Frjáls verslun - 01.01.1977, Blaðsíða 32
Samgöngur 1977
Vetrarævintýri að vestan
Kristinn Benediktsson, blaðamaöur FV, segir frá ferðum sínum milli
nágrannabyggðarlaganna á norðanverðum Vestfjörðum nú fyrir skömmu
— Þú átt að fara á Vestfirði og skrifa byggðar lagsþátt eftir áramótin, sagði ritstjórinn við mig
milli jóla og nýárs, — það hefur snjóað svo lítið að hægt er að komast auðveldlega á milli staða.
Því miður komst ég ekki af stað mánudaginn 3. janúar vegna nauðsynlegs undirbúnings þann
dag. Eg segi því miður vegna þess að ég tel að þessi dagur hafi haft töluverð áhrif á hversu erfið-
lega ferðin gekk og tók lengri tíma en ég hafði reiknað með. En hins vegar er hægt að gefa les-
endum FV litla innsýn í samgöngumál á Islandi á bví herrans ári 1977.
Götumynd frá ísafirði, þar sem tiltækar vélar unnu við snjó-
ruðning.
Ég átti pantað far með Flug-
félagi Islands 4. janúar til Isa-
fjarðar. Þeir höfðu samband við
mig og sögðu mér að mæta
klukkan 11, því flugvélin átti
að fara hálftíma síðar. í af-
greiðslu Flugfélagsins var ys og
þys og mættu nokkrir farþegar
á síðustu stundu sem torveld-
aði afgreiðslumönnum vinp.u
sína. Þá var einnig verið að
gera flugvél til Hornafjarðar
klára til brottfarar.
# Flug fellt
niður
En þegar maður átti von á
því að tilkynnt yrði um brott-
för, var fólki sagt að því mið-
ur legðist flug til fsafjarðar
niður í dag og voru farþegar
beðnir að hafa samband klukk-
an 9 næsta morgun.
Næsta morgun var leiðinda-
veður, allhvass og gekk á með
éljum og skafrenningi á milli.
Mér var sagt á Flugfélaginu að
hringja aftur klukkan 10, þar
sem veðrið frá ísafirði væri
ekki komið. Ég var svo boðað-
ur út á flugvöll klukkan 11.
Veðrið virtist vera að færast í
aukana. Mér var tjáð að þrjár
vélar færu til ísafjarðar, tvær
með farþega og ein með vörur.
Ég fékk grænt spjald sem
þýddi að ég færi með seinni
vélinni og færi hún tíu mínút-
um seinna en sú fyrri. Út um
glugga flugstöðvarinnar grillti
í snjóruðningstæki í skafrenn-
ingnum og voru þau á fullri
ferð að hreinsa af flugbraut-
inni. Farþegarnir voru kallaðir
út á fyrri vélina, þeir voru
auðkenndir með bláu spjaldi.
Vélin hélt síðan af stað út á
brautina og hvarf brátt sjón-
um í éljaganginn. Það liðu
nokkrar mínútur en þá birtist
hún aftur og farþegarnir
streymdu inn hríðskjálfandi.
Tilkynnt var að fluginu væri
aflýst þann daginn. Ég hleraði
að brautarskilyrði í Reykjavík
væru slæm vegna hálku, einnig
færi vestanátt vaxandi á ísa-
firði en það er versta áttin þar.
í gær hafði hins vegar verið
eitthvað að brautinni þar og
því ekki flogið.
Næsta dag leit ekki vel út
með flugveður, en þó var lagt
af stað eftir hádegi eftir marg-
ar símhringingar. Veðrið var
gott á ísafirði. Segir nú fátt af
ferðum mínum, nema ég kann-
aði möguleika á að komast milli
staða.
0 Breiðadalsheiöin
ófær
Eg fékk þær upplýsingar að
Breiðadalsheiðin væri ófær og
engar áætlunarferðir með snjó-
bílum. Mér var bent á að hafa
samband við Hörð Guðmunds-
son, en hann rekur flugfélagið
Erni á fsafirði, og er með póst-
flug á alla firðina.
32
FV 1 77