Frjáls verslun - 01.09.1974, Blaðsíða 47
Á Suðurlandsbraut 4 hefur Sjóvá nú nýverið flutt starfsemi
allra deilda í vistleg húsakynni.
að þessi Ijöggjöf sé hin þarf-
asta og verði til að tryggja
hag viðskiptamanna trygging-
arfélaga betur en áður gerð-
ist. Eins og við þekkjum hafa
verið stofnuð hér félög án þess
að nægilega sterkur fjárhags-
legur grundvöllur væri fyrir
og allt endaði svo með ósköp-
um.
F.V.: „Tryggingarfélögin
hafa greinilega háð nokkra
samkeppni í sölu á ferðaslysa-
tryggingum og farangurstrygg-
ingum. Hefur almenningur
sýnt því áhuga að tryggja sig
gegn slíkum óhöppum?
Sigurður: „Þetta hefur mjög
færzt í vöxt með auknum
ferðalögum og vitund fólks
um, að það getur lent í stór-
kostlegum fjárútlátum í sam-
bandi við jafnvel minniháttar
óhöpp á ferðalögum.
Ferðaslysatrygginguna er
hægt að kaupa til skamms
tíma eða eins langs og menn
óska. Hún bætir dauða og ör-
orku vegna slyss, og út á hana
fást dagpeningar vegna slysa.
Trygging af þessu tagi, sem
gildir í 15 daga, að upphæð 1
millj. króna, kostar 591 krónu.
Þá er gert ráð fyrir dagpen-
ingum í allt að 52 vikur, 5000
krónur á viku. Sé tryggingar-
upphæðin 2 milljónir reiknast
dagpeningarnir 10 þús. krón-
ur á vikur.
Farangurstrygging upp á
100 þús. krónur kostar t. d.
859 krónur í 15 daga en hana
má fá til eins langs tíma og
menn óska.
F.V.: „En svo að við fræð-
umst eilítið meira um fyrir-
tækið Sjóvá. Hvenær var það
stofnað?
Sigurður: „Sjóvátryggingar-
félag íslands hf. var stofnað
1918 og stóðu að því 25 at-
vinnurekendur og kaupmenn.
Hlutafé félagsins er nú 31
millj. króna. Hluthafar nú eru
um 100 talsins og formaður
stjórnar Sjóvá er Sveinn
Benediktsson, framkvæmda-
stjóri.
Eins og nafnið bendir til
fékkst Sjóvá aðallega við sjó-
tryggingar framan af en færði
svo út kvíarnar smám saman.
Fram að þessum tíma höfðu
menn hér skipt við erlend
tryggingarfélög, nema hvað
Brunabótafélag íslands var
stofnað 1914 til að annast
húsatryggingar utan Reykja-
víkur. Brunatryggingar Sjóvá
hófust árið 1925 og líftrygg-
ingardeild var stofnuð hjá fé-
laginu 1934. Þetta var um
langan tíma mikil tryggingar-
grein, með svokölluðum söfn-
unartryggingum. En lífeyris-
sjóðirnir hafa leyst þær af
hólmi og upphæðdrnar, sem
þessar tryggingar hljóðuðu
upp á í þá daga, eru ekki til
stórra hluta í dag. Fyrstu árin
var Sjóvá til húsa í Eimskipa-
félagshúsinu en keypti síðar
húseignina Ingólfsstræti 5. Bif-
reiðadeild hefur félagið rekið
síðan 1937 og var hún aldrei
á sama stað og aðrar deildir
félagsins. Það var fyrst nú í
febrúar á þessu ári, sem öll
starfsemi félagsins komst und-
ir sama þak.
Hér á Suðurlandsbraut 4
erum við í sambýli við fyrir-
tækin H. Benediktsson og
Skeljung, eigum sjálfir tvær
hæðir og hálfa á móti Skelj-
ungi. Þar er mötuneyti fyrir
starfsmenn beggja fyrirtækja.
F.V.: „Hvað starfa margir
hjá fyrirtækinu og hvernig
hefur gengið að fá hæfa starfs-
menn? Ætla mætti, að hér
væri um nokkuð flólcna teg-
und viðskipta að ræða, sem
tæki nokkurn tíma fyrir
menn að kynnast nægilega
vel.“
Sigurður: „Hjá okkur starfa
nú 68 starfsmenn. Við Axel
Kaaber önnumst framkvæmda-
stjórnina, og sér Axel um þá
hlið er snýr að endurtrygging-
um. Hannes Þ. Sigurðsson er
forstöðumaður söludeildar, Ól-
afur Bergsson er fyrir bifreiða-
deild, Bragi Hlíðberg fyrir
endurtryggingadeild og Jó-
hannes Proppé er deildarstjóri
fyrir deild þeirri, er fjallar
um sjótjón. Runólfur Þor-
geirsson er skrifstofustjóri.
Það er rétt, að nauðsynlegt
er að hafa á að skipa góðu
starfsliði hjá tryggingarfyrir-
tæki. Þjálfun þess skiptir líka
höfuðmáli og þess vegna reka
tryggingarfélögin sameiginlega
tryggingarskóla, sem Arn-
ljótur Björnsson, prófessor,
veitir forstöðu. Þar hefur ver-
FV 9 1974
47