Frjáls verslun - 01.01.1978, Blaðsíða 76
AUGLÝSING
OPTIMA:
Nashua Ijósritunarvélar —
hraðvirkar og öruggar
Á markaðinn hér hafa komið
fimm gerðir af Nashua ljósrit-
unarvélum, sem ljósprenta á
venjulegan pappír. Þrjár þeirra
eru Nashua 1220, 1220-S og
1220-DF, og hefur 1220 gerðin
m.a. unnið til fyrstu verðlauna
á sýningu í Bandaríkjunum. Nú
hafa tvær nýjar gerðir bæst við,
en það eru Nashua 1210 og 1240.
Optima, Suðurlandsbraut 10, er
umboðsaðili fyrir Nashua ljós-
ritunarvélar hér á landi.
Nckkrir sameiginlegir kost-
ir Nashua 1220 gerðanna eru:
Þær ljósprenta á venjulegan
pappír, hvort sem bréfhaus er
á eða ekki, og geta ljósprentað
beggja megin á pappírinn, þær
geta ljósritað af bókum og tíma-
ritum jafnt sem skjölum. Allar
eru þær búnar hinu þróaða L.
T.T. framköllunarkerfi, sem
gerir þær einfaldari að gerð og
öruggari í rekstri, auk þess sem
það tryggir jafnari myndgæði
og jafnbetri ljósrit lengur en
áður var mögulegt. 1220 gerð-
irnar nota sérstök hylki fyrir
pappírinn (pappírskassettur)
svo aðeins þarf að stilla eitt
handfang til þess að skipta um
pappírsstæðr. Sjálfvirkur blek-
stillir og myndgæðaskynjari
tryggja skýr, falleg og hrein af-
rit, Allar þsssar vélar eru borð-
vélar.
Nashua 1210 er ný ljósritun-
arvél frá Nashua, en hún er
byggð upp á þeirri reynslu, sem
fengist hefur með eldri gerðun-
um 1210 gerðin er sú ódýrasta,
sem Optima býður upp á af
þeim sem nota venjulegan papp-
ír. Hún getur skilað ljósritum
allt frá A5 upp i 25,4x35,6 cm
að stærð. Nashua 1210 er hrað-
virk. Hún er 6V2 sekúndu með
fyrsta eintakið, en getur síðan
ljósritað 12 eintök á mínútu.
Nashua 1240 er ný og full-
komin gerð Nashua ljósritunar-
véla. Hún er hraðvirkari og
fullkomnari en 1210. 1240 vél-
in getur tekið stærri ljósrit en
margar aðrar vélar, eða frá A4
og allt upp í A3. Hún skilar
fyrstu myndinni eftir 4 sek-
úndur, en getur ljósritað 28 ein-
tök á mínútu. Hún hefur tvö
pappírshylki í sér í einu, en
hvcrt hylki tekur um 250 blöð.
ALGLVSEINIDUR ATHLGIÐ!
I næsta tbl. Frjálsrar verzlunar verður fjallað um ítalskar vörur.
Auglýsingasímar 82300 og 82302.
76
rv 1 1978