Frjáls verslun - 01.09.1974, Qupperneq 71
Hótel Blönduós
Ferðamannatíminn nær
jafnvel ekki fjórum mánuðum
„Það þætti mér nú bara gott, ef hægt væri að segja að ferða-
mannatímabilið stæði í 4 mánuði. Jafnvel á háannatímanum er Rætt við
ekki alltaf fullskipað hjá okkur“, sagði Haukur Sigurjónsson,
eigandi Hótel Blönduóss og hótelstjóri þess. Hann rekur þarna llótelstjórann
myndarlegt og mjög snyrtilegt hótel ásamt konu sinni og
dætrum. Starfsliðið í haust hefur verið um 10 manns, en verður
mest um 20 manns á sumrin.
GETA OPINBERIR AJÐILAR
AÐSTOÐAÐ?
Haukur kvaðst þeirrar skoð-
unar að opinberir aðilar gætu
gert meira til að aðstoða hó-
telin úti á landsbyggðinni, m.
a. með því að miðla ýmsum
ráðstefnum og þingum á veg-
um þess opinbera. Stærsta
vandamálið í rekstri hótels úti
á landi væri hinn stutti tími,
sem þau eru rekin af einhverj-
um krafti.
„Ég verð líklega í hópi
þeirra, sem setja slagbrand
fyrir dyrnar, ef svo fer sem
horfir, í vetur“, sagði Haukur.
Verður þá heldur nöturlegt að
vera á ferðalagi um landið,
þegar hvert hótelið af öðru
lokar dyrum sínum og í engin
hús að venda með næturgist-
ingu á vetrarnóttu. Síðasta
sumar voru gestir Hótel
Blönduóss að langmestu leyti
íslendingar, en erlent ferða-
fólk, sem hafði þó boðað komu
sína, sást naumast. Pantað
hafði verið fyrir 10-20 manna
hópa útlendinga, en aðeins 2
þessara hópa komu, en í vor
tóku afpantanir að berast.
Kvað Haukur vonlaust að taka
slíkar pantanir og hefði hann
hætt að sinna slíku.
í hótelinu eru alls 31 her-
bergi og þar er hægt að koma
fyrir allt að 64 rúmum.
Á sumrum fær Hótel
Blönduós samkeppni um ferða-
fólkið, m. a. frá ríkinu, Eddu-
'hótel er þá sett á stofn á
Húnavöllum og í Reykjaskóla
og sumarhótel í kvennaskólan-
um á Blönduósi.
Haukur Sigurjónsson hótelstjóri og kona hans ásamt tveim starfsstúlkna og yngri dóttur þeirra
hjóna. Miklar breytingar og endurbætur hafa átt sér stað á húsinu, jafnt utan dyra sem innan.
FV 9 1974
71