Frjáls verslun - 01.12.1978, Blaðsíða 64
magnið sem við ætlum að fram-
leiða lítið að segja fyrir þann
markað sem fyrir hendi er. Mark-
mið okkar er bara að finna besta
markaðinn.
Hagstæðir flutningar
mögulegir
— Á okkar eigin vegum hefur
veriö gerð athugun á flutningum
vegna verksmiðjunnar, sagði Þor-
steinn. — Hjá Ríkisskip hefur
komið fram, að mögulegt væri að
fá hagstæöa flutninga á fram-
leiðslunni héðan og suður vegna
þess að skip frá þeim sigla héöan
meiraog minnatóm. Þáerveriðað
athuga hvort ekki megi samræma
flutninga frá landinu hráefnis-
flutningum til járnblendiverksmiðj-
unnar.
— Það er ekki ákveðið hvar
hráefni veróur tekið til þessarar
framleiðslu, sagði Þorsteinn. —
Það eru fjórir staðir sem koma til
greina og er þar bæði um sand og
grjót að ræða. Það verða niður-
stöðurnar úr tilraunavinnslunni
sem skera úr um þetta. Það er
heldur ekki endanlega ákveðið að
svona verksmiðja verði byggð. Hér
er verið að vinna að stofnun
undirbúningshlutafélags, en
bæjarstjórn hefur skipað til þess
sérstaka nefnd. Þar verður tekin
ákvörðun um hvaða aðilum verður
boðin þátttaka. Verkefni af þessari
stærð krefjast þess að ríkisvaldið
og jafnvel erlendir aðilar verði með
í þessu.
— Við höfum beðið um styrk frá
lönaðarráðuneytinu, sagði Þor-
steinn, — þ.e. fé sem ætlað er til
nýiðnaðarrannsókna og erum við
að bíða eftir svari við þeirri beiðni.
Er ætlunin að nota það fé til þess-
arar tilraunavinnslu sem ég
nefndi. Þannig standa málin í dag.
Þetta gengur hægt og ekki end-
anlega séð hvort okkur heppnast
þetta. En það er hins vegar enginn
vafi að svona verksmiðjur hljóta að
rísa hér. Steinull er að verða ódýr-
asta einangrunarefnið. Plastið er
unniö úr olíu, sem er sífellt að
verða dýrari. Þá telja margir plast-
ið óæskilegt vegna brunahættu.
Steinullareinangrun á því framtíð-
ina fyrir sér.
Brjótið klafa
vanans, — akið um
Vatnsnes.
FERÐAMENN
Vanhagi yður um
eitt eða annað til ferða-
lagsins, þá eru
verzlanir vorar búnar
nýtízku gögnum og
öllum fáanlegum
vörum, og ætíð
til þjónustu
reiðubúnar.
KAUPFÉLAG
VESTUR-
HÚNVETNINGA
HVAMMSTANGA
SÍMI 95-1370
Höfðahreppur
Skagaströnd — Sími 95-4707
Ferðamenn!
Verið velkomnir til Skaga-
strandar.
Njótið dvalar í fallegu og frið-
sælu umhverfi.
64