Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1974, Page 51

Frjáls verslun - 01.09.1974, Page 51
Norðurland vestra Siglufjörður á sér merka sögu, en ekki alltaf að sama skapi góða. Þar bjuggu fyrir tæpum tveimur áratugum 3000 manns, en þegar mest var að gera í síldinni hefur mannmergðin líklega farið upp í 10000 manns. Nú búa þar 2075 oggerðist það i fyrsta skipti i fyrra, eftir margra ára fólksfækkun, að bæjanbúum fjölgaði. Víða má sjá þess merki, að Siglufjörður er á batavegi, en honum var á sínum tíma líkt við far- lama manneskju í 'hjólastól. Allan mátt dró úr atvinnulífi staðarins, sem byggðist nær ein- göngu á síldarverkun, en nú hefur þessi áður farlama bær leitað inn á nýjar slóðir atvinnu- lífsins með góðum árangri. Menn eru farnir að mála og endurbæta húsin sín, en það mun fyrst hafa gerzt í fyrrasumar, eftir langt hlé, og sýnir það, ásamt ýmsu öðru, þá hugarfars- breytingu sem orðin er. Það er athyglisverð staðreynd, að nokkrir árgangar fólks, fólk á aldrinum 30-40 ára, finnast ekki í bænum. Það er einnig athyglisvert, að ungt fólk og vel menntað virðist nú leita þang- að í æ ríkara mæli. Mikil breyting hefur orðið á til batnaðar og auk þess að vera vingjarn- legt, sem það hefur ávallt verið, er fólkið á Siglufirði fullt af bjartsýni, þótt ýmsir hinna eldri eigi erfitt með að trúa því að Siglufjörður eigi framtíð fyrir sér, — án síldarinnar. Bjarni Þór Jónsson, bæjarstjóri: llliklar framkvæmdir fyrirhugaðar Bjarni Þór Jónsson er 28 ára gamall Reykvíkingur, en hann fl’utti til Siglufjarðar um miðjan júlí s. 1. er hann var ráðinn þar bæjarstjóri. F.V. ræddi við hann á bæjarskrifstofunum, en þær eru til húsa í lögreglustöðinni og bíða flutnings í ráðhús Siglfirðinga, F.V.: — Hvað búa margir á Siglufirði núna, Bjarni? — Þegar manntal var gert 1. desember 1973 voru í- búar bæjarins 2075. Þeim hafði þá fjölgað það árið um 25, en það er í fyrsta skipti í fjölda ára að bæjarbúum fjölgar. Árið 1950 voru þeir yfir 3000 talsins, en svo hvarf síldin og fólkið flúði til þétt- býlisins á SV.-horni landsins. F.V.: — Hvernig er ástandið í húsnæðismálum bæjarins? — Þó að íbúar séu nú mun færri en fyrir tæpum tveim áratugum, er húsnæðisekla á staðnum. Stafar það einkum af tvennu, — mörg gömlu hús- anna eru nú gjörónýt og auk þess býr fólk nú mun rýmra en áður tíðkaðist. Það þarf ekki að taka það fram, að til skamms tíma hafa nánast eng- Bjarni Þór Jónsson, bæjarstjóri ar byggingaframkvæmdir ver- ið hér í bæ. Nú eru hins vegar 6 hús í byggingu og mikill fjöldi lóða- umsókna liggur fyrir. Nú ligg- ur fyrir heimild til að byggja FV 9 1974 51

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.