Frjáls verslun - 01.09.1973, Page 87
Fyrirtaekl.virnr,
þjinusta
Bókahúsið:
Finnst þægilegra að reka verzlun í
Reykjavik en i Eyjum
Ný bókaverzlun tók til
starfa í Reykjavík um miðjan
júnímánuð, en það er Bóka-
húsið h.f. að Laugavegi 178.
Er verzlunin útibú frá verzl-
un Þorsteins Johnson, sem
starfrækt var í Vestmanna-
eyjum, þar til gos hófst.
Að sögn Óskars Johnson,
framkvæmdastjóra Bókahúss-
ins, ákvað hann að setja bóka-
verzlun þessa á fót eftir að hann
fluttist frá Eyjum. Sagði hann,
að viðskiptin færu ört vaxandi
og sífellt fleiri legðu leið sína
inn í verzlunina. Hefur hann á
boðstólum m. a. mikið af skóla-
vörum, s. s. námsbókum fyrir
skólafólk, ritföngum ýmis kon-
ar og ennfremur eru seld í verzl-
uninni blöð, bækur og ýmis smá-
vara s. s. hin vinsælu ,,plaköt“
o. fl.
Sagði Óskar að hann hefði
unnið í bókaverzlun í Vest-
mannaeyjum í um 30 ár. Fyrst
hefði afi hans sett á fót verzlun-
ina á fyrri stríðsárunum, en síð-
an hefði faðir hans tekið við
og loks hann sjálfur. Bókaverzl-
anir hans í Vestmannaeyjum,
voru einu bókaverzlanirnar þar,
og sagði Óskar, að verzlunin
hefði ætíð gengið vel, en mikið
fé þyrfti til þess að reka bóka-
verzlun.
Bókahúsið er nú í leiguhús-
næði og eru Byggingavörur h.f.
í helmingi húsnæðisins. Það fyr-
Óskar Johnson í verzlun sinni.
irtæki er nú að flytja, svo bóka-
verzlunin stækkar í vetur í 120-
130 fermetra. Þá eru fyrirhug-
aðar nokkrar breytingar á verzl-
uninni.
Sagðist Óskar ætla að halda
áfram að reka verzlunina, jafn-
vel þótt hann flytti til Eyja aft-
ur, en það væri allt óákveðið
enn, og mundi hann ekki taka
ákvörðun um það fyrr en næsta
vor.
— Mér líkar mjög vel að reka
bókaverzlun í Reykjavík, og það
er að mörgu leyti þægilegra en
í Eyjum. Þangað eru stopular
ferðir og það tekur yfirleitt
langan tíma að fá pantanir af-
greiddar, en í Reykjavík eru þær
afgreiddar um leið og þær ber-
ast.
Þó kann ég betur við mig
alið allan minn aldur, sagði Ósk-
ar.
Kvaðst Óskar mjög ánægður
með nýju verzlunina og væri
hann bjartsýnn á framtíðina,
enda hefði hann mikið úrval af
vörum, og gæti skólafólkið
fengið allt sem það þarfnaðist
í skólann.
FV 9 1973
87