Frjáls verslun - 01.09.1973, Qupperneq 52
®\mm
Á Hótel Esju er mælt með síldarrétt í forrétt
fyrir hádegisverð, en i rétti þessum er m. a.
kryddsíld, marineruð síld og karrysíld. Þetta er
borið fram með kartöflum.seiddu rúgbrauði og
smjöri. Hótelið mælir með, að með þessu sé
drukkið öl og gamalt iskalt ákavíti. Til hádegis-
verðar mælir hótelið sérstaklega með lítilli enskri
buffsteik með lauk og hrásalati. Með því er drukk-
ið Emilion rauðvín. Kostar síldarrétturinn 340 kr.
og buffsteikin 785 kr.
í hádeginu er alltaf matseðill, sem gestir geta
valið sér mat af. Á matseðlinum eru oft lifur og
hjörtu, lambasmásteik, saltkjöt og baunir, salt-
fiskur með tólg, saltkjöt og kjötsúpa svo að eitt-
hvað sé nefnt, ennfremur eru á matseðlinum eft-
irréttir.
Hótelið mælir með gravlaxi með sinnepssósu
og ristuðu brauði, sem forrétt til kvöldverðar og
með því er drukkið Gewurztraminer vin frá Alsac
héraðinu. Kostar þessi forréttur um 480 krónur.
Sem aðalrétt mælir hóteiið með lambageira a la
maison. Er rétturinn borinn fram með smjöri,
sellerí og bernaisesósu. Mælt er sérstaklega með
Bordeaux víni Haut du Medoc með þessum rétti
sem kostar 1385 kr.
Þá eru eldsteiktar pönnukökur vinsæll eftir-
réttur og ennfremur er eftirrétturinn Monte Rosa
vinsæll, en hann er með ís, líkjör og koníaki og
er matreiddur við borð gestsins.
Þar e-r sérstaklega mælt með matseðli dagsins
til hádegisverðar. Á honum er ætíð að finna þrjá
rétti, þar af einn fiskrétt og tvo kjötrétti annan
dýran en hinn ódýran. Daginn sem fréttamaður
FV heimsótti Óðal samanstóð þessi matseðill sem
sagður var dæmigerður, af kálfaschnitzeli með
rjómapaprikusósu og salati, og kostaði kr. 395.
Steikt smálúðuflök menuire með sítrónu og smjöri
á kr. 295 og grísalundir voru þar einnig, steiktar
á teini með osti og sveppasósu á kr. 695. Eftir-
rétturinn þennan dag var skyr með rjóma á kr.
145 en það er oft á matseðlinum. Þá er á sér-
réttaseðli mikið úrval rétta sem henta vel til
hádegisverðar og má þar nefna blandaða kjöt-
og smárétti sem ýmist eru seldir sem forréttir
eða aðalréttir. Óðal ætlar í vetur að hafa til
hádegisverðar algengan mat eins og hann er fram-
reiddur á heimilum og má þar nefna steiktar
fiskibollur, kjötsúpur og fleira í þeim dúr.
Veitingahúsið Óðal leggur mikla áherzlu á
vinnslu og matreiðslu rétta úr nautakjöti og hef-
ur ávallt á boðstólum úrval þeirra, bæði fyrir þá
sem vilja stórar ,,amerískar“ steikur og hina sem
vi-lja þær eins og siður er að matreiða nautakjöt-
ið í Evrópu. Þá er alltaf hægt að fá þar ofn-
bakaðar kartöflur sem eru mjög vinsælar. Til
kvöldverðar er sérstaklega mælt með Óðalssteik,
en það er glóðarsteiktur biti úr nautalundum,
framreiddur með bökuðum kartöflum ef vill,
spergli, úrvals grænmeti, bernaisesósu og rauð-
vínssósu. Slík steik kostar nú kr. 895.
Nýlega var ráðinn að húsinu franskur yfirmat-
sveinn og verður í vetur lögð sérstök áherzla á
framleiðslu matar fyrir leikhú:?gesti milli kl.
6 og 8, og mun matsveinninn útbúa sérstakan
matseðil, í frönskum stíl, í því skyni, sem miðar
að fljótri afgreiðslu.
52
FV 9 1973