Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.09.1974, Page 53

Frjáls verslun - 01.09.1974, Page 53
Fjörkippur er nú á ný kominn í athafnalífiS á Siglufirði eftir dvala fyrstu síldarleysisáranna. Egilí Thorarensen, framkv. stj. Siglósíldar: Aukin fjölbreytni framleiðslunnar 10 leiguíbúðir á ári, næstu fjögur árin, með sömu skilyrð- um og framkvæmdanefndarí- búðirnar í Breiðholti. F.V.: — Hverjar verða helstu framkvæmdir á Siglu- firði á næstunni? — Nefna má byggingu nýs frystihúss Þormóðs ramma hf., byggingu leiguíbúðanna, sem ég nefndi áðan, geysimiklar hafnarframkvæmdir eru fyrir- hugaðar næsta sumar, fram- kvæmdir við lagningu hita- veitu eru að hefjast, unnið er að stækkun virkjunar við Skeiðsfoss í Fljótaá, sem er í eigu bæjarins, svo eitthvað sé nefnt. Ennfremur má nefna mjög aðkallandi verkefni, sem er öflun betra neyzluvatns, væntanlega úr Kálfsdal hinum megin fjarðarins. Varanlegt slitlag vantar á flestar götur bæjarins og ljúka þarf bygg- ingu ráðhússins. Verkefnin eru nánast óþrjótandi. F.V.: — Er fólk á staðnum til að anna öllum þessum verk- efnum, jafnvel þótt þau komi nú ekki öll í einu? — Nei, því það er af sem áður var, er atvinnuleysi herj- aði þessa byggð. Nú vantar til- finnanlega fólk, einkum þó iðnaðarmenn af ýmsu tagi. F.V.: — Hvemig eru sam- göngumálin í dag? — Hér áður fyrr var Siglu- fjörður einangraður að mestu leyti átta mánuði ár hvert. Þá var aðeins hægt að komast sjó- leiðina, en auk hennar eru nú samgöngur í lofti og á landi. Síðan Strákagöngin komu, en þau voru vígð 10. nóvember 1967, er fært landleiðina all- an ársins hring með ekki ýkja miklum snjóruðningum. Flug- félagið Vængir flýgur svo 'hingað 4 daga í viku en hér er nýleg flugbraut og nýtt flugskýli verður tekið í notkun næstu daga. Siglfirðingar eru mjög ánægðir með þessa þjón- ustu Vængja. F.V.: — Að lokum, Bjarni Þór. Hvernig líkar þér bæjar- stjórastarfið? — Ég kann mjög vel við þetta starf hér, sem að vísu er ekki komin mikil reynsla á enn. Það er erilsamt, sérstak- lega þar sem nú eru miklir uppgangstímar, en ég er mjög ánægður með að fá tækifæri til að taka þátt í þessari upp- byggingu. Sigló-síld er gamalt og rótgró- ið fyrirtæki á Siglufirði, en það er í ríkiseign. í maí s.l. tók nýr maður við stjórn fyr- irtækisins, Egill Thorarensen sein er 29 ára gamall niður- suðutæknifræðingur. F.V.: — Hvernig hefur reksturinn gengið undanfarið, Egill? — Hann hefur ekki gengið vel, fyrst og fremst vegna hrá- efnisskorts undanfarin ár. Hráefni hefur verið keypt þar sem hægt hefur verið að ná í það. í fyrra var t. d. keypt síld frá Færeyjum, en nú er verið að skipa upp 2500 síldar- tunnum, sem koma frá frænd- um okkar Norðmönnum, nánar tiltekið frá Stavanger. Miðað við verð á afurðum er hrá- efnið dýrt, en tunnan kostar rúrnar 9 þúsund krónur cif til Siglufjarðar. Úr síldinni fram- leiðum við gaffalbita og kryddsíldarflök, sem við selj- um aðallega til Sovétríkjanna en einnig til Bandaríkjanna, Svíþjóðar og Danmerkur. F.V.: — Hver telur þú vera helstu vandamál lagmetisiðn- aðarins? — Ég tel að ekki hafi verið nógu mikil samræming í öflun hráefnis og svo sölu afurð- anna. Mér virðist sem meiri samvinnu vanti milli þessara tveggja þátta. Þetta stendur þó væntanlega til bóta og hef- ur stórlega lagast með til- komu Sölustofnunar lagmetis. F.V.: — Hefur framleiðslan eingöngu verið úr síld og eru einhverjar áætlanir um að auka fjölbreytni framleiðsl- unnar? — Hér hefur auk niður- lagðrar síldar verið framleidd- ur grásleppukavíar, en nú er meiningin að byrja á ýmsu öðru. Við erum nú að kaupa tæki til niðursuðu á rækju og við erum jafnvel með þorsk- 'hrogn í huga. Tækin eru kom- in og á aðeins eftir að setja FV 9 1974 53

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.