Frjáls verslun - 01.06.1973, Page 74
ÝMSAR ÍÞRÓTTAGREINAR
íþróttir eiga vaxandi fylgi að
fagna í Bandaríkjunum. Hjól-
reiðar eru ef til vill sú grein
þeirra, sem er í hvað örustum
vexti, því að á síðasta ári seld-
ust fleiri reiðhjól í Bandaríkj-
unum en bílar eða 11.5 milljón.
Nokkur fylki hafa lagt áherzlu
á að leggja sérstakar brautir
fyrir hjólreiðafólk og má nú
t. d. komast um allt Wisconsin-
fylki eftir slíkum brautum.
Flest eru reiðhjólin tvíhjól, en
húsmæður á innkaupaferðum
og fullorðið fólk kaupir þó í
vaxandi mæli þríhjól til sinna
ferða. Algengustu reiðhjólin á
Bandaríkjamarkaði í dag kosta
225 dali og hafa þau 10 gang-
hraðastillingar.
TENNIS — VINSÆL ÍÞRÓTT
Tennisíþróttinni vex einnig
stöðugt fylgi, og er jafnvel tal-
ið, að hún hafi nú forskot fram
yfir golfið. Kemur þar sjálfsagt
til að einfaldara er að leika
tennis og auk þess er það ódýr-
ara og ekki eins tímafrekt.
Tennisvellir búnir öllum hugs-
anlegum þægindum rísa ört
upp í borgum Bandaríkjanna og
ýmis afbrigði hins hefðbundna
tennis hafa litið dagsins íjós
að undanförnu.
Kostnaður við golfíþróttina
vex stöðugt, landið er dýrt og
háir skattar eru lagðir á klúbb-
húsin, sem reist eru við góða
golfvelli. Má því telja, að þetta
sé orðin íþrótt hinna vel efn-
STARFSEMI FERÐASKRIF-
STOFA BLÓMGAST
í dag er talið, að 50 milljónir
Bandaríkjamanna fari a. m. k.
einu sinni á ári í ferðalag, sem
tekur 10 daga eða meira. Þessi
staðreynd hefur sannfært fyr-
irtæki eins og American Ex-
press, Holiday Inns, Hilton,
Sheraton og fleiri um, að það
sé góð og viturleg fjárfesting
að reisa gististaði fyrir Banda-
rikjamenn í öðrum löndum.
Einnig blómgast starfsemi
ferðaskrifstofa, sem skipuleggja
Erfitt er að fá veiðileyfi í Bandaríkjunum, en menn sækja þcim
mun meira til útlanda í veiðiferðir. ísland er þar engin undan-
tekning.
Hjólhýsin eru orðin mjög algeng í Bandaríkjunum og þykja sjálf-
sögð í útilegum.
Einnig þýðir þetta, að fólkið
ferðast meira og meira og til
fjarlægari og sérkennilegri
staða.
Ekki er búizt við, að hinn
almenni ferðamaður noti hrað-
fleygari flugvélar til ferðalaga
í framtíðinni heldur að hann
muni setjast upp í stærri vélar
en nú þekkjast og rúma ef til
vill 1000-1500 farþega. Langar
sjóferðir, lestarferðir og ferðir
í langferðabílum eru ekki álitn-
ar munu verða vinsælar í fram-
tíðinni.
Skemmtisiglingar eiga aukn-
um vinsældum að fagna í
Bandaríkjunum. Hið rólega líf
um borð í skemmtiferðaskipi
um eyjar Karíbahafs dregur að
sér fjölmarga Bandaríkjamenn
árlega og sömuleiðis siglingar,
sem hefjast í höfnum á vestur-
strönd landsins og flytja fólk
um Kyrrahafið. Talið er, að
þjóðin eyði um einni billjón
dollara í slíkar siglingar á ári.
stuttar, 3-4 daga ferðir, fyrir
fólk, sem kýs heldur margar
ferðir árlega en eina langa.
Leiguflug með hópa fólks mun
aukast að mun, því að þau eru
yfirleitt ódýrari en áætlunar-
flug flugfélaganna. Álitið er, að
slíkar ferðir muni vekja áhuga
hins almenna verkamanns og
annarra stétta, er hingað til
hafa tæplega haft efni á löng-
um ferðalögum. Verði slíkar
ferðir þá seldar á föstu verði,
þar sem innifalin er gisting og
matur.
74
FV 6 1973