Frjáls verslun - 01.04.1974, Page 68
Auk þess a5 vera unaðslegur sólskinsstaður með suðræn-
um gróðri, tærum sjó og heilnæmu loftslagi, er margt að
sjá á Floridaskaga:
Þar er hinn glæsti skemmtigarður
Disney World, sem tekur fram öllum
öðrum skemmtigörðum sem hafa ver-
ið byggðir, þar á meðal hinum fræga
danska Tivoli.
Cape Kennedy, þaðan sem tunglför-'
um og geimstöðvum er skotið á loft
og stjórnað.
Miami Seaquarium, lagardýrasafnið
heimsfræga með hinum stóru mann-
ætuhvölum og hákörlum, og einnig
hinum afburða skemmtilegu höfrung-
um, sem leika listir sínar frammi fyrir
áhorfendum, sjálfum sér til ánægju.
Miami Beach. Engin strönd í víðri ver-
öld hefur náð slíkri frægð sem Miami
Beach, hin allt að því endalausa bað-
strönd sem hefurorðið fyrirmynd um
skipulag flestra þeirra sólbaðstranda,
sem náð hafa mestu vinsældum.
Leitið upplýsinga um sólskinsferðirnar til
..sólarfylkisins" Florida.
Ferðaþjónusta Loftleiða og umboðsmenn um land allt
selja farseðla í Floridaferðina.
LOFTLEIDIR
68
FV 4 1974