Frjáls verslun - 01.03.1975, Qupperneq 50
Einn liður í kaupstefnunni ís-
lenzkur fatnaður vor.u tízkusýn-
ingar, sem fram fóru daglega í
ráðstefnusal Loftleiðahótelsins.
i
Vörukynning:
Fatakaupstefna
haldin í 14 sinn
Sautján innlendir fataframleiðendur tóku þátt í ka'upstefnunni
íslenzkur fatnaður, sem haldin var í Kristalssal Hótels Loft-
leiða 6.—9. marz sl. Var þetta í 14. sinn, sem slík kaupstefna er
haldin en kaupmenn, sem hana sóttu nú, voru nokkru færri en
áður og var þar aðallega samgönguerfiðleikum innanlands um
að kenna.
Gísli Benediktsson, skrif-
stofustjóri Félags ísl. iðnrek-
enda, sem annaðist skipulagn-
ingu kaupstefnunnar, sagði í
samtali við F.V., að venjulega
hefðu komið 100-120 kaup-
menn á þessa stefnu en sam-
kvæmt skrám hefðu þeir ekki
verið nema um 80 að þessu
sinni. Taldi hann, að talan
kunni að hafa verið nokkru
hærri, því að ekki er víst að
allir gestir hafi átt leið um
sömu inngöngudyr Loftleiða-
hótelsins og gefið sig fram
við gestaskráningu kaupstefn-
unnar.
Einnig væri ljóst, að margir
kaupmenn hefðu ekki séð á-
stæðu til að fara á kaupstefnu
nú, þar eð algengt er að verzl-
anir liggi með lagera vegna
tímabundinna örðugleika í
rekstri.
VOR OG HAUST.
Það er orðinn árviss við-
burður, næstum því, að halda
innlenda fatakaupstefnu vor
og haust. Að vísu féll haust-
kaupstefnan niður í fyrra og
var hráefnaskorti hjá framleið-
endum fyrst og fremst um að
kenna, þannig að þeir höfðu
ekki einu sinni efnisprufur
fyrirliggjandi.
Á vorkaupstefnunni eru
þátttökufyrirtækin venjulega
17-19 talsins en eilítið fleiri á
haustkaupstefnu. Ákveðáð er
að næsta haustkaupstefna
verði haldin í septemberbyrj-
un næstkomandi.
Þá eru áformaðar breytingar
á fyrirkomulagi kaupstefn-
unnar, þ. e. að hún taki
skemmri tíma, verði ekki hald-
in fimmtudag, föstudag, laug-
ardag og sunnudag eins og nú
er heldur laugardag, sunnudag
og mánudag. Hefur komið í
ljós, að kaupmenn eru mjög
bundnir við störf í verzlun-
um sínum á föstudögum og
því ætti þessi nýja tíma-
setning að vera til bóta. Tízku-
sýningar fóru fram daglega
meðan vorkaupstefnan stóð yf-
ir.
50
FV 3 1975