Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1973, Blaðsíða 57

Frjáls verslun - 01.09.1973, Blaðsíða 57
LÍFTRYGGINGARFÉLÖG Mun strangari reglur gilda um líftryggingastarfsemi en aðra vátryggingastarfsemi. Starfar það af því, að líftrygg- ingarsamningar eru gerðir til mun lengri tíma, jafnvel allt að 70 árum. Líftryggingastarf- semi hér á landi hefur verið miklu minni heldur en í ná- grannalöndunum og veldur þar mestu um hin geysilega verðbólga, sem hér hefur ríkt undanfarna áratugi og kippt grundvellinum undan sparilíf- tryggingum. Hins vegar hafa áhættulíftryggingar, sem eru óháðar verðgildi gjaldmiðilsins breiðzt verulega út undanfarin ár. TILGANGUR TRYGGIN G AEFTIRLITSINS Mikilvægasta og afdrifarík- asta nýjungin í vátryggingar- starfsemi hér á landi, sem lög- in feia í sér, eru vafalaust á- kvæði þess um tryggingaeftir- lit. Meginhlutverk þessa eftir- lits verður að kanna fjárhag vátryggingarfélaga, þ.e.a.s. hvort þau eigi nægilegar eign- ir fyrir skuldum og nægilegt fé til rekstrar síns og hvort ið- gjöld séu í samræmi við áhættu og eðliiegan kostnað. Til þess að tryggingaeftirlitið geti framkvæmt þetta eftirlit, er svo fyrir mælt, að vátrygging- arfélög skuli senda ársreikn- inga sína til eftirlits ásamt skýrslu um fasteignir, bifreiða-, skipa- og verðbréfaeign og skrá um inneignir hjá viðskipta- mönnum og skuldir við skuld- heimi.umenn. Þá skal jafnframt fylgja með skýrsla um, hvern- ig áætlaðar eru áfallnar en ógreiddar vátryggingarkröfur Reikningum líftryggingarfélags skal einnig fylgja skýrsla tryggingastærðsfræðings um uppgör líftryggingasjóðs. í heild skal eftirlitið eiga að- gang að bókhaldi og öllum skjölum vátryggingarfélaga. Tryggingareftirlitinu er jafn- framt ætlað að hafa eftirlit með því, að almennir skilmál- ar vátryggingarfélaga séu í samræmi við lög og góða við- skiptaháttu í vátryggingarvið- skiptum. í þessu skyni er svo fyrir rnælt, að öll vátrygging- arfélög skuli senda eftirlitinu endurrit þeirra tryggingarskil- mála, sem þau nota svo og síðari breytinga, sem á þeim kunna að verða. Ef eitthver vátryggingarfél- ag sinnar ekki tilmælum trygg- ingaeftirlitsins eða er ekki greiðsluhæft, þá skal eftirlitið þegar í stað tilkynna það tryggingamálaráðherra og gera ákveðnar tillögur um, hvað gera skuli. Er ráðherra þá heimilt að setja félaginu frest ttl þess að bæta úr því, sem úrskeiðis hefur farið. Hafi félagið ekki gert úrbætur inn- an þessa frests, getur ráðherra afturkallað starfsleyfi félags- ins og skipað því þriggja manna félagsstjórn, sem tekur við öllum heimildum félags- stjórnarinnar og falla þá niður allar venjulegar restrarheim- ildir liennar. í heild er verksvið trygg- ingaeftirlitsins all ítarlega skýrgreint í lögunum, en gert er ráð fyrir enn ítarlegri skýr- greiningu í reglugerðum. Það skal skipað þremur mönnum, sem skipaðir eru til fjögurra ára í senn. Á einn þerra að vera embættisgengur lögfræðingur og annar tryggingastærðfræð- ingur. Það er tryggingaráð- herra, sem skipar menn í tryggingaeftirlitið svo og for- mann þess. BYRJUNARÖRÐUGLEIKAR Búast má við ýmsum örðug- leikum fyrir þau vátrygginga- félög, sem þegar eru starfandi er hin nýju lög taka gildi, en það verður 1. janúar nk. Eru því settur reglur um, hvernig þessi félög skuli fara að. Eiga þau innan tveggja mánaða frá gildistöku laganna að senda tryggingamálaráðherra umsókn um starfsleyfi og skráningu á- samt nauðsynlegum gögnum, þar á meðal ársreikningum sínum. Berist þessi gögn eigi innan tilskilins tíma, falla nið- ur heimildir viðkomandi vá- tryggingafélags til þess að selja vátryggingar. STARFSLOKUNAR- HEIMILD! Hvert það félag eða stofn- un, sem hyggst byrja vátrygg- ingarstarfsemi, skal senda tryggingareftirlitinu gögn í því formi, sem eftirlitið ákveð- ur, um væntanlega starfsemi, samþykktir sínar, stofnfundar- gerð og svo tilkynningu um, hverjir séu í stjórn félagsins og hverjir hafi heimild til þess að skuldbinda það, svo og vottorð löggilts endurskoðanda um mnborgað hlutafé eða stofnfé. Tryggingaeftirlitið kannar síðan, hvort félagið fullnægi skilyrðum laganna, reglugerð setta samkv. þeim og sé að öðru leyti hæft til þess að reka vátryggingar- starfsemi. Ráðherra veitir félagi síðan starfsleyfi og að því fengnu má skrá félagið í hlutafélaga- skrá eða aðra opinbera félaga- skrá. Telji tryggingaeftirlitið ekki, að þörf sé fyrir þá starfsemi, sem íélagið hyggst reka, né að starfsemi þess sé til eflingar heilbrigðri þróun vátryggingar- starfsemi í landinu eða til hagsbóta fyrir vátryggingar- taka og vátryggða, getur trygg- ingarmálaráðherra neitað að skrá félagið í vátryggingar- félagskrá og veita því starf- semi. í þessu felst, að gert er ráð fyrir, að tryggingareftirlitið leggi þríþætt mat á þá starf- semi, sem nýstofnað trygginga- félag hyggst reka: 1) Er þörf fyrir starfsemina. 2) Er hún til eflingar heilbrigðri þróun vá- tryggingarstarfsemi í landinu. 3) Er það til hagsbóta fyrir vátryggingartaka og vátryggða. Verði mat eftirlitsins á ein- hverjum þessara þriggja þátta neikvætt, getur ráðherra neit- að félaginu um starfsleyfi. Þessi ákvæði verða að telj- ast rnjög hæpin. Tilgangur þeirra virðist vera sé að tak- marka aðgang nýrra félaga að tryggingarmarkaðinum á þarf- argrund.velli, enda þótt öðrum skilyrðum se fullnægt. Það verður að teljast óeðlilegt, að þeim sé synjað um starfsleyfi sem uppfylla öll forms- og fjárhagsskilyrði og slíkt væri einnig í ósamræmi við al- menna stefnu hér á landi um veitingu atvinnuleyfa. Þá er og þess að gæta, að það er mjög andstætt okkar þjóðfél- agsháttum að hafa starfslok- unarheimild byggða á þessum grundvelli. FV 9 1973 57
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.