Frjáls verslun - 01.12.1978, Síða 30
adutan
Þegar neyðin er stærst....
Bandarískir framleið-
endur mæta skerpt-
um kröfum um meng-
unarvarnir með auk-
inni framleiðni og
nýjum hugmyndum
Á undanförnum áratug hafa
kröfur um megnunarvarnir í
bandarískum iðnaði, og þá sér-
staklega í efnaiðnaði, farið vax-
andi auk þess sem viðurlög hafa
verið hert samfara auknu og
strangara eftirliti.
Þegar kastljósinu var fyrst beint
að þeirri gífurlegu mengun lofts,
láðs og lagar, sem viðgekkst í
bandarískum efnaiönaöi heyrðust
spár um að kostnaður við tryggi-
lega losun úrgangsefna mundi
verða gífurlegur. Því var jafnvel
haldið fram, að efnaiðnaðurinn
ætti einskis annars úrkosta en að
velta þeim kostnaði, að stórum
hluta, yfir á bandaríska og erlenda
neytendur í mynd hækkaðs vöru-
verðs. Án þess ráðs ættu fyrirtæk-
in enga möguleika á aö forða sér
frá gjaldþroti.
Nú, nokkrum árum síðar, er enn
einu sinni Ijóst, að „nauðsynin er
móðir hyggjuvitsins". Framfarir í
mengunarvörnum hafa orðið gíf-
urlegar í Bandaríkjunum og telja
sérfróðir að þetta sé einungis
byrjunin á því að snúa þróuninni
við. Um leið hefur það sýnt sig að
skerptar kröfur um losun og með-
ferð úrgangsefna, og jafnvel olíu-
kreppa sem reið yfir, hefur ekki
leitt til neinna umtalsverðra verð-
hækkana á iðnaðarvörum í
Bandaríkjunum, a.m.k. ekki í lík-
ingu við þaö sem spáð var fyrir um
í byrjun þessa áratugs.
En hvað er það sem hefur gerzt,
— hvernig hafa fyrirtæki í banda-
ríska efnaiðnaðinum brugðist við
þeim viðlögum sem stjórnvöld
hafa beitt þau í baráttunni gegn
mengun umhverfisins?
Endurvinnsla — alvinnsla
Mörg bandarísk efnaiðnaðarfyr-■
irtæki hafa uppgötvað nýja mögu-
leika sem felast í hinum auknu
kröfum um mengunarvarnir. í stað
þess að leggjast á bakið og gefast
upp, hafa þau í auknum mæli tekið
upp endurvinnslu og í mörgum til-
vikum alvinnslu, sem ekki var talin
framkvæmanleg áður, hvað þá að
hún borgaði sig. Árangurinn hefur
oróið sá, að afkoma margra þess-
ara fyrirtækja er nú jafn góð, í
sumum tilvikum jafnvel betri en
áöur en mengunarlögin tóku gildi.
Á ráðstefnu markaðssérfræð-
inga í New York fyrr á þessu ári,
flutti Burton M. Rein forstjóri
markaðsdeildar J.T. Baker
Chemical Company fróðlegt erindi
um þessi mál. Er þar varpað Ijósi á
hvernig bandaríski efnaiðnaður-
inn hefur brugðist við breyttum
aðstæðum varðandi mengunar-
mál. J.T. Baker Chemical Com-
pany er eitt af fyrirtækjum í sam-
steypunni Richardson-Merrel, en
framleiösla þess eru lyf og alls
konar kemísk efni og nemur árleg
sala samsteypunnar röskum 800
milljónum dollara, þar af selur
Baker Chemical um 10%. For-
stjórinn gat þess að um 35% af
ráðstöfunartekjum Baker Chemi-
cals færu til þess að fullnægja
kröfum bandarískra stjórnvalda
um frágang og losun kemískra úr-
gangsefna ásamt kröfum um holl-
ustuhætti starfsfólks í efnaiðnaði.
Rein segir: Þegar okkur varð
Ijóst að fjölmörg önnur fyrirtæki
áttu við sama vanda að glíma og
við, fórum við að velta fyrir okkur á
hvern hátt við gætum aðstoöað
þau við að leysa vandann. Okkur
varð Ijóst að mjög strangar kröfur
um mengunarvarnir höfðu skapað
þörf fyrir gífurlega tækniþekkingu
og þjónustu. Með því að leysa
vandamál margra mismunandi
fyrirtækja samtímis, varö okkur
Ijóst að hægt væri að endurnýta
og fullnýta ýmis efni í einu fyrir-
tæki, sem var úrgangur annarra
og öfugt.
Nýlega tókst okkur aö þróa upp
aðferð til þess að vinna mjög
verðmætt hráefni fyrir okkur úr úr-
gangsefni frá einum af okkar við-
skiptaaðilum. Nú erum við í aukn-
um mæli farin að nota þetta hrá-
efni og um leið hefur sala okkar til
þessa ákveðna fyrirtækis aukist
verulega. Á þann hátt tekst þeim
að nota tankbíla okkar til þess að
flytja til baka úrgangsefnið sem við
vinnum úr. Þeir sleppa við að
greiða gjald fyrir að losna við efn-
ið, en það var nálægt því að vera
10% af framleiðslukostnaði þeirra,
og við fáum þarna hráefni á mjög
hagstæðu verði.
Tækin sem við notum til þess að
endurvinna þetta ákveðna hráefni
voru til staðar hjá okkur, sam-
kvæmt lögum um meðferð affalls-
efna.
Baker Chemical skiptir nú í
auknum mæli við efnaiðjur þar
sem hráefniskostnaður er stór lið-
ur í reksturskostnaði og það
bregst varla aö okkur tekst að
endurvinna verulegan hlut af
þeirra úrgangi á hagkvæmari hátt
en ef við keyptum hráefnið á
venjulegu markaðsverði.
Samkeppnin leiðir til aukinnar
hagkvæmni
Og Rein heldur áfram: Við erum
stöðugt að leitast viö að lækka
framleiöslukostnað okkar um leið
og við reynum að leysa vandamál
þeirra sem kaupa af okkur iðnað-
30