Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1974, Blaðsíða 39

Frjáls verslun - 01.09.1974, Blaðsíða 39
fyrirgreiðslan, sem þær veita nær langt út fyrir ramma við- skipta í beinum tengslum við flugreksturinn. Að vísu eru oft óskýr mörk þarna á milli en flugfélögin hafa lagt mikla á- herzlu á að vinna aði kynningu á íslenzkum útflutningsvör- um og samstarfið við Carson Pirie Scott er einn þáttur í þeirri viðleitni. Þá kvaðst Tom hafa aðstoðað allmarga ís- lenzka aðdla, sem vildu kom- ast í viðskiptasambönd við fyrirtæki í Chicago, m. a. í sambandi við útflutning á frystum sjávarafurðum með flugvélum. SVIÐ OG HARÐFISKUR. Áður en Tom Loughery hóf störf fyrir Loftleiðir var hann starfsmaður SAS og Air Canada. Hann játaði, að sér hefði ekkert litizt á blikuna, þegar hann kom fyrst til starfa með íslendingum úti á Kennedy-flugvelli í New York. Þar var allt starfsliðið að háma í sig harðfisk og lyktin í hlýjum og þröngum húsa- kynnunum í samræmi við það. Skömmu seinna kom flugvél frá íslandi og einn farþeganna var mjög flóttalegur, þegar hann kom í afgreiðslusalinn og áleit Tom að maðurinn væri að smygla einhverju inn í landið. Skömmu síðar sá hann sama farþega sitja hinn rólegasta í biðsal flugstöðvar- innar og gæða sér á vænum sviðakjamma. Þetta voru sem sagt fyrstu kynnin af íslendingum, en þau eru nú orðin áragömul og kvaðst Tom kunna því mjög vel að starfa fyrir íslenzka að- ila og hann ætti ekki nema beztu minningar frá ferðum sínum til íslands og viðkynn- ingu við fólk þar. CHICAGO MEÐ 20%. Tom sagði, að um 20% af öllum flutningum Loftleiða milli Evrópu og Bandaríkj- anna færu um Chicago og hefðu farþegaflutningar félags- ins í heild aukizt, þegar Chi- cago-flug var hafið fyrir rúmu ári, en úr þeim hafði dregið áberandi mikið fram að þeim tíma. í fyrra vetur voru tvær ferðir í viku til Chicago og sætanýting um 50%, sem var ágæt útkoma miðað við önnur flugfélög á sömu leið. í sumar voru hins vegar felldar niður allmargar áætlaðar ferðir vegna þess að samdráttur varð í flutningum, en yfirleitt voru þær þó fimm í viku. Kvað Tom greinilegt, að al- menningur vestanhafs hefði dregið úr ferðalögum og margir, sem ætluðu til Evrópu, hreinlega hætt við það. AUGLÝSA A „STRÆTÓ'. Loftleiðir hafa ekki haft peninga til að auglýsa á jafn- breiðum vettvangi og stærri flugfélög, eins og t. d. Pan Am., eða hollenzka félagið KLM, sem leggur mikla á- herzlu á að kynna ferðir sínar frá Chicago til Evrópu. Þessi félög nota sjónvarpið óspart þrátt fyrir geysilegan kostnað, sem fylgir því. Loftleiðamenn hafa að vísu keypt auglýsing- Lítil og snot'ur Loftleiðaskrif- stofan Iætur ekki mikið yfir sér. ar á nokkrum hluta strætis- vagna í Chicago en mest á- herzla er lögð á að hafa gott samband við ferðaskrifstofur og auglýsa í ferðamálatímarit- um eða málgögnum vissra á- hugamannahópa, sem líklegir eru til að ferðast landa í milli. Þannig sækjast Loftleiða- menn eftir að ná viðskiptum við þá, sem ákveðið hafa að ferðast en eyða ekki pening- um í að hvetja fólk til um- hugsunar um, hvort það ætti nú ekki að leggja land undir fót. MIKILVÆG SAMBÖND. Öll ferðarit um Evrópu 'birta nú góðar greinar um Loftleiðir og ísland og sölu- menn eru á stöðugum ferða- lögum frá skrifstofunni í Chi- cago til ferðaskrifstofa víðs- vegar um norður- og miðríki Bandaríkjanna. Það kemur í hlut þessara manna að kenna starfsliði ferðaskrifstofanna að finna ódýrustu ferðamöguleik- ana fyrir viðskiptavini skrif- stofanna og sagði Tom, að þetta væri ærið verkefni, því að miklar breytingar yrðu jafnan á starfsmannahaldi hjá ferðaskrifstofunum. Loftleiðir hafa líka boðið allstórum hóp- um þessa starfsfólks til kynn- isferðar til íslands og Evrópu- landa með sérstökum kjörum, og taldi hann þær hafa borið góðan árangur. Nú er einnig lagt mikið kapp á að komast í tengsl við hópa séráhuga- manna. Var í því sambandi unnið að skipulagningu á ferðr um bandarískra bænda til Ev- rópu í sumar. En segja má, að flugfélögin sitji um þessar ver- ur eins og gráðugir úlfar og samkeppnin um flutninga er geysihörð. Beita sum stærri fé- lögin þá ýmsum ráðum, sem ekki myndu beinlínis geta tal- izt eðlilegir viðskiptahættir. NÝIR MÖGULEIKAR. Tom Loughery sagði, að flugið til Chicago hefði opnað Loftleiðum nýja möguieika og væri það að öðru jöfnu arð- bærara en New York-ferðirn- ar. Fólk úr miðríkjum og vest- urríkjunum vildi frekar skipta um flugvélar í Chicago en New York og það væri hag- kvæmara fyrir Loftleiðir að geta sjálfar flutt farþegana lengri vegalengdir inn í land en að greiða öðrum flugfélög- um fyrir þann flutning út frá endastöð í New York. Þá sagðist Tom Loughery að lokum vona, að flug til Chi- cago myndi reynast auðveld söluvara í Evrópu enda væri reynt að kynna fljót og fyrir- hafnarlítil skipti milli flug- véla á O’Hareflugvelli og þá miklu möguleika á öðrum framhaldsferðum, sem boðið er upp á frá þeirri miðstöð sam- gangna sem Chicago óneitan- lega er. FV 9 1974 39
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.