Frjáls verslun - 01.01.1977, Blaðsíða 29
Innanlandsflug Flugfélags íslands
„Kaup á 56 - sæta Friendship -
flugvélum gætu komið
til greina"
- Segir Einar Helgason, framkvæmdastjóri, í vi&tali um
rekstur innanlandsflugsins
— Við fylgjumst vel með þeim tækniframförum sem verða úti í heimi. Nýjar flugvélategundir, sem
koma á markaðinn, eru skoðaðar og kannað, hvort þær myndu henta hér í innanlandsfluginu. Eng-
ar breytingar eru á döfinni nú og ég geri ráð fyrir að Fokker Friendship-vélamar verði notaðar
enn um langt árabil. Til greina kemur að fá stærri tegund af þessum vélum. þ.e.a.s. vélar, sem
taka 56 manns í sæti í stað 48 eins og vélamar okkar. Stærri tegundin myndi henta vel á þeim
lciðum, þar sem flutningar eru mestir og ferðirnar tíðastar.
Þetta sagði Einar Helgason,
framkvaemdastjóri innanlands-
flugs Flugleiða í samtali við
FV. Hann benti á að Fokker
Friendship-vélarnar hefðu
marga 'kosti, bæði með tilliti til
flugeiginleika og möguleika i
afgreiðslu þeirra á jörðu niðri.
Þannig væri það mikill kostur,
að vélarnar eru háþekur og
menn geta staðið á jörðu niðri
við að ferma þær. Þetta kemur
sér vel úti á landi, þar sem af-
greiðslumenn eru fáliðaðir.
Nýverið hafa fullkomnari
ratsjár en fyrir voru verið sett-
ar í Friendship-vélarnar og
telja flugmenn að fáar eða eng-
ar vélar af þessari gerð séu nú
betur búnar öryggistækjum en
innanlandsvélar Flugfélags ís-
lands.
Aðspurður um möguleikann
á að félagið keypti þotur til
notkunar í innanlandsflugi á
næstu árum, sagðist Einar telja
hann hverfandi. Vegalengdir á
innanlandsleiðum væru.fremur
stuttar og óþarft að stytta flug-
tímann, Þá þyrfti að hafa í huga
kosti þess að ferðafjöldi á
hvern ákvörðunarstáð væri sem
mestur. Það væri ekki til veru-
legra bóta að stækka vélarnar
og fara færri ferðir. Slíkt
myndi áreiðanlega ekki mæl-
Einar Hclgason, framkvæmda-
stjóri innanlandsflugs F.í.
ast vel fyrir hjá viðskiptavinun-
um.
Einar
Helgason,
fram-
kvæmda-
stjóri
innanlands-
flugs F.í.
VELTAN FER YFIR
MILLJARÐ
Á þessu ári er gert ráð fyrir
að veltan í rekstri innanlands-
flugsins fari yfir einn milljarð
króna. Bráðabirgðatölur benda
til þess að í fyrra hafi hún ver-
ið um 850 milljónir. Aukningin
í farþegaflutningum í fyrra
miðað við árið á undan var ekki
mikil. í fyrra voru farþegarnir
206,855 í innanlandsfluginu en
205,176 árið 1975. Reyndar er
þ.etta mun minni aukning en
verið hefur undanfarin ár.
Verkfallið í fyrravetur hefur
FV 1 77
29