Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1978, Síða 70

Frjáls verslun - 01.01.1978, Síða 70
Regnboginn Margar frægar og umtalaðar myndir sýndar á næstu mánuðum Kvikmyndahúsið Regnboginn við Hverfisgötu. Regnboginn, nýjasta kvik- myndahúsið í Reykjavík, er fyr- ir margt sérstakt, cg algjör nýj- ung í kvikmyndahúsarekstri hcr á landi. í Rsgnboganum eru fjórir kvikmyndasalir, sá stærsti tekur 323, tveir salir taka 110 manns hvor, en minnsti salurinn tekur 80 manns í sæ't'i. Þessir salir er.u hvcr með sínum rcgnbogans lit, gulum, rauðum, grænum eða bláum. Meira að segja aðgöngu- miðarnir í rauða salinn eru rauðir, í bláa salinn bláir og þar fram eftir götunum. Sýningarklefi er aðeins einn fyrir alla fjóra sal- ina. Sýningar standa oftast samtímis yfir í öllum sölunum en sýningarklefi kvikmynda- hússins er búinn nýjum tækj- um, sem einnig eru nýjung hér á landi. Filman er á einni spólu, en ekki mörgum eins og aðallega þekkist, og síðan kem- ur hún rétt yfir á aðra spólu, þannig að vinna sýningarstjór- ans verður ólíkt þægilegri fyr- ir bragðið. DAGLEGA 20 KVIKMYNDA- SÝNINGAR Jón Ragnarsson, eigandi Regnbogans, sem F.V. spjall- aði við kvaðst vera mjög ánægð- ur með fyrirkomulagið í Regn- boganum og reynslan væri þeg- ar orðin mjög góð. Þegar komið er inn í and- dyri hússins getur á að líta mörg nýtízkuleg atriði hvað innréttingar snertir. Aðallitirn- ir eru hvítt og svart, veggirnir hraunaðir hvítir, en teppi á stiga upp í sýningarsalinn svart. Eru innréttingarnar verk Finns Fróðasonar innanhússarkitekts og kvaðst Jón vera mjög ánægð- ur með þá vinnu. Daglega eru 20 kvikmynda- svningar í húsinu, 5 sýningar á dag í hverjum sal. Fyrstu sýn- ingar hefjast um 3 leytið á daginn, en síðustu eru kl. 11 á kvöldin. Sagði Jón, að það hefði mælst vel fyrir að byrja kl. 3. Það getur verið hentugur tími fyrir suma eins og vaktavinnu- fólk og skólafólk. Hlé eru á sitt hvorum tíma, þannig að það skapar ekki vanda, og betri nýting kemur út úr starfsfólki, að sögn Jóns. MJÖG FRÆGAR KVIKMYND- IR Á NÆSTUNNI Regnboginn er ekki bundinn neinu stóru erlendu kvikmynda- félagi hvað innkaup á filmum snertir, og sagði Jón að keypt- ar væru filmur mjög víða að. Hann ætlar að leggja áherslu á að vera með mikið af splunku- nýjum myndum og margar myndanna, sem þegar hafa ver- ið fest kaup á eru í framleiðslu nú. Af kvikmyndum, sem Regn- boginn sýnir á næstu mánuðum má nefna Death on the Nile eftir sögu bresku skáldkonunn- ar Agatha Christie. Þar fer Pet- er Ustinov með hlutverk Her- cule Poirot. Fleiri myndir má nefna eins og The Deerhunter með Robert De Niro í aðalhlut- verki, The Driver með Ryan O’Neal, Capricorn one með Elli- ott Gould, Telly Savalas ásamt mörgum öðrum frægum leik- urum, Convoy með Ali Mac- Graw og Kris Kristofferson. Nasty Habits er ein myndanna, sem væntanleg í Regnbogann á næstu mánuðum, en þar fer hin góðkunna leikkona Glenda Jackson með eitt aðalhlutverkið ásamt Melina Mercouri. Einnig má nefna kvikmyndirnar Yeti, The boys from Brasil, sem nú er verið að framleiða og The Cass of Miss McMichels. Margar þessara mynda eru keyptar frá bresku kvikmynda- félögunum ITC og EMI og bandaríska félaginu Brut, svo eitthvað sé nefnt. í minni sölunum eru sýndar myndir, sem minni aðsókn er að. Sagði Jón að einnig yrðu sýndar í minni sölunum mynd- ir, sem þegar hefðu verið sýnd- ar í stóra salnum en að- sókn hefði minnkað að. Þannig væri hægt að ná betri nýtingu út úr hverri mynd. 70 FV 1 1978
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.