Frjáls verslun - 01.09.1974, Side 13
hús eru bæði um 460 ferm.
Við höfum fjölgað tegund-
um hér í safninu, og höfum nú
til sýnis auk sædýra, ýmsar
landdýrategundir, eins og
hreindýr, ísbirni, hrafna,
mörgæsir, geitur, kindur,
hesta, ljón, apa og fleiri dýr,
og munu tegundir hér í safn-
inu nálgast töluna 60 í dag.
Dýrin höfum við keypt ýmist
hér innanlands eða utan. Mörg
dýr hefur safnið þegið að gjöf
einnig höfum við haft góða
samvinnu og skipti við dýra-
garða í K.-höfn, Noregi og
Þýzkalandi. Nokkurt fé hefur
farið í smærri byggingar hér
á svæðinu, og til fegrunar
umhverfisins. Sett hefur verið
upp sérstök lýsing og tré
gróðursett."
FULLKOMIN VÍSINDASTÖÐ
Á KOMANDI ÁRUM.
F.V.: „Hvert er helzta hlut-
verk safnsins, að þínu áliti,
Jón, og hvernig tekst safninu
að sinna því eins og það er
uppbyggt í dag?“
J.G.: „Fyrst og fremst finnst
mér, að safnið eigi að vera til
fræðslu og ánægju. Ýmsir
skólamenn hafa sýnt safninu
mikinn áhuga og heimsótt það
ásamt nemendum sínum og
kennt þar fiska- og náttúru-
fræði. Vísindalegt gildi safns-
ins er mikilvægt. Hér í safn-
inu geta sérfræðingar athugað
atferli dýra í ró og næði. Eipn-
ig getur safnið gegnt því
veigamikla starfi að bjarga
dýrum og fuglum frá útrým-
ingu.
í nánustu framtíð er ætlun-
in að miða framkvæmdir við
að safnið þróist í fullkomna
visindastöð í tengslum við
Hafrannsóknastofnunina og
Háskóla íslands. í því skyni
höfum við sent fjárhagsáætl-
un til næstu sex ára til Fram-
kvæmdastofnunar ríkisins og
fengið samþykkt fjárframlög
sex sveitarfélaga, sem nema
20 milljónum á næstu sex ár-
um. Auk þessa hefur þróunin
orðið sú, að sífellt fleiri ein-
staklingar, stofnanir og fyrir-
tæki sýna safninu velvild og
áhuga og styrkja það með
gjöfum. .Þannig varð velta
safnsins á siðasta ári um 7,2
milljónir, en vegna dýrtíðar
dugði sú upphæð skammt til
uppbyggingar, þannig að fram-
lag sveitarfélaganna sex;
Reykjavíkur, Hafnarfjarðar,
Seltjarnarness, Kópavogs,
Garðahrepps, og Keflavíkur,
kemur sér vel til að hægt sé
að rækja það framtíðarhlut-
verk safnsins, að hér rísi full-
komin rannsóknaraðstaða í
tengslum við fiskiðnað lands-
manna og þær stofnanir, er
honum þjóna.“
Bankarnir:
Lausafjárstaðan hefur
stórversnað
í ágústlok nám'u innlán
viðskiptabankanna 30 mill-
jörðum kr. og höfðu aukizt
á árstímabili um tæplega 6
milljarða eða 24%. Á hinn
bóginn hafa útlán viðskipta-
bankanna, sem voru í end-
aðan ágúst 37 milljarðar,
aukizt um 12,7 milljarða eða
25%.
Talsverður munur er á
inn- og útlánaþróuninni í
hinum einstöku bönkum.
Tveir stærstu bankarnir,
Landsbankinn og Búnaðar-
bankinn hafa liðjega 2/3 af
innlánsaukningunni eða um
4 milljarða.
Landsbankinn og Útvegs-
bankinn eiga langstærsta
hluta útlánaaukningarinnar
eða um 10 milljarða.
Það leiðir svo af fyrr-
greindu um þróun inn- og út-
lána, að lausafjárstaða við-
skiptabankanna hefur stór-
versnað á þessu eins árs
tímabili, um tæpa 4,7 mill-
jarða, en gagnvart Seðla-
bankanum hefur staðan
versnað enn meir, eða sem
nemur 5.5 milljörðum.
Hvað lausafjárstöðuna snert-
ir munu bankarnir standa æði
misjafnt t. d. eiga Landsbank-
inn og Útvegsbankinn lang-
stærsta þáttinn í hinni nei-
kvæðu stöðu viðskiptabank-
anna við Seðlabankann. Hins
vegar mun Búnaðarbankinn
hafa staðið af sér áföllin og
skuldar hann ekki á viðskipta-
reikningi sínum.
Inn- og útlán viðskiptabankanna
staðan 31. ágúst 1974
Landbanki íslands
Útvegsbanki íslands
Búnaðarbanki fslands
Iðnaðarbanki íslands
Verzlunarbanki íslands
Samvinnubanki íslands
Alþýðubankinn ........
Innlán Útlán
(millj. kr.)(millj. kr.)
,. .. 12.887 18.603
,...) 4.127 7.174
. ...' 6.258 5.378
, ... 1.794 1.571
. . . . 1.879 1.537
. ... 2.284 2.071
..., 840 616
Viðskiptabankar alls:
30.069 36.950
FV 9 1974
13
L