Frjáls verslun - 01.01.1978, Blaðsíða 51
Sjúkrahús- og heilsugæzlustöð sem verið er að reisa á ísafirði
fyrir sveitarfélög á Vestfjörðum.
þessum lögum, en það hefur
ekki fengist fjármagn ennþá
nema til 12 íbúða. Önnur á-
stæða fyrir þessu er sú að jafn-
vel þótt ákveðið væri að byggja
fleiri leiguíbúðir, þá hamlar því
skortur á iðnaðarmönnum.
IÐNAÐUR GETUR EKKI
KEPPT VIÐ ÚTGERÐINA
F.V.: — Hvað með iðnaðinn
á ísafirði?
— Það er hér talsverð gróska
í byggingariðnaðinum en yfir-
leitt má segja að iðnaðurinn,
annar en þjónustuiðnaður, á
hér erfitt uppdráttar vegna þess
hve hann á erfitt með að keppa
um vinnuafl við útgerðina og
fiskvinnsluna, vegna þess hve
tekjur fólks eru góðar í þeim
greinum.
Skipasmíðaiðnaður er hér til
staðar, en vegna þess að ekki
hefur reynst unnt að bæta að-
stöðu skipasmíðastöðvar Mars-
ellíusar þá hefur ekki verið
hægt að nýta afkastagetuna
nægilega, bæði vantar viðlegu-
kant við stöðina og endurbæt-
ur á slippnum. Hér þyrfti að
vera hægt að taka okkar skut-
togara upp í slipp, en það mundi
strax hleypa auknu fjöri í
skipaiðnaðinn hér og skyldar
greinar.
Póllinn h.f. er hér með mjög
merkilega starfsemi, en þeir
hyggjast framleiða ýmis raf-
eindatæki sem talsverðar vonir
eru bundnar við.
STEYPUEFNI Á
HAFNARBOTNINUM
F.V.: — Hvaða framkvæmdir
eru helstar á vegum bæjarfé-
lagsins?
— Við stöndum i talsverðri
gatnagerð og höfum talsvert
lagt af olíumöl að undanförnu
Hafnargerð felst í dýpkun á
innsiglingunni og hafnarkantur
sem nú er með 210 metra stál-
þili og flotbryggju hefur verið
gerður hér í Sundahöfninni og
ný bryggja byggð í Hnífsdal.
Þá höfum við keypt nýjan lóðs-
bát í stað þess gamla.
Verið er að reisa nýtt sjúkra-
hús og heilsugæslustöð í tengsl-
um við það, en það er mikið
mannvirki sem ísafjarðarbær
og sveitarfélög á norðanverðum
Vestfjörðum ásamt ríkinu
standa að, en árið 1978 er þriðja
framkvæmdaárið.
Sorpbrennsla er komin i
gagnið en að henni standa
nokkur sveitarfélög í samein-
ingu og er það mikil framför í
okkar umhverfismálum.
Þá kom í ljós við dýpkun
hafnarinnar að við eigum mjög
mikið magn af góðu steypu-
efni á botni hafnarinnar og
hentar efnið ennfremur mjög
vel til olíumalarframleiðslu.
Þá hafa verið byggðar 20 í-
búðir samkvæmt áætlun um
byggingu verkamannabústaða
frá því 1973. Nú er verið að
hefja byggingu 31 íbúðar sem
verður dvalarheimili aldraðra
hér á ísafirði.
SAMGÖNGUR VERÐUR
AÐ BÆTA
F.V.: — Samgöngur hafa
Iengi verið ykkar höfuðverkur,
er einhverra endurbóta að
vænta?
— Við ráðum ekki veðrátt-
unni og hér er mjög stuttur
sólargangur. Aðstæður til flugs
miðast hér eingöngu við sjón-
flug og því lítið á flugið að
treysta í skammdeginu. Það
kemur oft fyrir að flug liggur
niðri dögum saman og það trufl-
ar að sjálfsögðu ýmislegt hér.
Samgöngur á sjó hafa ekki
verið nógu skipulegar og tíðar,
en við væntum breytinga á því
með nýju leiðakerfi hjá Skipa-
útgerð ríkisins, en með þeim
kæmist ákveðin regla á flutn-
inga hingað sjóleiðina þannig
að þeim msetti treysta.
Heiðarnar á leiðinni eru ekki
opnar bílum nema 6—7 mánuði
á ári eins og er. Með endurbót,-
um á veginum yfir Þorskafjarð-
arheigi og á Diúpveginum telj-
um við að hægt væri að tryggja
bílfæri hingað allt að 10 mán-
uði ársins, og þetta er eitt af
okkar helstu baráttumálum
hvað viðvíkur samgöngumálun-
um.
Flugsamgöngur má bæta með
lýsingu á flugvellinum. Hér eru
oft stillur bæði kvölds og
morgna, þannig að með lýsingu
mætti lengja flugtímann tals-
vert.
Sérstök athugun á samgöng-
um er í gangi núna fyrir til-
stilli þingmanna kjördæmisins
og vonum við að niðurstöður
verði til þess að eitthvað raun-
hæft verði gert.
FV 1 1978
51