Frjáls verslun - 01.09.1974, Blaðsíða 50
stjórn fjárfestingarmála og
lánveitingar skv. lögum þess-
um.
Stofnunin starfar í þremur
deildum: hagrannsóknadeild
(innskot: sbr. þó áður), áætl-
anadeild og lánadeild. Fram-
kvæmdastofnun ríkisins heyr-
ir undir ríkisstjórnina.
Áætlanadeild gerir áætlanir
um uppbyggingu og þróun
mikilvægustu atvinnugreina
og um heildarþróun atvinnu-
lífsins. Deildin gerir áætlanir
um þróun byggða og atvinnu-
lífs víðs vegar um land, með
það fyrir augum að skapa
landsmönnum öllum fulla at-
vinnu og eðlileg lífsskilyrði og
stuðla að heilbrigðri byggða-
þróun. Deildin annast áætlan-
ir fyrir ráðuneyti og opin-
berar stofnanir um fram-
kvæmdir ríkisins og aðrar op-
inberar framkvæmdir, eftir
því sem um semst.
Lánadeild vinnur að því að
samræma útlán allra opin-
berra stofnlánasjóða og að
skipuleggja fjármagnsöflun til
framkvæmda með sérstöku til-
liti til þeirra framkvæmda,
sem forgang þurfa að hafa
samkvæmt áætlunum stofnun-
arinnar. Hún fylgist með fjár-
hag opinberra fjárfestingar-
sjóða og gerir tillögur um
fjáröflun til þeirra, eftir því
sem þörf krefur.“
ÞJÓÐHAGSSTOFNUN.
Lög um Þjóðhagsstofnun (og
breyting á lögum um Fram-
kvæmdastofnun ríkisins) eru
frá maí 1974.)
í 1. grein segir, að hún
skuli „fylgjast með árferði og
afkomu þjóðarbúsins, vinna að
hagrannsóknum og vera ríkis-
stjórn og Alþingi til ráðuneyt-
is í efnahagsmálum.“
Hún heyrir undir forsætis-
ráðherra. Meðal verkefna
hennar eru þessi skv. 2. gr.
laganna:
„1) Að færa þjóðhagsreikn-
inga.
2) Að semja þjóðhagsspár
og áætlanir.
3) Að semja og birta opin-
berlega tvisvar á ári, vor og
haust, yfirlitsskýrslur um þró-
un þjóðarbúskaparins og horf-
ur í þeim efnum, þar á meðal
um framleiðslu, neyslu, fjár-
festingu, viðskipta- og greiðslu-
jöfnuð, verðlag og kaupgjald,
atvinnu og tekjur almennings,
afkomu atvinnuvega og fjár-
mál hins opinbera. Auk þess
skal stofnunin koma niðurstöð-
um athugana sinna á einstök-
um þáttum efnahagsmála fyrir
almennings sjónir, eftir því
sem kostur er.
4) Að annast hagfræðilegar
athuganir og skýrslugerð um
efnahagsmál fyrir ríkisstjórn-
ina og alþjóðastofnanir á
sviði efna'hagsmála, eftir því
sem ríkisstjórnin ákveður, og
fyrir Seðlabanka íslands og
Framkvæmdastofnun ríkisins,
eftir því sem um semst.
5) Að láta alþingismönnum
og nefndum Alþingis í té upp-
lýsingar og skýrslur um efna-
hagsmál.
6) Að veita aðilum vinnu-
markaðarins upplýsingar um
efnahagsmál og annast fyrir
þá hagfræðilegar athuganir,
eftir því sem um semst.“
FULLKOMIN SKIPTING
STARFA EÐA SKÖRUN.
Að sjálfsögðu grípa stofnan-
irnar talsvert inn á svið hverr-
ar annarrar og þurfa að hafa
mikil innbyrðis samskipti.
Sumir hafa tekið svo djúpt í
árinni að segja að þær
séu að vinna sama verkið. Ó-
hætt er þó að fullyrða, að
mjög lítið er um að svo sé og
dæmi um slíkt eru áreiðanlega
þekktari frá fyrri tíð hér á
landi. Einnig er á það að líta,
að ekki er hollt að einstakar
stofnanir „eigni sér“ tiltekin
verkefni. Samkeppni í hófi er
holl á þessu sviði sem öðrum.
ÍÞRÓTTABLAÐIÐ
Eina íþróttabíað landsins.
Fjallar um íþróttir og átilíf.
Áskriftasímar 82300 — 82302
50
FV 9 1974