Frjáls verslun - 01.01.1977, Blaðsíða 51
Stálgrindarhúsið sem Fiskiðjan hóf starfsemi 1 árið 1972.
unum mikil lyftistöng. Hins
vegar held ég að ekki verði
bætt við mik'lu fleiri skipum
úr því sem komið er nema að
Patreksfirðingar fái sér ef til
vill einn. Reynsla okkar af tog-
aranum Trausta, sem er nokkru
minni en hinir Vestfjarðatog-
ararnir, hefur þó ekki verið sér-
staklega góð. Við höfum átt í
erfiðleikum vegna bilana, t.d.
á spilinu, og skipið þess vegna
verið lengi frá veiðum vegna
viðgerða.
F.V.: — Hvað eru það marg-
ir, sem vinna hjá ykkur, hæði
á skipunum og í landi og hvað
er það mikill hluti af íbúum
Suðureyrar?
Páll:: — Á Suðureyri eru í-
búar núna 515 en ekki eru a'llir
búsettir þar, sem koma til okk-
ar í vinnu. Það er alltaf eitt-
hvað af aðkomufólki hjá okkur
allt frá 40 og upp í 60 manns. J
fiskiðjunni vinna yfirleitt um
120 manns og svo tæplega 50 á
skipunum, þar af 15 á togaran-
um. Mikið af kvenfólkinu, sem
vinnur í hraðfrystihúsinu eru
húsmæður á staðnum en síðustu
árin höfum við fengið talsvert
af kvenfólki langtaðkomið, allt
frá Ástralíu og Nýja-Sjólandi.
Þaðan eru 22 konur í vinnu hjá
okkur núna, og standa sig mjög
vel. Okkur hefur ekki tekizt að
fá nægilegt starfslið þó að aug-
lýst sé hérna heima og þess
vegna höfum við þegið þá milli-
göngu, sem skrifstofa Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna í
London hefur haft um að út-
vega okkur þennan starfskraft.
Mér skilst, að þessar ungu kon-
ur séu yfirleitt staddar í Bret-
landi, þegar þær ákveða að
koma ihingað, en hér eru þær
misjafnlega lengi. Þær borga
opinbe.r gjöld hér en fá síðan
mismuninn af laununum yfir-
færðan í erlendan gjaldeyri.
F.V.: — Margan í þéttbýlinu
fýsir eflaust að vita, hvað fólk
á minni stöðunum hefur yfir-
leitt í kaup fyrir venjulega
vinnu eins og í frystihúsi. Hvað
getur kaun orðið hátt ef öll
vinna er tekin, sem fæst?
Páll: — Að meðaltali gæti ég
trúað að kaupið væri um 80
þús. krónur á mánuði en þetta
fer mikið eftir árstíma. Stund-
um fer það töluvert á annað
hundrað þúsund en yfir vetrar-
vertíðina, sem stendur fimm
mánuði býst ég ekki við að
kaup fari niður fyrir 100 þús-
und að meðaltali á mánuði.
Þetta er þó allbreytilegt eftir
því, ihvort um ákvæðisvinnu er
að ræða eða ekki. Fólk, sem er
duglegt í ákvæðisvinnu fær þó
nokkuð meira í laun en þeir
sem vinna á tímakaupi. Það er
allt unnið í ákvæðisvinnu í
vinnslunni í frystihúsinu hjá
okkur. Þar er kaupið oft um 130
þúsund á mánuði og dæmi þess
að það fari í 200 þúsund hjá
mjög afkastamiklu fólki.
Á bátunum hefur hásetahlut-
urinn verið frá 1,2—1,7 millj.
á síðasta ári en 'hásetahlutui'inn
á togaranum um 2 milljónir.
Línubátarnir við bryggju í Súgandafirði. Frá bryggju er fiskinum ekið í kæligeymslu frystihússins,
þar sem hann bíður meðferðar í vinnslunni. Kas sarnir eru notaðir í togaranum.
FV 1 77
51