Frjáls verslun - 01.01.1978, Page 30
Scrcfni:
Samgöngumál
Sumaráætlun 1978:
Fiugleiðir fjölga ferðum
til Chicago
Gert ráö fyrir framhaldi á pílagrímaflugi
— Enn er ekki vitað hver útkoma var á árinu 1977, en líklegt er ferðum til New York, en mark-
að í besta lagi verði félagið í járnum, sagði Sigunður Helgason aðsstaða Flugleiða í Ohicago er
forstjóri Flugleiða, er F.V. innti hann frétta af rekstrarafkomu talin heldur betri en í New
félagsins í fyrra. York og þessvegna eru þessar
tilfærslur.
Farþegafjöldi var þessi: N-
Atlantsihafsflug 239.816, Evr-
ópuflug 142.155, Bahamaflug
71.725 og innanlandsflug 235.
394. Aukning eða fækkun í %
milli áranna: í N-Atlantshafs-
flugi 5,6% fækkun, í Evrópu-
flugi 11.2% aukning, í Bahama-
flugi 1,8% fækkun og í innan-
landsflugi 14,4% aukning.
í áætlunar- og leiguflugi
voru á síðasta ári fluttir alls
762.395 farþegar. Farþegafjöldi
í leiguflugi var alls 73.305.
Aukningin í leiguflugi milli ár-
anna er 35,5%, og hafði píla-
grímaflugið þar mest að segja.
Heildaraukning í áætlunar og
leiguflugi Flugleiða í fyrra varð
6,6%.
Afkomuhorfurnar á árinu
1978 er erfitt að spá um með
tilliti til þeirra miklu óvissu
sem ríkir, sérstaklega á Atl-
antshafinu. Innanlandsflugið
hefur verið rekið með halla
undanfarin 4 ár vegna of lágra
fargjalda, en umbeðnar hækk-
anir hafa ekki náð fram að
ganga. Vonast er til að innan-
landsflugið verði rekið halla-
laust á yfirstandandi ári.
ÓVISSA í FARGJALDA-
MÁLUM
Algjör óvissa ríkir um þróun
fargjaldamála á Atlantshafs-
leiðinni. Sem viðbrögð við
lækkandi gjöldum á þessari
leið voru gerðar vissar tilfær-
ingar og samræmingar á gjöld-
um Flugleiða til þess að mæta
aukinni samkeppni frá 1. nóv-
ember s.l. Þessi tilraun hefur
tekist allvel því farþegaflutn-
ingar hafa ekki minnkað miðað
við sama tímabil árið áður. Það
eru vissulega takmörk fyrir því
hve langt niður er hægt að fara
með þessi gjöld og er það von
Flugleiðamanna að náð verði
að minnsta kosti sömu meðal-
gjöldum á árinu 1978 eins og
1977. Hins vegar eru verulegar
útgjaldaaukningar staðreynd
þannig að líkur eru fyrir því að
Atlantshafsflugið verði rekið
með halla á yfirstandandi ári.
Er þar sömu sögu að segja hjá
velflestum ef ekki öllum félög-
um, sem stunda rekstur á þess-
ari leið.
CHICAGO-FERÐUM
FJÖLGAÐ
Sumaráætlun 1978 er að
verulegu leyti í svipuðum
skorðum og síðastliðið sumar.
Þó hefur flutningamagn verið
aukið á Evrópuleiðum með
frekari nýtingu á DC-8 vélum á
þeim leiðum. Varðandi Atlants-
hafsflugið þá hefur orðið viss
tilflutningur þar, þannig að
lögð er ríkari ríkari áherzla á
Chicago sem viðkomustað og
aukast ferðir þangað úr 4 í viku
í 6 í viku. Jafnframt fækkar
SAMIÐ Á NÝ UM PÍLA-
GRÍMAFLUG
Flugleiðir munu áfram nýta
þá möguleika sem bjóðast í
leiguflugi fyrir erlenda aðila
og nú þegar er verið að kanna
möguleika á því að taka þátt i
pilagrímaflugi seinnipart þessa
árs eins og gert hefur verið
síðastliðin tvö ár.
Innanlandsflug Flugleiða hefur
um árabil verið rekið með tapi.
.•jO
FV 1 1978