Frjáls verslun - 01.12.1978, Page 54
Ný bygging fyrir mjólkursamlagið
nauðsynleg 1980
Rætt við Árna S. Jó-
hannsson, kaupfé-
lagsstjóra á Blöndu-
ósi um starfsemi fé-
lagsins
Á skrifstofu Kaupfélags Hún-
vetninga á Blönduósi hitti Frjáls
verslun fyrir kaupfélagsstjórann,
Árna S. Jóhannsson, en hann
sinnir framkvæmdastjórn fyrir
Sölufélag Austur-Húnvetninga
auk Kaupfélagsins.
— Hérna hafa verið stofnuð tvö
félög til aö sinna þjónustu viö
landbúnaðinn, sagði Árni. — Þau
hafa hvort sína stjórn, en skrif-
stofurnar eru sameiginlegar og að
einhverju leyti er starfsfólkið sam-
eiginlegt líka. Þessi félög skipta
með sér verkum þannig, að sölu-
félagið sér um úrvinnslu á land-
búnaðarvörum og sölu þeirra, en
kaupfélagið er aftur með verslun-
arþjónustuna. Sölufélagið er með
mjólkursamlag hérna þar sem
unnið er úr u.þ.b. 5 milljónum lítra
af mjólk á ári, en það er ca. 4% af
framleiðslunni í landinu. Úr mjólk-
inni er mest unnið smjör og mjólk-
urduft. Þetta er fyrsta mjólkurbúið
hér á landi sem var stofnað til að
vinna þurrmjólk. Nú er sú fram-
leiðsla að minnka, enda er verðið
ákaflega óhagstætt. Smjörfram-
leiðslan er því aðaluppistaðan
núna.
Þurfa stórgripasláturhús.
— Sölufélagið rekur sláturhús,
sem er nokkuð stórt, sagöi Árni. Á
þessu hausti var slátrað þar 60
þúsundum fjár. Þar er líka slátrað
1-2 þúsundum stórgripa yfir árið.
Aðstæður til þess eru að vísu ekki
mjög góðar og þyrfti helst að
byggja sérstakt stórgripaslátur-
hús, en þetta bjargast. I slátur-
húsinu höfum viö komið okkur upp
aðstöðu til kjötvinnslu og förum í
gang með hana eftir sláturtíðina.
Með því skánar nýtingin á húsinu.
Við erum með stóra frystiklefa til
að geyma kjötið í og fer nýting á
þeim eftir því hvernig gengur að
koma kjötinu á markað.
— Við haustslátrun núna voru
um 120 manns í vinnu, sagði Árni.
— Það gengur misjafnlega vel að
manna sláturhúsið á haustin.
Enda má telja furðulegt að hægt
sé að manna 120 manna vinnu-
stað aðeins í 6 vikur. En þetta gekk
vel í ár og gerði það líka í fyrra.
Fólkið kemur bæði af staðnum og
úr sveitunum. Þessi vinna gefur
góðar tekjur meðan á henni
stendur og ef atvinnuástand er
ekki þess betra finnst fólki gott að
grípa í þetta.
Margþætt verslun.
— í rauninni er þáekki um meiri
starfsemi að ræða hjá sölufélag-
inu, nema hvað það þarf að losna
viö þessar afuröir. Kaupfélagið sér
aftur um allan verslunarrekstur.
Verslunin er nokkuð margþætt hjá
okkur. Við erum með matvöru-
deild, byggingarvörur, fóðurvörur,
búsáhöld og fatnað. Þá erum við
með veitingaskála þar sem seldar
eru olíur og bensín auk veiting-
anna. Útibú með tveimur verslun-
um er á Skagaströnd og eitt útibú
fyrir innan á.
— Kaupfélagið hefur reynt að
taka svolítinn þátt í þjónustustarf-
semi hérna sagði Árni. — Það á
t.d. hlut í bílaverkstæði og tré-
smíðaverkstæði, sem bæði er með
nýbyggingar og ýmsa þjónustu.
Það má segja að það sé stefna
kaupfélagsins að styðja eftir
megni við uppbyggingu atvinnulifs
með því að eiga hlut í fyrirtækjum.
— Mest allir vöruflutningar í
héraðinu eru á vegum kaupfé-
lagsins hér, sagði Árni. — Eins
veitum við nágrannabyggðum
þjónustu á því sviöi. Við erum með
vöruflutningabíla í förum bæði til
Reykjavíkur og Akureyrar og
skipaafgreiðsla hér er í okkar
höndum.
Starfsmenn um 100.
Hjá kaupfélaginu og sölufélag-
inu vinna hátt í 100 manns ef með
eru talin fyrirtæki sem eru á þeirra
vegum. Árstíöamunur er þó á
starfsmannafjölda. Eru þessi félög
því lang stærsti vinnuveitandi á
Blönduósi. Og sem nærri má geta
með svo stór fyrirtæki er alltaf eitt-
hvað nýtt á döfinni. — Það verk-
efni sem liggur fyrir næst, sagði
Árni, — er að stækka þetta versl-
unarhús um 500 fermetra, aðal-
lega til að auka verslunarrými. Á
þessu hefðum viö þurft að vera
byrjaðir, en það varð að bíða
vegna skorts á fé. Hins vegar er nú
verið að byggja 460 fermetra við-
bót við bílaverkstæðið sem við
eigum hlut í. Þá er annað mjög
stórt verkefni sem bíöur, en þaö er
endurbygging mjólkursamlagsins.
Við þraukum kannski næsta ár, en
1980 verðum við að hafa eitthvað
tilbúið. Ef það á að vinna osta í því
húsi t.d. þá þarf það aö vera tölu-
vert stórt. Og þegar við sækjum
um lán til þeirra framkvæmda þá
hreinlega verðum við að fá jákvætt
svar.
54