Frjáls verslun - 01.01.1977, Blaðsíða 27
aðallega ekið með erlenda
ferðamenn. A öðrum tímum
ársins eru margir hópferðabíl-
anna í skólaakstri víða um
land, en þessir hópferðabílstjór-
ar aka frá BSÍ í maí—ágúst.
BSÍ FYRIRHUGAR AÐ OPNA
FERÐASKRIFSTOFU
Þegar blaðamaður F.V.
spurði Kristjón, hvort það væri
ekki ætlun BSÍ að opna ferða-
skrifstofu svaraði hann á þessa
leið:
— Við 'höfum átt ferðaskrif-
stofuleyfi í nokkur ár, en ekk-
ert verið að flýta okkur.
Hinsvegar, þegar erlendir
ferðahópar vo.ru í vaxandi mæli
farnir að leita fyrir sér um
þjónustu beint héðan, þótti
okkur rétt að hafa þessi rétt-
indi, enda margir komnir með
þau, þ.á.m. eigendur langferða-
bíla.
Áhugamál okkar hér er fyrst
og fremst, að fá sem mesta
vinnu fyrir bílana og er í því
efni sama hvaðan gott kemur.
Þó ætti það engan að saka,
þótt svo færi, að einhverjir ný-
ir markaðir opnuðust um ferðir
hingað, t.d. frá Norðurlöndum,
eða jafnvel um nýjar ferðir hér
innanlands.
Hitt er svo afveg víst, að við
höfum engar ráðagerðir uppi
um „Sólarlandaferðir" með til-
heyrandi gjaldeyriseyðslu, en
miklu fremur höfum við áhuga
fyrir hinu að hingað komi sem
flestir erlendir ferðamenn og
viljum eiga þátt í að, þeir geti
ferðast um landið með sem
skaplegustum kjörum- og verð-
ur það að teljast þjóðhollt sjón-
armið.
Þess er þá líka að vænta, að
heilsteypt samstarf milli ferða-
skrifstofanna í landinu og eig-
enda samgöngutækjanna eflist
öllum til hags. Og ef nú í svip-
inn Ihillir undir einhverjar smá-
vægilegar landamæraskærur,
verða þær að sjálfsögðu jafnað-
ar á næstunni, sagði Kristjón að
lokum.
1<’V t 77
27