Frjáls verslun - 01.09.1974, Blaðsíða 48
ið unnið ágætt starf. Haldin
eru námskeið um vissar grein-
ar trygginga og starfsmanna
hjá félögunum eru látnir
sækja þau í 5-6 vikur og þá í
vinnutímanum. Við teljum
okkur tvímælalaust hag af
þessari starfsemi og að henni
verði haldið áfram.
F.V.: „Hvað er langt síðan
þú hófst sjálfur störf fyrir
Sjóvá?“
Sigurður: „Ég byrjaði hér
haustið 1971 en hafði áður
verið framkvæmdastjóri Síld-
arverksmiðja ríkisins á Siglu-
firði. Annars er ég Hafnfirð-
ingur að ætt og uppruna, lauk
prófi frá verzlunarskólanum
1934 og fór norður til Siglu-
fjarðar 1936 til að gerast
starfsmaður síldarverksmiðj-
anna. Framkvæmdastjóri
þeirra varð ég 1947.
Á þessum tíma urðu geysi-
legar breytingar á rekstri Síld-
arverksmiðja ríkisins. Mikið
var byggt á Siglufirði og
Skagaströnd á árunum 1946-
‘47. Svo hvarf síldin frá Norð-
urlandi og þá tóku mikil erf-
iðleikaár við. Upp úr 1960
hófst síldarævintýrið við Aust-
firði og uppbygging verksmiðj-
anna þar. Alls eru Síldarverk-
smiðjur ríkisins með starfsemi
á 6 stöðum á landinu. En svo
brást síldin gjörsamlega og nú
er verið að reyna að byggja
upp atvinnulíf þessara staða
með nýju fiskiskipunum.
F.V.: „Að lokum væri ekki
úr vegi að spyrja, hvort þér
teljið það eiga fyrir trygging-
arfélögunum að liggja að
verða ein ríkisstofnun, þ.e.a.s.
að þau verði þjóðnýtt?
Sigurður: „Ég hef enga trú
á, að tryggingarfélögin verði
þjóðnýtt. Þetta hefur verið
stefnumál vissra pólitískra
flokka en ekkert þrýst á það
af hálfu ábyrgra ráðamanna.
Ef til þess kæmi geri ég ráð
fyrir, að viðskiptavinir félag-
anna myndu standa eindregið
gegn því. Ætti öll tryggingar-
starfsemi að renna saman við
ríkisbáknið myndi það kerfi
verða svo þungt í vöfum, að
viðskiptavinirnir fengju litla
eða enga þjónustu. Eitt ríkis-
rekið tryggingarfélg væri stórt
skref aftur á bak“, sagði Sig-
urður Jónsson.
ILOKAÐ!
Það er útilokaó að þú lendir milli stafs og hurðar
I Verzlunarbankanum. Frá kl. 9-30-19 erávalltopið
fyrir innlánsviðskipti I einhverjum hinna þriggja
afgreiðslustaða Verzlunarbankans i Reykjavík.
KL. ð 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19
AÐALBANKINN BANKASTRÆTI 5 || lil
ÚTIBÚIO LAUQAVEG1172 f|
AFGREIDSLAN UMFEROARMIOSTÖO ÍvSv 111
KL. 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19
VÆRZIUNRRBRNKINN
48
FV 9 1974