Frjáls verslun - 01.06.1973, Blaðsíða 91
Blikksmiöjan Sörli hf.
Framleiðir plokkunarvélar
fyrir humar og rækju
Á Hvolsvelli er starfandi eina blikksmiðjan á öllu Suður-
landsundirlendinu. Það er Blikksmiðjan Sörli h.f. og er fram-
kvæmdastjóri hennar Hörður Helgason.
Fyrirtækið var stofnað í
Reykjavík árið 1957 ogvar þátil
húsa í Skúlatúni 4, en vegna sí-
vaxandi viðskipta við fyrirtæki
og einkaaðila á Suðurlandi var
ákveðið að flytja starfsemina til
Hvolsvallar árið 1971 og að sögn
Harðar hafa viðskiptin aukizt
að mun við flutninginn.
Biikksmiðjan Sörli h.f. fæst í
síauknum mæli við smiðar á
fiskvinnsluvélum í samvinnu
við Árna Ólafsson og Co á Suð-
urlandsbraut 12 í Reykjavík.
Eru það aðallega plokkunarvél-
ar fyrir humar og rækjur. Þá
er í blikksmiðjunni smíðað mjög
mikið af þakrennum og loft-
ræstikerfum sem m. a. eru mik-
ið seld til Reykjavíkur og við-
ar um land svo og fataskápar
fyrir starfsfólk í verksmiðjum,
sem seldir eru um allt land.
Ýmsar vélasmíðar og aðrar
smíðar fyrir slátur- og frystihús
eru einnig framkvæmdar þarna
og ýmis konar þjónusta við
byggðarlögin í kring. Að sögn
Harðar var ein mesta breyting-
in við flutninginn til Hvolsvall-
ar sú, að fyrirtækið gat snúið
sér meira að smíðum og stærri
verkefnum. því að þarna er
minni þörf fyrir viðgerðir og
aðra þjónustu en í Reykjavík,
þó að blikksmiðjan annist að
sjálfsögðu þá þjónustu, sem þörf
er fyrir.
Hjá Blikksmiðjunni Sörla h.f.
vinna 7 manns. Fyrirtækið er nú
í leiguhúsnæði en hefur fengið
úthlutað lóð undir nýtt hús í
kauptúninu, en ekki hefur verið
ákveðið hvenær hafizt verður
handa um byggingu þess.
Verkfæri & Járnvörur hf.:
Ný gerð málbanda á markaðinn
Verkfæri og járnvörur h.f.
hefur nýlega hafið innflutning
á nýtízkulegum málböndum
fyrir iðnaðarmenn frá fyrirtæk-
inu Weller í Þýzkalandi.
Málbönd þessi eru létt og
þægileg í notkun, því að þau
eru í hörðum plastkassa í há-
rauðum lit og á enda málbands-
ins er stykki, sem hindrar að
endinn tapist inn í kassann og
gerir mjög auðvelt að grípa til
málbandsins.. Sjálft málbandið
er húðað með plastefni, sem ver
það og er auðvelt að lesa af
því. Málbönd þessi eru með
vörumerkinu „Lufkin Special11
og fást þau í mörgum lengdum:
15, 20, 25 og 30 metra.
FV 6 1973
91