Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 25

Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 25
spáir íorstjórinn því, að hagn- aðarprósentan verði komin í 12,5% árið 1978 miðað við 5% hjá hvoru félagi um sig á fjárhagsári, sem endaði 1. marz síðastliðinn. OF F.TÖLMENNT STARFSLIÐ Það er ekki haft hátt um það af hálfu stjórnenda British Airways, að félag þeirra hefur á að skipa fleira starfsfólki en nokkurt annað flugfélag nema ef vera skyldi Aeroflot, sem ekki hefur birt neinar tölur um starfsmannahald sitt opinber- lega. Hjá British Airways eru starfsmenn nú 58 þús. talsins en sérfræðingar í London telja að starfsmenn British Aii'ways séu 20 þús. of margir. Nicolson hefur vísað á bug þessum full- yrðingum en segir þó, að fyrir- hugaðar séu aðgerðir til að auka framleiðni hjá félaginu. British Airways lét kanna af- komu annarra flugfélaga á al- þjóðaleiðum og komst að raun um að BEA og BOAC saman- lagt stóðu sig betur en t.d. PAN AM, TWA, Air France og KLM en voru á eftir SAS og Swissair. Framundan er um- fangsmikil og víðtæk endur- skipulagning hins nýja félags og verður þá reynt að skera niður kostnað, þar sem því verður við komið og fækka starfsfólki. Stjórn félagsins hefur á móti komizt að raun um, að ef það segði upp 5000 manris og aðrir starfsmenn efndu til verkfalls í mótmæla- skyni myndi 10 daga vinnu- stöðvun valda því að útséð yrði um alla hagnaðarvon. Flugfloti British Airways samanstendur af þotum af gerðunum Boeing 747 og 707, VC 10, Trident og BAC 111. Á næsta ári bætist væntanlega hljóðfráa þotan Concorde í þennan hóp en BOAC hafði gert pöntun á fimm slíkum þotum, sem notaðar verða á flugleið- unum til New York, Jóhannes- arborgar, Tókíó og Sydney. Fargjöld með Concorde eiga að verða 10% hærri en núverandi fargjöid á fyrsta farrými á sömu leiðum. Forráðamenn British Airways vilja engu spá um áhrif Concorde á stöðu félagsins. Þeir benda á, að Concorde sé tilraun í flug- vélasmíði, sem enn ríki mikil óvissa um. Unnt sé að setja niður töiur sem gefi til kynna hagnað af rekstri þotunnar en svo sé líka hægt að fá út aðra útkomu er bendi til taps. Af öllu má ráða, að British Air- ways gerir ráð fyrir að tapa á Concorde. RÍKISSTYRKT? Kaupin á Concorde og tillög- ur British Airways um lækk- un fargjalda á Norður-Atlants- hafsleiðinni hafa valdið grun- semdum bandarískra sam- keppnisaðila um að félagið sé styrkt af brezka ríkinu fjár- hagslega með beinum framlög- um. Nicolson hefur svarað þessu á þá lund, að félagið hafi fengið „hagstæð tækifæri til að afla hlutfjár fyrir aukna starf- semi“. Á það hefur þó verið bent, að BEA gat fyrir nokkrum Umboðsmaður British Air- ways á íslandi er 35 ára gam- all írskur bóndasonur, Joe Kenn- edy að nafni. Hann hóf störf hjá BEA árið 1960 í London og síðar í Dublin en árið 1965 var hann skipaður svæðisstjóri í Shannon, þegar opnuð var flugleið milli Lundúna og Shannon og árið 1970 gerðist hann svæðisstjóri í Basel í Sviss árum orðið sér úti um veru- legar fjárupphæðir frá brezka ríkinu með því að kaupa brezkar Trident-þotur í stað hinna bandarísku Boeing 727. Þá hafði brezka ríkisstjórnin „strikað yfir“ £800 þús. tap hjá BOAC árið 1964 og 1965. Málin hafa þó tvær hliðar og brezka ríkisstjórnin getur jafnt tekið sem gefið. Árið 1971 stuðlaði hún að stofnun British Caledonian Airways, sem er einkafyrirtæki og á að verða „annað afl“ í brezkum flugtnálum í samkeppni við ríkisfyrirtækið British Air- ways.. Til þess að búa í hag- inn fyrir einkaframtakið var British Caledonian úthlutað mjög arðbærum flugleiðum, sem áður höfðu gefið BEA og BOAC drjúgan skilding. og gegndi hann því starfi þar til hann réðst hingað til lands 1. rnaí í ár. Hann hefur ávallt haft áhuga fyrir ferðamálum og þróun þeirra og vann til dæmis mikið að þeim málum í Shannon þau fimm ár, sem hann starfaði þar, auk þess sem hann hefur starf- að við ferðaskrifstofu í London. Joe Kennedy á skrifstofu British Airways í Bankastræti 11. UMBO0SMAÐIJR BRITISH AIRWAVS Á ÍSLANDI FV 9 1973 25

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.