
mylja hana og flytja til grjót-
mulningsstöðvar Reykjavíkur-
borgar. Grjótnámið er í Selásn-
um og eru það um 60.000 lestir
af möl, sem Loftorka sér stöð-
inni fyrir árlega. Þá hefur fyr-
irtækið með höndum ýmsar al-
mennar jarðvinnuframkvæmd-
ir fyrir byggingarmeistara víða
á Reykjavíkursvæðinu.
Málaraverktakar s.f., Blóm-
vangi 9, Hafnarfirði. Þar hitt-
um við að máli Gísla Svein-
bergsson, sem sagði að nú væri
mikið að gera við málun fjöl-
býlishúsa að utan víðs vegar
um Reykjavík. Væri nú verið,
til dæmis, að byrja á einni átta
hæða blokk í Reykjavík og auk
þess á húsi Kaupfélags Hafn-
firðinga í Hafnarfirði. Einnig
væri á þeirra vegum verið að
mála Heild, hús heildsala við
Klettagarða í Reykjavík.
Norðurverk h.f., Kaupvangs-
stræti 4, Akureyri. — Þar hitt-
um við að máli Árna Árnason
forstjóra, sem sagði okkur, að
fyrirtækið ynni nú svo til ein-
göngu við virkjanirnar, sem
kenndar eru við Lagarfoss og
Laxá. Laxárvirkjunin á að
verða tilbúin í ágúst og er nú
verið að ljúka við síðustu verk-
in, svo sem inn- og úttaksmann-
virki og ýmislegt smávegis. Við
Lagarfossvirkjun er verið að
steypa upp stöðvarhús og
þrýstipípur og verið er að vinna
beina mun Lagarfljóti undir
nýja brú, sem einnig er verið
að vinna við smíði á. Með til-
komu hennar opnast nýr hring-
vegur um Hérað fram hjá
Kirkjubæ og Lagarfljót mun
einnig hljóta nýjan farveg und-
ir þessa brú. Áætlaður kostnað-
ur Norðurverks h.f. við Lagar-
fljótsvirkjunina er um 100
milljónir króna.
Sigurður Björnsson, Tómas-
arhaga 41. Hann sagði okkur
að sitt aðalverkefni væri smíði
rað- og einbýlishúsa í svoköll-
uðum Lundum í Garðahreppi.
Væru það um 12 raðhús og
nokkur einbýlishús, sem unnið
væri við núna og ættu að klár-
ast á árinu. Hús þessi selur Sig-
urður síðan fokheld að innan,
en fullbúin að utan. Auk þess
er á hans vegum verið að reisa
hús yfir nokkrar spenni- og
aðveitustöðvar fyrir Rafmagns-
veituna.
Sveinbjörn Runólfsson, Álfla-
mýri 58. — Verktakafyrirtækið
vinnur nú að gatna- og hol-
ræsagerð í Seljahverfi í Breið-
holti. Hófst sú vinna í síðasta
mánuði og á henni að vera lok-
ið 1. nóvember í haust. Þá er
verið að ljúka frágangsvinnu
við Vesturlandsveg, ganga frá
vegaköntum og þess háttar og
mikið er að gera við húsgrunna
fyrir einstaklinga víða á
Reykj avíkursvæðinu.
Vélaleiga Steindórs, Breið-
höfða G-10. Steindór Sighvats-
son forstjóri sagði í viðtali að
FV 6 1973
59