Frjáls verslun - 01.09.1974, Page 65
húsnæði, þrátt fyrir það, að
mikið hefur verið byggt á und-
anförnum árum m. a. tvö stór
fjölbýlishús með 29 íbúðum
alls. Nýlega hafði verið sótt
um 100 Jóðir til íbúðabygginga
og miklu er búið að úthluta
af þeim. Flestar nýju lóðanna
eru á nýju byggingasvæði upp
á svokölluðum Sauðárhæðum
og hafa margir þegar hafið
framkvæmdir. Nú hefur bæj-
arfélagið fengið heimild til
byggingar 14 leiguíbúða og er
stefnt að því að hefja fram-
kvæmdir við byggingu þeirra
strax í haust.
F.V.: — Samgöngumálin?
— Samgöngur eru góðar.
Hingað er flogið 4 sinnum í
viku á sumrin og verður svo
Adolf Björnsson,
rafvcitustjóri.
væntanlega einnig í vetur. í
byggingu er nýr og fullkom-
inn flugvöllur í um 3 km fjar-
lægð frá bænum og er vinna
við hann langt komin.
F.V.: — Hvað með heil-
brigðismál og félagsmál?
— Heilbrigðismálin eru í
góðiu lagi, hér eru 3 læknar að
jafnaði og tveir tannlæknar.
Stór og góður spítali er á
staðnum. Ekki er eins mikill
þróttur í félagslífinu og var
hér áður og veldur þar vafa-
laust mestu hin mikla atvinnu-
aukning. Fólk má ekki vera að
því að sinna félagslííi eins
mikið og áður var, en það
stendur þó með nokkrum
blóma.
Stefán Guðmundsson, framkv. stj. Útgeröarfélags Skagfiröinga:
Atvinnubylting með tilkomu
skuttogaranna
Frá Sauðárkróki eru nú gerðir út 3 skuttogarar a’uk smærri
dekkbáta og opinna báta. F.V. ræddi lítillega við Stefán Guð-
mundsson, framkvæmdastjóra Útgerðarfélags Skagfirðinga, sem
rekur togskipin.
— Útgerðarfélag Skagfirð-
inga var stofnað 1968 og ger-
ir út 3 skip. Félagið rekur
ekki frystihús sjálft, en er
stærsti hluthafi í þeim tveim
frystihúsum sem eru á staðn-
um ásamt með kaupfélaginu
og bæjarfélaginu. Auk þess
eru mörg hundruð einstakling-
ar í bænum hluthafar.
Síðastliðið haust var útgerð
við Skagafjörð sameinuð og er
hún rekin í sameiginlegu
formi fyrir Sauðárkrók og
Hofsós. Skipin eru öll gerð út
héðan en hluta aflans er ekið
til Hofsós, þar sem hann er
unninn í frystihúsi staðarins.
F.V.: — Hvaða skip eru
þetta?
— Þau eru Hegranes, sem
keypt var notað frá Frakk-
landi og er smiðað 1966,
Drangey sem var smíðuð í
Japan og er nú ársgömul og
Skafti, sem var keyptur frá
Noregi fyrir ári síðan og er nú
tveggja ára gamall.
F.V.: Hvernig hefur rekst-
urinn gengið?
— Reksturinn hefur gengið
illa einkum vegna skorts á
rekstrarfé. Við höfum þó verið
heppnir með þessi skip og litl-
ar bilanir hafa orðið á þeim.
Aflabrögðin hafa verið vel þol-
anleg.
F.V.: — Hvað skapar út-
gerðin og fiskvinnslan mörg-
um atvinnu á stöðunum?
— Það munu vera um 300
manns sem vinna við útgerð-
ina og fiskverkunina. Hér var
mikið atvinnuleysi svo og á
Hofsósi og varð gjörbylting á
þegar togararnir komu. Ég
man tímana tvenna því hér
hef ég verið allt mitt líf. Það
er ekki ofmælt að hér hafi
ekki aðeins orðið á breyting
til batnaðar, heldur gjörbylt-
ing. Þetta er staðreynd.
Stefán Guðmundsson,
framkv.stjóri.
F.V.: Ert þú þá bjartsýnn
á framtíðina?
— Það er ég og ég vona að
framhald verði á byggðastefn-
unni. Öllum hlýtur að vera
ljóst, að skynsamlegra er að
nota fjármagnið til uppbygg-
ingar atvinnulífsins og efling-
ar framleiðslu, í stað þess að
greiða milljónir í atvinnu-
leysibætur.
FV 9 1974
65