Frjáls verslun - 01.12.1978, Page 35
Sálfræðingur kominn til starfa við
fyrirtækið.
Rannsóknarstofnunin hefur
einnig á sínum snærum sálfræð-
ing, sem sér um rannsóknir á því
hvers vegna fólk reykir. Sálfræð-
ingurinn heitir Dr. William Dunn.
Dunn kemur með þá tilgátu, að ein
aðalástæðan fyrir því, að fólk reyki
sé sú að ná fram ákveðnum áhrif-
um, sem sígarettureykurinn hefur
á líkamann.
Heldur hann því einnig fram, aö
svo virðist sem sígarettureykurinn
hafi þau áhrif að halda tilfinning-
um í einhvers konar jafnvægi.
Segir hann, að margar rannsóknir
hafi verið gerðar á því, hvernig
reykurinn geti náð þessum áhrif-
um, en enn þá hafi ekki verið
komist til botns í því, hvernig það
gerist.
Dunn segir: — Við lifum í flóknu
samfélagi. Því flóknara sem sam-
félagið verður, þess meiri kröfur
eru gerðar til þess aö fólk hafi
hemil á tilfinningum sínum. Það er
ekki leyfilegt í okkar þjóðfélagi að
eiga í sífelldum útistöðum, og við
megum heldur ekki flýja af hólmi.
Við verðum að standa okkur og
vinna bug á erfiðleikunum. Samt
er sífellt verið að ýfa upp tilfinn-
ingar okkar, en við verðum að hafa
vald á þessum tilfinningum, og því
betur sem við getum það, því betur
komumst við áfram í þessu þjóð-
félagi. Sígarettur hjálpa að mínu
áliti til við að hafa stjórn á tilfinn-
ingum.
Tóbaksframleiðendur bindast
samtökum.
Allir tóbaksframleiðendur í
Bandaríkjunum reka sameiginlega
stofnun sem kallast „TheTobacco
Institute" og hefur stofnunin það
verkefni að vera málsvari tóbaks-
framleiðenda og fræða almenning
um tóbak.
Enda þótt sala á sígarettum
minnkaði um 0.7% hér á landi á
árinu 1977, þá er aðra sögu að
segja í Bandaríkjunum, þar eykst
sala á sígarettum um 1 % á ári. Þar í
landi reykir meðal tóbaksreykinga-
maður 1 'A pk. af sígarettum á dag,
en um 60 milljónir Bandaríkja-
manna reykja sígarettur, eða um
40% fullorðins fólks.
í Bandaríkjunum er sem sagt
ekki búið að afgreiða þessi mál
endanlega, enda hafa tóbaks-
framleiöendur mikilla hagsmuna
að gæta í því sambandi, svo og
sjálft ríkið, sem fær geysiháar fjár-
hæðir í ríkiskassann í formi skatta
frá tóbaksframleiðendum.
Helsta röksemdafærsla tó-
baksframleiðenda er sú, aö enn
hafi ekki verið færöar órækar vís-
indalegar sannanir fyrir því, að
sígarettureykingar orsaki lungna-
krabbamein, heldur hafi aðeins
verið sýnt fram á tölfræðilegar lík-
ur þessara tengsla. Segja tóbaks-
fram'leiðendur, að enn sé mörgum
spurningum ósvarað í þessum
efnum eins og t.d., hvers vegna
margir miklir tóbaksreykingamenn
fái ekki lungnakrabbamein og
hvers vegna fólk sem aldrei hefur
reykt sígarettur fái sjúkdóma eins
og lungnakrabbamein, hjartasjúk-
dóma eða aðra sjúkdóma, sem
tengdir eru sígarettureykingum.
Hvers vegna hafi með 40 ára
rannsóknum á tilraunadýrum ekki
tekist að sanna óyggjandi tengsl
milli reykinga og lungnakrabba-
meins? Segja tóbaksframleiðend-
ur ennfremur að hætt sé við því, að
á meðan heilbrigðisyfirvöld ein-
blíni svo mjög á sígarettureykingar
sem einn helsta orsakavald
lungnakrabbameins, þá verði aðrir
hugsanlegir orsakavaldar lungna-
krabbameins útundan í rannsókn-
um.
Tóbaksframleiðendur benda
ennfremur á það mikla atvinnu-
leysi, sem stöðvun tóbaksfram-
leiðslu myndi hafa í för með sér,
bæði hjá þeim bændum sem
stunda tóbaksrækt, svo og iðn-
verkafólki og öðru fólki sem starfar
við tóbaksframleiðslu. Segja þeir,
að of mikið sé í húfi fyrir þjóðar-
búið og allur áróður gegn síga-
rettureykingum því mjög tvíeggj-
aöur, meðan enn sé ekki fullkom-
lega vísindalega sannaö, að tó-
baksreykingar orsaki krabbamein.
Phllip Morrls-verksmlðjurnar ( Richmond i Virginfu. Arkltektar í Bandaríkjunum sæmdu bygglnguna
heltinu „Verksmiðja framtíðarinnar."
35