Frjáls verslun - 01.09.1973, Síða 9
i stuttn máli
• Vænkast hagur
I nýjustu þjóðliagsspá hagrannsókna-
deildar Framkvæmdastofnunar er gert
ráð fyrir 3,5% aukningu þjóðarfram-
leiðslu árið 1973, cn 5,5% aukningu
þjóðartekna. Að síðari talan er hærri má
rekja til bættra viðskiptakjara. Aukn-
ingin er nokkru meiri en spáð var í upp-
hafi ársins. Stafar þetta ekki sízt af
hækkun fiskafurða á erlendum markaði,
sem meira en vegur upp hækkun að-
fanga og neyzluvara.
• Álútflutningur eykst
Alvcrksmiðjan starfar nú með fullum
afköstum. Fyrstu 5 mán. ársins var flutt
út fyrir meira en tvöfalt andvirði út-
flutnings á sama tíma i fyrra. Nam út-
flutningurinn fyrstu 5 mán. ársins 18,1
% af heildarútflutningi, en nam 13,6%
á sama tíma í fvrra.
9 Dollarar og fílar
Mikil sókn cr nú í filatennur. Vilja
margir skýra þetta með óvissunni á al-
þjóðagjaldeyrismarkaði og ekki sízt falli
dollarans. Mikil brögð hal'a verið að því
upp á siðkastið, að fílar hafi verið veidd-
ir í ólevfi.
# 10 punktar til IMixons
Senn líður að viðræðum milli Efna-
hagsbandalags Evrópu og Bandaríkj-
anna um utanríkisviðskipti. Á utanríkis-
ráðherrafundi landa Efnahagsbanda-
lagsins i Kaupmannahöfn fyrir skömmu
var saminn 10 punkta listi, sem senda
á Nixon til þess að hann geti undirbúið
menn sína betur undir viðræðurnar.
Byrjað mun á að ræða samskipti land-
anna almennt, fjallað verður um helztu
viðskiptásvið og stefnu EBE gagnvart
„þriðja heiminum“.
9 Breyttar innritunartölur
Heldur færri hafa innritazt í Háskóla
Islands en í fyrra. Sömuleiðis eru all-
miklu færri innritaðir í læknadeild, við-
skiptadeild og við námsbraut i almenn-
um þjóðfélagsfræðum. Flestir koma eft-
ir sem áður í heimspekideild og verk-
fræði- og raunvísindadeild. Talsverð
aukning hefur orðið á aðsókn að laga-
deild.
9 Stöðnun á leiguflugmarkaði
á IMorðurlöndum
Andstætt því sem er um íslenzkar
leiguflugferðir á vegum ferðaskrifstof-
anna, virðist vera nokkur stöðnun á öðr-
um Norðurlöndum. Deilt er um ástæð-
urnar fyrir ])essu, en einkum er nefnt,
að sumarið hefur verið með afbrigðum
gott á Norðurslóðum.
9 Umsvif aukast h]á Cargolux
Cargo.lux hefur tekið á leigu þotu til
vöruflutninga milli Hong Kong og Ev-
rópu. Virðast vöruflutningarnir farnir
að hera áþreifanlegan árangur, en það
tók að sjáll'sögðu nokkurn tíma að vinna
sér markað og finna hagkvæmustu
ferðatilhögun. Sömuleiðis virðist, sem
hinar miklu árstiðasveiflur i þessu flugi
verði tiltölulega minni í ár en tíðkazt
hefur.
# Spítalamatur
Ríkið fyrirlmgar að leysa mötuneytis-
vandamáí fjölmargra ríkisstofnana með
])vi að láta matreiða allt i nýju cldhúsi
Landspítalans. Á siðan að dreifa kræs-
ingunum til hinna þurfandi. Með þessu
hyggst ríkið ná mciri hagkvæmni í
rekstri. Verður fróðlegt að sjá, hvernig
lil teksl.
FV 9 1973
9