Frjáls verslun - 01.02.1980, Qupperneq 45
sambandi. Ég vænti þess aö innan skamms liggi þaö
mun Ijósar fyrir og þaö veröi áður en langt um líöur
hægt aö hefja framkvæmd slíkrar áætlunar."
F.V.: — Hvað með þjónustuna fyrir landsbyggö-
ina, eru einhver áform um breytingar á henni eða
frekari uppbyggingu?
Hörður: ,,Við höfum engin frekari áform í bili um
breytingar á þeirri þjónustu sem viö veitum á strönd-
inni. Það eru ákveðnar hafnir, meginhafnir á landinu,
sem viö siglum á aö utan fyrir sama flutningsgjald og
við gerum til Reykjavíkur. Nú siglum viö reglulega til
ísafjarðar og til Akureyrar með skipum sem síðan
sigla á Noreg. Á hálfsmánaöar fresti er komið viö á
Húsavík og Siglufiröi, og höfð viðkoma á fleiri stööum
á þessari leiö, ef flutningsmagn gefur tilefni til. Flutn-
ingsmagn hefur fariö vaxandi og þetta er megin
þjónustan sem við veitum viö landsbyggðina.
Hitt er svo annað mál aö Skipaútgerð ríkisins er
rekin meó framlagi úr ríkissjóöi og viö getum ekki
keppt viö hana í altækri flutningaþjónustu í strand-
siglingum."
F.V.: — Hvað vilt þú segja um fjárhagslega af-
komu fyrirtækisins?
Hörður: ,,Á árinu 1979 verðurtap á rekstrinum. Þaö
tap kemur til af því, aö það hefur veriö mikil tregöa
stjórnvalda aö heimila hækkanir á flutningsgjöldum.
Það var ekki heimiluð hækkun á þeim flutningsgjöld-
um sem háö eru verðlagseftirliti frá því í mars 1978
þangað til í júlí 1979. Á þessum tíma varð gífurleg
hækkun á eldsneyti til viðbótar almennri verðbólgu.
Þá var 8 vikna verkfall farmanna sem auðvitaö
endurspeglast í afkomu fyrirtækisins á þessu ári.
Þrátt fyrir þetta tap er fjármunamyndun í fyrirtækinu
en þegar þetta tap er reiknað er búiö að taka tillit til
verulegra afskrifta."
F.V.: — Hvernig eru þá horfurnar núna á þessu
ári?
Hörður: „Horfurnar væru viöunandi ef viö gæt-
um stöövað verðbólguna. Fyrirsjáanlegar hækkanir
af völdum veröbólgu, kaupgjaldshækkanir og ýmsir
aðrir kostnaðarþættir veröa til þess að það þarf mjög
að hafa gát á rekstrinum og hvert stefnt er á næstu
misserum."
F.V.: — Hver myndirðu telja að væru helstu
vandamál fyrirtækisins og hverjir helstu þættir sem
þú þarft að einbeita þér að núna á næstunni?
Hörður: ,,Þau vandamál sem mikill tími fer vafalaust
í á næstu misserum eru auðvitað heföbundin vanda-
mál af ýmsu tagi. Það þarf sérstaklega að fylgjast með
þróun verðlagsmála og sjá til þess að við fáum eðli-
legar leiðréttingar á flutningsgjöldum eftir því sem
verðlag hækkar. Verði verulegar hækkanir á eldsneyti
þarf þaö auðvitað líka að endurspeglast í flutnings-
gjöldum. Við munum líka einbeita okkur að því á
næstunni aö gera reksturinn hagkvæmari en hann er
í dag með endurnýjun á skipastóli og tækjum sem
leiðir til betri nýtingar og bættrar afkomu."
F.V.: — Nú er Eimskipafélagið orðið geysiiega
stórt fyrirtæki hér á þessum litla íslenska markaði og
erfitt að sjá mikla vaxtarmöguleika í hefðbundinni
starfsemi fyrirtækisins. Hvar sérð þú þá helst?
Hörður: ,,Það er rétt að Eimskip er stórt fyrirtæki á
íslenskan mælikvaröa. Því miður er það nú svo að
þegar menn mæla stærð fyrirtækja er það venjulega
mælt í starfsmannafjölda en ekki í veltu eða arði svo
að nokkuö villir þetta nú mönnum sýn.
Hjá fyrirtækinu vinna í dag nálægt 900 manns. Þar
af eru um það bil 100 manns hér á skrifstofu, 400
manns eru á sjónum og 400 manns vinna við vöruaf-
greiðslu og tengda starfsemi í landi. Fyrirtækið er í
hefðbundinni flutningastarfsemi á sjó. Það hefur
vaxið með mikilli og jákvæðri efnahagsþróun á íslandi
alla tíð og sérstaklega á síöustu áratugum. Það er
vafalaust rétt ályktun að þessi vöxtur fyrirtækisins er
mjög háður efnahagsþróun á íslandi."
F.V.: — Nú setti fyrirtækið á laggirnar ryðvarnar-
stöð fyrir nokkrum árum og fyrirtækið hefur átt aðild
að ferðaskrifstofu. Má búast við því að sjá Eim-
skipafélagið hasla sér völl á einhverjum fleiri svið-
um?
Hörður: ,,Það eru engin áform um það í bili. Á sama
hátt vil ég heldur ekkert útiloka að það yrði hugað að
slíkum málum á næstunni. Vió hyggjumst hins vegar
fyrst og fremst, ef til skamms tíma er litið, bæta nú-
verandi þjónustu og framkvæma þá hluti sem til þess
þarf á næstunni."
F.V.: — Hvað með hafnaraðstöðu fyrirtækisins
hér í Reykjavík? Nú virðist vera farið að þrengja
töluvert að fyrirtækinu?
Hörður: ,,í rekstri skipafyrirtækis að frátöldum
skipunum er það auðvitað aðstaðan í landi sem skiptir
þar mestu máli. Það hafa orðið eins og áóur hefur
komiö fram verulegar endurbætur á því sviði á und-
anförnum árum en betur má ef duga skal. Árið 1975
samþykkti hafnarstjórn Reykjavíkur og borgarstjórn
Reykjavíkur vilyrði til Eimskipafélagsins fyrir úthlutun
á Kleppsbakka. Frá þessu hefur ekki verið gengið.
Eimskip leggur mikla áherslu á það að borgaryfirvöld
gangi frá þessu máli sem allra fyrst.
Vöruafgreiðsluaðstaða Eimskip er í dag á mörgum
stöðum meðfram strandlínunni. Það er mikið hag-
kvæmnimál fyrir Eimskip og þar með neytendur í
landinu að þetta sé flutt á einn stað til þess að þessi
starfsemi verði rekin með hagkvæmari hætti en verið
hefur. Það er fyrst núna með aöstöðunni í Sundahöfn
sem möguleikar skapast til að koma þessari starfsemi
Eimskips fyrir á einum stað. Þess vegna legg ég mikla
áherslu á þaö aö fá þennan Kleppsbakka sem allra
fyrst. Það myndi auðvitað þýða að sú aðstaða sem
Eimskiþ hefur nú í gömlu höfninni í Reykjavík myndi
losna. Þaö gildir bæði um það húsnæði sem við höf-
um á leigu í Tollstöðinni og frá hafnarstjórn og
sömuleiöis um það húsnæði sem Eimskip á á þessu
svæði."
43