Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.12.1978, Síða 53

Frjáls verslun - 01.12.1978, Síða 53
Saumastofan Drífa byggir nýtt verksmiðjuhús f litlum fundarsal í félagsheim- ilinu á Hvammstanga situr hópur kvenna og saumar uilarfatnað. f skrifstofu sem stúkuð hefur verið af í horni salarins situr Þórhallur Jónsson framkvæmdastjóri fyrir- tækisins, sem nefnist Saumastof- an Drífa h.f. — Það voru fimm einstaklingar hérna á staðnum sem stofnuðu fyrirtækið fyrir 6 ár- um, sagði Þórhallur. — Þetta er eingöngu sauma- stofa og viö vinnum úr ullarvoö sem viö fáum frá Pólarprjón h.f. á Blönduósi. Viö erum í samtökum sem prjóna- og saumastofur á Noröurlandi, allt frá Hvammstanga til Raufarhafnar hafa myndaö með sér. Þessi samtök hafa þaö að markmiði að deila verkefnum nið- ur á fyrirtækin þannig aö allir hafi mátulega mikiö aö gera. Hefur þetta verið heldur til bóta fyrir fyr- irtækin. Viö erum svo sameigin- lega að vinna upp í pantanir frá stærstu útflytjendunum, Hildu, Álafossi og S(S. Þessir aöilar sjá um hönnunina aö mestu en við framleiöum eftir beiöni. Þó kemur fyrir aö góöir hlutir eru hannaðir á stofunum sjálfum og þá gjarnan teknir íframleiðslu. Framleiða fyrir Hildu h.f. — Aðaluppistaðan íframleiöslu okkar núna eru fóöraðir ullarjakk- ar og anorakkar, sem viö fram- leiöum fyrir Hildu h.f., sagði Þór- hallur. Þessi vara fer mest á mark- aö í Bandaríkjunum og Kanada en einnig til Evrópu að einhverju leyti. Því miður eru verkefnin aldrei langvarandi hjá okkur og við sjá- um aldrei lengra en 3 mánuöi fram í tímann hvaö verkefni snertir. Svo verðum viö bara aö treysta því að viðbótarpantanir berist. Þetta hef- ur tekist býsna vel, því hér hefur rekstur ekki stöövast lengi. — Erfiðasti tíminn hjá svona fyrirtækjum, sagði Þórhallur, er kringum áramót. Þá er venjulega skipt um sniö og verið aö móta Á saumaverkstæðlnu hjá Drífu. tískuna eitthvað. Upp úr áramótum koma nýju sniðin og er byrjað að framleiða eftir þeim svona í mars. Á þessum tíma höfum viö oft framleitt vörur sem SÍS sendir á markað í Rússlandi. Á þessu ári verður hins vegar ekki af slíku. Trúlega hefur reynst erfitt aö semja langt fram í tímann vegna þeirrar óvissu sem ríkt hefur í gjaldeyrismálum. Nýtt hús á teikniborðinu. — Við verðum að vona að end- ar nái saman hjá okkur með þeim verkefnum sem fyrir hendi eru, sagði Þórhallur, — enda væri erfitt fyrir okkur að verða verkefnalausir með 20 konur í vinnu. Við erum mikið til með sama fólkið frá ári til árs og virðist konunum hérna hafa líkað þessi atvinna vel. Hins vegar er húsnæðiö mjög þröngt og ófullkomið eins og sjá má og eng- inn möguleiki á framleiðsluaukn- ingu við þessar aðstæður. Við er- um að láta teikna fyrir okkur nýtt hús, sem vonandi verður hægt að byrja að byggja næsta vor. Það á að veröa u.þ.b. 600 fermetrar. Tækniform h.f. í Kópavogi sér um hönnunina. Það er ekki alveg ákveðið hvar húsiö verður látið standa, en vonandi miðsvæðis í þorpinu svo stutt verði í vinnuna fyrir fólkið okkar. Þá er heldur ekki Ijóst hvernig verður með fjár- mögnun, en við höfum sótt um lán til opinberra sjóða og vonumst eftir góðri fyrirgreiðslu. Þegar búið verður að byggja verður starfsfólki e.t.v. fjölgað um 5-10 manns, en aðal munurinn verður að fá betri vinnuaðstöðu og lagerpláss, sem ekki er fyrir hendi hér í félags- heimilinu. 53

x

Frjáls verslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.