Frjáls verslun - 01.06.1973, Page 73
Bandaríkin
Styttri vinnutími —
auknar tómstundir
Vestan hafs er síaukin áherzla lögð á að skapa aðstöðu til
tómstundastarfa og ferðalaga fólks. Megum við Islendingar
margt af þeirri stefnu læra.
• Flestir Bandaríkjamenn vinna færri en 230 daga á ári.
• Fjörutíu milljónir Bandaríkjamanna eiga þriggja vikna frí á
ári hverju.
• Svo til allir fá þriggja daga frí fimm helgar á árinu, auk þess
þrjá til átta viðbótarfrídaga.
• Um 2500 fyrirtæki hafa tekið upp fjögurra daga vinnuviku.
• Milljónir Bandaríkjamanna vinna ekki nema 35-36 klst. vinnu-
viku.
• Hlutfallstala þess fólks, sem hættir störfum, áður en 65 ára
aldri er náð, vex stöðugt.
• Bandarískur þegn, sem fæðist í dag, má búast við að ná 71
árs aldri.
Veitum þessum staðreyndum
fyrir okkur stundarkorn, og
okkur verður ljóst, að tóm-
stundir fólks í Bandaríkjunum
eru ótrúlega margar. Framleið-
endum leiktækja og annarra
hluta til notkunar í tómstund-
um, er fyllilega ljós þessi stað-
reynd, enda er sívaxandi fram-
boð af slíku, síendurbættar vör-
ur koma fram í dagsljósið, svo
neyzluþjóðfélagið geti notið
tómstundanna til hins ýtrasta.
Áætlað hefur verið, að fé
það, er almenningur eyðir til
tómstundaiðju, tækja og tóm-
stunda aukist um 7,6% á ári
hverju, og að bandaríska þjóð-
in eyði milli 40 og 140 milljörð-
um dollara í því skyni.
Það stórkostlegasta, sem enn
þekkist á þessu sviði, eru ævin-
týraheimarnir Disneyland í
Kaliforníu og Disney World í
Florida, þar sem hægt er að
finna hvaðeina, er hugurinn
girnist til skemmtunar.
Framleiðendur stefna mark-
visst að því að veðráttan fái
ekki að hafa áhrif til að draga
úr fólki kjarkinn, ef það Jang-
ar til að stunda einhverja
ákveðna íþrótt.
Hallir og salir eru byggð
með plastyfirbreiðslum, sem
sumum hverjum er haldið uppi
með heitum loftblæstri, og þar
er hægt að stunda sumaríþrótt-
ir að vetrum eða vetraríþróttir
á sumrin allt eftir geðþótta.
Veiðar hafa löngum verið
vinsælar í Bandaríkjunum eins
og víðar. Þar er þó orðið lítið
um landrými svo og dýr eða
fiska til að veiða. Því hafa
landeigendur í vesturríkjum
Bandaríkjanna tekið upp það
ráð að girða af stór landsvæði
t. d. fjalllendi og flytja þangað
dýr eins og antilópur, birni og
önnur vinsæl veiðidýr. í Texas
eru seld leyfi til að veiða inn-
fluttar antilópur og innifalið í
leyfinu er dvöl í veiðiskála og
máltíðir þar. Fiskveiðileyfi í
ám og vötnum verða sífellt
vandfundnari og dýrari innan
Bandaríkjanna og því leita
áhugamenn í þeirri íþrótt mik-
ið til annarra landa.
ÚTILEGUR VINSÆLAR
Sú tómstundaiðja, sem á
hvað mestum vinsældum að
fagna í Bandaríkjunum um
þessar mundir, eru útilegur.
Megnið af því fólki, er stund-
ar þá tómstundaiðju, liggur þó
ekki úti í bókstaflegum skiln-
ingi heldur dx-egur á eftir sér
hjólhýsi. Talið er, að um fimm
milljónir hjólhýsa séu í notkun
í Bandaríkjunum í dag og fer
tala þeirra ört vaxandi. Ýmis
fyrii’tæki hafa líka risið upp til
að þjóna þessu hjólhýsafólki.
Koma þau upp svæðum fyrir
fólk til að leggja þessum úti-
leguhúsum á, en inni á svæðinu
er svo að finna alls konar tæki
til skemmtunar. Má þar nefna
sundlaugar, golfvelli, skemmti-
sýningar á sviði, auk gæzlu-
stöðva fyrir börn að ógleymd-
um alls konar matsölustöðum
og dansstöðum, bæði dýrum og
ódýrum.
Dýrustu hjólhýsin á markað-
inum í dag kosta á þriðju millj-
ón íslenzkra króna og enn
íburðarmeiri hjólhýsi munu
vera á teikniborðum víða um
landið.
MIKLU EYTT í FERÐALÖG
Bandaríkjamenn eyða geysi-
fé árlega í ferðalög, en erfitt
er að áætla hve miklu, þar sem
erfitt er að skilgreina hugtakið
ferðalag nákvæmlega. Ef tekið
er meðaltal 10 áætlana þar um,
má gera ráð fyi'ir, að upphæð-
in sé um 40 milljónir Banda-
ríkjadollara árlega.
Eyðslufé almennings í Banda-
ríkjunum er talið vaxa um
7.2% ái’lega. Þar sem barna-
fjöldi hverrar fjölskyldu fer
stöðugt minnkandi verður sí-
aukið eyðslufé fyrir hendi
handa æ fæi’ra fólki. Þetta
ásamt silækkandi vinnustr 'da-
fjölda þýðir, að tómstundh og
eyðslufé mun vaxa að mun og
að þörfin fyrir framboð á tóm-
stundagamni fer sívaxandi.
FV 6 1973
73