Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1978, Síða 52

Frjáls verslun - 01.12.1978, Síða 52
bvaad Á Hvammstanga er alltaf verið að byggja Tiltölulega ör fólks- fjölgun síðustu ára mótar verkefni sveit- arfélagsins nokkuö — Atvinnulíf hér byggist fyrst og fremst á þjónustu og verslun við nokkuð stórt landbúnaðarhér- að í kring, en í vaxandi mæli einnig á útgerð og vinnslu sjávar- afla sagði Þórður Skúlason sveit- arstjóri á Hvammstanga þegar Frjáls Verslun hitti hann að máli. — Það er bara eitt fyrirtæki í fiskvinnslu hérna, sagöi Þórður, en það er Meleyri h.f. Þar er fyrst og fremst unnin rækja, en þeir eru líka farnir að taka eitthvað við bol- fiski upp á síðkastið. Svo hefur verið unnin skel. Héðan eru gerðir út 5 bátar frá 15-70 tonn að stærö. Og eitthvert slangur er hér af trill- um, en eigendur þeirra nota þær gjarnan til grásleppuveiöa. Útgerð hefur verið að vaxa hérna, enda er fiskgengd að aukast í flóanum. önnur forsenda aukningarinnar er sú að mikið hefur verið gert til úr- þóta í hafnarmálum á undanförn- um árum. Bæði hefur höfnin verið dýpkuð og byggður grjótgarður. Tvö sláturhús. — Hvað snertir þjónustuna viö landbúnaðinn sem ég nefndi fyrst, sagði Þórður, — þá eru hér tvö sláturhús. Annaö er í eigu kaupfé- lagsins en hitt á vegum verslunar Sigurðar Pálmasonar. ( þessum húsum er slátrað um 40.000 fjár á þessu hausti. í sambandi við þessi fyrirtæki hefur verið reynt að koma upp svolítilli kjötvinnslu og þyrfti gjarnan að auka þá fullvinnslu landbúnaðarafurða á staðnum. — Kaupfélögin hér og á Borð- eyri eru með sameiginlegt mjólk- urbú hérna, sagði Þórður, — en þaö þjónar nokkuö stóru svæði. Aðal framleiðsluvara búsins er 45% ostur með vaxskorpu, en sá ostur mun svo til eingöngu fram- leiddur hér. Núna stendur yfir mikil stækkun á mjólkurbúinu og á að auka við bæði vinnslu- og geymslupláss. Fyrir utan þetta er kaupfélagiö meö nokkurn at- vinnurekstur. Það rekur hér sér- stakt kjötfrystihús og er að byggja nýtt sláturhús. Þá er þar verslun- arrekstur í nokkrum deildum. Vegagerðarmiðstöð fyrir sýsluna. — í sambandi við þjónustu á öðrum sviðum má nefna að vega- gerðin er alltaf meö mikla starf- semi hér, sagði Þórður. — Hér er eins konar vegageröarmiðstöö fyrir sýsluna og eru nokkrir starfs- menn vegagerðarinnar með fasta búsetu hér. Við erum að vinna að því að Póstur og sími komi sér upp sams konar þjónustumiðstöö og rafveitan er aö koma sér upp vísi að slíku. Á Hvammstanga er starfrækt lít- ið sjúkrahús, sem þjónar Vestur- Húnavatnssýslu auk Bæjarhrepps í Strandasýslu, sem tilheyrir lækn- ishéraðinu. — Fyrir okkur veitir þetta sjúkrahús þýðingarmikla þjónustu, sagöi Þóröur. Þarna vinna tveir læknar, héraðshjúkr- unarkona og Ijósmóðir. Pláss er fyrir um 30 sjúklinga í sjúkrahúsinu núna, en fyrirhugaðar eru breyt- ingar á því og bygging heilsu- gæslustöðvar við. Þá færist eitt- hvað af. starfsemi sjúkrahússins yfir í nýbygginguna, auk þess sem hægt,verður að rýma íbúðir inni í sjúkrahúsinu og ætti þetta að hafa í för með sér betri nýtingu. Eins og gjarnan gerist þá hefur fjárskortur hamlað því að hægt væri að ráðast í þessar framkvæmdir af fullum krafti, en heilsugæslustöðin er nú fullhönnuð. Eitt iðnfyrirtæki. — Eina iðnfyrirtækið hérna er saumastofan Drífa, sagði Þórður, — en það er ansi gott fyrirtæki. Þar vinna nú 15-20 konur og hefur þessi atvinna verið vinsæl meðal þeirra kvenna sem ekki hafa áhuga á að vinna í rækju eöa fiski. Á síðustu árum hefur fólksfjölg- un verið tiltölulega ör í Hvamms- tangahreppi og hafa verkefni sveitarfélagsins mótast nokkuð af því. — Það er alltaf mikið verið að byggja hérna, sagði Þórður, — og þess vegna verðum við að sjá fyrir byggingarhæfum lóðum, gera götur, leggja holræsi, vatnslagnir og hitaveitu. Af stóru verkefnunum má nefna hafnargerðina, en því miöur er lítið verið að sinna henni núna. Hér bíða viðamikil verkefni á því sviði. Núna er verið að byggja 5 leiguíbúðir á vegum hreþpsins en 4 voru teknar í notkun í fyrra. Þá er okkar kvóti fullnýttur, en vissulega væri þörf fyrir fleiri. Það er mikil eftirspurn eftir húsnæöi frá fólki sem er að flytja hingað. Af öörum byggingaframkvæmdum mætti nefna, aö verið er að byggja bún- ingsklefa, sem eiga að nýtast fyrir sundlaug og íþróttahús. Sund- lauginni verður komið upp fyrst, en mikill áhugi er á því að hafa hana tilbúna fyrir næsta haust. Sjálfsagt verður að bíða eitthvað lengur eftir íþróttahúsi. Núna fer íþróttakennslan fram á göngum í gamla grunnskólahúsinu við erf- iðar aðstæður. Og úr því ég nefni grunnskólahúsið þá má taka fram að það er farið að þrengjast mjög vegna fólksfjölgunarinnar hérna og stutt í það að eitthvað þurfi að gera í þeim málum, sagöi Þórður Skúlason að lokum. 52

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.