Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1974, Side 27

Frjáls verslun - 01.09.1974, Side 27
O’Hare - flugvöllur: Þar munu 39 - 40 mllljónir farþega eiga leíð um á árinu * 4 mesta annatíma fer fram lending eða flugtak á 15. hverri sekúndu Erlendum flugfélögum, sem halda uppi áætlun arferðum til Bandaríkjanna, hefur þótt mikils virði að fá réttindi til að lenda í Chicago. Borgin er ein af stórborgum Bandaríkjanna og þýðingarmikil að því Ieyti, en hún er ennfremur geysimikilvæg miðstöð fyrir samgöngur inn- anlands í Bandaríkjunum, bæði á landi og í lofti. 0‘Hare-flugvöllur við Chicago er nú stærsti flugvöll'ur í heimi með tilliti til umferð arþunga. Þar munu fara um á þessu ári 690.000 flugvélar og farþegafjöldinn, sem leið á um flugvöllinn, verður 39-40 milljónir en var í fyrra 35,5 milljónir. Nú hafa 14 erlend flugfélög réttindi til að fljúga til Chi- cago. Auk þess halda banda- rísk flugfélög uppi samgöng- um frá Chicago til útlanda. í samningum, sem gerðir voru 1948 um réttindi Loftleiða til Ameríkuflugs, var heimild til að fljúga til New York og Chicago en það var fyrst í fyrra sem félagið notaði rétt sinn til Chicago-flugsins. Flugið frá íslandi til Chi- cago tekur örlítið lengri tíma en flug til Kennedy-flugvallar við New York. Eftir rétt rúmra fimm klukkustunda flug er lent á O’Hare og þar opnast leiðir til allra átta fyrir þá sem ætla til annarra ákvörðunarstaða í Bandaríkjunum. SKJÓT AFGREIÐSLA. Um þann hluta flugstöðvar- byggingarinnar, sem milli- landafarþegar fara um, er fremur lítil umferð á þeim tíma dags, er Loftleiðaþoturnar koma þangað. Þetta gerir alla afgreiðslu á farangri miklu fljótvirkari en menn eiga að venjast annars staðar í svo stórum flughöfnum, og þurfi farþegar að hafa hraðan á og flýta sér í framhaldsflug er ör- stutt að fara yfir í brottfarar- sali innanlandsflugfélaganna, sem taka við hver af öðrum, undir sama þaki. STÖÐVARSTJÓRINN LIÐ- SINNIR FERÐALÖNGUM. Þegar Loftleiðir hófu áætl- unarflug til Chicago var sam- ið við írska flugfélagið Air Lingus um afgreiðslu á _ flug- vélunum. Auk þess sem írarn- ir sjá um eigin flugvélar af- greiða þeir vélar gríska flug- FV 9 1974 27

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.