Frjáls verslun - 01.01.1977, Blaðsíða 100
Max Grundig
byrjaði smátt...
1 ■1
Evrópa, áriö 1945, stríðinu
er nýlokiö.
Þegar friður komst á var
varla til útvarp á þýsku heim-
ili. Viötækin höföu ýmist ver-
iö eyðilögö eöa gerö upptæk.
Fólkið var fátækt. Þaö var
enn bannað aö smíóa útvarps-
tæki.
Gegn þessum vanda réöst
ungur rafvirki, Max Grundig,
meö aðstoö fáeinna hjálpar-
manna, án auðs eöa áhrifa.
Meö ótrúlegum klókindum
tókst honum aö hefja gerö
viötækja úr gömlu dóti sem
herir bandamanna höfðu i
fórum sínum og máttu sjá af.
Þannig var kjölur lagóur aö
einu mesta iönaöarundri
seinni ára.
Á tólf árum varö Grundig
mestur framleiöandi útvarps-
og segulbandstækja í Evrópu
allri og í gerö sjónvarptækja
einn sá fremsti í heimi. Verk-
smiöjur hans eru nú 25 i
ýmsum löndum Evrópu.
Grundigstaöur heitir nýtt
byggðarlag skammt suöaust-
an Núrnberg, sem reist var
um 1970. Þar eru nú höfuö-
stöövar Grundigs, og einhver
stærsta og fullkomnasta sjón-
varpstækjasmiöja heims. Þar
vinna nú 10.000 manns aö
framleiðslunni.
Áriö 1970 var 10. hvert
litsjónvarpstæki í Vestur-
Þýskalandi frá Grundig. Nú er
3. hvert litsjónvarp framleitt
af fyrirtæki þessa manns,
sem sjálfur forðast sviösljós-
iö, fjölmiölana og hiö Ijúfa líf
eins og heitan eldinn.
Þaö er fyrir þig en ekki
Max Grundig sem þessi saga
er sögö hér og nú. Hvernig
getum viö betur skýrt það
ótrúlega traust sem kröfu-
höröustu kaupendur heims
sýna einni tegund vöru?
ÞAÐ ER ÁSTÆÐA TIL AÐ
TREYSTA GRUNDIG.
Leiðandi fyrirtæki
á sviði sjónvarps
útvarps og hljómtækja
Þröstur Magnússon
VERZLUN OG SKRIFSTOFA: LAUGAVEGI 10. SÍMAR: 27788,19192,19150.