Frjáls verslun - 01.12.1978, Síða 56
h.f. hefur tekið dauöa punkta af í
atvinnulífinu og því komið sér
mjög vel. Hins vegar virðast
stjórnvöld líta svo á að hér eigi ekki
að gera út. Alla vega er staðnum
ekki úthlutað sanngjörnum kvóta
af rækju. Ef ekki fæst leiðrétting á
því verður ákaflega erfitt fyrir
þessa þrjá báta að hafa hér út-
gerðargrundvöll. Hins vegar getur
maður farið að vona að hægt veröi
að vinna hér bolfisk af Húnaflóa,
því svo virðist sem flóinn sé að
lifna við aftur. Sveitarfélagið
stefnir að því að gera hér veruleg-
ar hafnarbætur og hefur tekist að
fá loforð um fjárveitingar til þess
frá ríkinu. Hversu langt verður
endanlega gengið í hafnargerð
hér vitum við ekki, en alla vega
viljum við fá aðstöðu fyrir smærri
báta.
Helstu framkvæmdir hreppsins.
— Ef segja á frá helstu verk-
efnum hreppsins, sagði Hilmar,
þykir mér rétt að byrja á að segja
frá því, að hafnar voru hitaveitu-
framkvæmdir hér á síðasta ári.
Byrjað var í júní og var fram-
kvæmdum að mestu lokið á 4
mánuðum. Var lagt í flest öll hús í
bænum þá, en var klárað í sumar
að leggja í síðustu húsin og nokkra
sveitabæi. Við fáum heitt vatn frá
Reykjum, 14 km leið. Þar var mikið
vatn til að byrja með, en rennslið
minnkaði síðan og þarf þvi að bora
nýjar holur. Þurfum viö því að út-
vega fjármagn fyrir borun en vil-
yrði fyrir bor höfum við fengið. All-
ar hitaveituframkvæmdirnar kost-
uðu 320-360 milljónir, en eitthvað
af því kemur aftur í aðveitugjöld-
um. Þetta verk var unnið undir
stjórn sérstakrar hitaveitunefndar
og var öll vinna framkvæmd af
heimamönnum, nema tæknileg
ráðgjöf og þjónusta sem fékkst hjá
Fjarhitun h.f. í Reykjavík. Það fyr-
irtæki hafði einnig umsjón með
framkvæmd verksins og var alveg
sérstaklega vel að þessu staðið að
þess hálfu. Vegna þessara fram-
kvæmda hefur gatnagerð í þorp-
inu verið látin bíða, en ætlunin er
að taka hraustlega til höndunum
næsta sumar við lagningu slitlags.
Neysluvatn af skornum skammti.
— i vatnsveitumálum þurfum
við að leggja í nokkuð dýra fram-
kvæmd á næstunni, sagði Hilmar.
— Neysluvatn er að verða af
skornum skammti og vantar t.d.
vatn um sláturtíðina. Viðbótar-
vatnið verðum við að sækja 5-6 km
austur fyrir bæinn. Þar er upp-
sprettulind með 50 sek.l. af góðu
neysluvatni. Þar munum við dæla
vatninu upp í miðlunartank, en úr
honum verður sjálfrennsli í þorpið.
— Af öðrum framkvæmdum
hreppsins má nefna byggingu
leikskóla fyrir 40 börn, sem verður
fokheldur í vetur. Nýlega lauk
framkvæmdum við 14 leiguíbúðir í
fjölbýlishúsi en þær framkvæmdir
stóðu í 2 ár. Hér þyrftum við að
byggja meira af íbúðarhúsnæði
því fólki fjölgar ört. Ég sé heldur
ekki ástæðu til aö breyting verði
þar á. Hingað sækir fólk til allra
mögulegra starfa, bæði úr sveitum
og frá þéttbýlisstööum. Hér eru
tekjumöguleikar miklir og afkoma
fólks góð, þótt alltaf þurfi að leggja
eitthvað að sér til að afla teknanna.
Húnvetningar — Ferðafólk
Vér bjóðum yður góða þjónustu í verzlunum
vorum:
Matvörudeild: Úrval matvara, búsáhöld.
Vefnaðarvörudeild: Sportfatnaður, skór,
gjafavörur.
Byggingavörudeild: Veiðarfæri, viðleguútbú-
naður.
Essó-skáli: Veitingar, matvörur, benzín, olíur.
Útibú á Blönduósi og Skagaströnd. Eitthvað af
öllu.
KAUPFÉLAG
HÚNVETNINGA
BLÖNDUÓSI.
56